English Icelandic
Birt: 2012-06-06 18:14:55 CEST
Icelandair Group hf.
Fyrirtækjafréttir

Flutningatölur maí 2012

Metfjöldi farþega og besta sætanýting í millilandaflugi frá upphafi

Í maí flutti félagið yfir 165 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 22% fleiri en í maí á síðasta ári. Sætanýting nam 82,2% og jókst um 5,0 prósentustig á milli ára.  Þetta er metfjöldi farþega og besta sætanýting félagsins í maí mánuði frá upphafi.  Farþegum fjölgaði mest á N-Atlantshafsmarkaðinum eða um 31%. Aukningin á ferðamannamarkaðinum til Íslands nam 26%, þar af jókst fjöldi ferðmanna frá N-Ameríku um 58%.  Fjöldi ferðamanna frá N-Ameríku í maí hefur meira en tvöfaldast síðustu 2 ár, einkum vegna nýrra fluga til borganna Denver, Washington og Seattle.

Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru um 29 þúsund í maí sem er hækkun um 9% á milli ára. Sætanýting nam 70,1% og jókst um 5,6 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 23% m.v. maí á síðasta ári, þar sem fraktvélar í leiguflugsverkefnum voru einni færri en í fyrra.  Fraktflutningar jukust um 31% á milli ára. Framboð á gistinóttum hjá hótelum félagsins jókst um 32% frá maí á síðasta ári. Herbergjanýting var 71,1% og var 0,2 prósentustigum lægri en í maí 2011.

 

MILLILANDAFLUG MAÍ 12 BR. (%) ÁTÞ 12 BR. (%)
Fjöldi farþega 165.420 22% 606.780 19%
Sætanýting 82,2% 5,0 ppt 78,6% 4,1 ppt
Framboðnir sætiskm. (ASK'000) 579.848 17% 2.149.893 14%
         
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG MAÍ 12 BR. (%) ÁTÞ 12 BR. (%)
Fjöldi farþega 29.131 9% 137.538 4%
Sætanýting 70,1% 5,6 ppt 70,1% 2,1 ppt
Framboðnir sætiskm. (ASK'000) 13.534 0% 62.882 0%
         
LEIGUFLUG MAÍ 12 BR. (%) ÁTÞ 12 BR. (%)
Flugvélanýting 93,6% -6,4 ppt 89,2% -6,8 ppt
Seldir blokktímar 2.485 -23% 13.166 -11%
         
FRAKTFLUTNINGAR MAÍ 12 BR. (%) ÁTÞ 12 BR. (%)
Framboðnir tonnkm. (ATK´000) 15.917 16% 64.699 10%
Seldir tonnkm. (FTK´000) 8.668 31% 37.502 22%
         
HÓTEL MAÍ 12 BR. (%) ÁTÞ 12 BR. (%)
Framboðnar gistinætur 21.793 32% 95.021 18%
Seldar gistinætur 15.497 32% 61.710 31%
Herbergjanýting 71,1% -0,2 ppt 64,9% 6,4 ppt

 

Nánari upplýsingar veita:

Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010


Traffic Data - May 2012.pdf