Icelandic
Birt: 2012-04-27 18:32:30 CEST
Origo hf.
Reikningsskil

Uppgjör Nýherja á fyrsta ársfjórðungi 2012

Stór hugbúnaðarverkefni í Danmörku og Svíþjóð

Helstu niðurstöður:

  • Heildarhagnaður í ársfjórðungnum var 15 mkr.
  • EBITDA 123 mkr í fyrsta ársfjórðungi.
  • Afkoma innanlands góð, en rekstur erlendis undir áætlun.
  • Stöðugur vöxtur og góð afkoma af sölu á Tempo hugbúnaði frá TM Software.
  • Applicon A/S afhenti stóra SAP lausn fyrir sjúkrahús í Danmörku.
  • Vaxandi eftirspurn eftir tæknilausnum Nýherja.

 

Þórður Sverrisson, forstjóri:

„Hagnaður Nýherjasamstæðunnar er tæpar 15 mkr á fyrsta ársfjórðungi 2012 og EBITDA er 123 mkr og er afkoma nokkuð lakari en var í fyrsta ársfjórðungi árið 2011. Afkoma af innlendum rekstri er ágæt, en afkoma af erlendri starfsemi er undir áætlun. Um síðustu mánaðamót afhenti Applicon A/S nýtt SAP hugbúnaðarkerfi til rekstrar fyrir sjúkrahús á Sjálandi eftir tveggja ára innleiðingarvinnu.

Vaxandi eftirspurn er eftir tækniþjónustu hjá Nýherja hf. og sala á eigin hugbúnaðarlausnum hjá TM Software. hefur aukist mikið, innanlands og erlendis. Einkum er mikill vöxtur í sölu á Tempo tímaskráningarkerfi TM Software.“

 

Fjárhagsdagatal fyrir 2012:

Áætluð birting árshlutauppgjörs fyrir árið 2012:

27. júlí.                   Hálfsársuppgjör.

26. október.           Níu mánaða uppgjör.

30. janúar 2013.  Ársreikningur.


Samþykkt ársreiknings

Árshlutareikningur var samþykktur á stjórnarfundi Nýherja hf. 27. apríl 2012. Árshlutauppgjör Nýherja hf. er  í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS-International Financial Reporting Standards). Árshlutauppgjörið hefur hvorki verið endurskoðað né kannað af endurskoðendum félagsins.

Nýherji hf.

Hlutverk Nýherja hf. er að skapa viðskiptavinum sínum virðisauka með þekkingu starfsmanna á upplýsingatækni, rekstri fyrirtækja og þörfum viðskiptavina. Nýherji býður fyrsta flokks ráðgjöf og fagþjónustu á sviði upplýsingatækni og vandaðan tölvu-, skrifstofu- og hugbúnað ásamt traustri tækni- og rekstrarþjónustu. Stöðugildi hjá Nýherjasamstæðunni voru 519 í lok mars. Hlutabréf Nýherja hf. eru skráð í NASDAQ OMX Iceland hf. (Kauphöll Íslands).

Stjórn Nýherja: Benedikt Jóhannesson, stjórnarformaður, Árni Vilhjálmsson, Guðmundur Jóh. Jónsson, Hildur Dungal og Marta Kristín Lárusdóttir. Þórður Sverrisson er forstjóri Nýherja.

Nánari upplýsingar

Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja, í síma +354 893 3630.

 


Frettatilkynning.pdf
Nyherji hf. arshlutar. 31.3.2012.pdf
Nyherji hf. lykiltolur. 31.3.2012.pdf