English Icelandic
Birt: 2012-04-02 11:29:51 CEST
Icelandair Group hf.
Fyrirtækjafréttir

Icelandair gengur frá samningum um tvær Boeing 757-200 vélar

Vegna stækkunar á leiðarkerfi Icelandair mun félagið vera með 16 vélar í rekstri næsta sumar samanborið við 14 vélar sumarið 2011.  Gengið hefur verið frá samningum um tvær Boeing 757-200 vélar sem munu bætast við flota Icelandair á næstu mánuðum.  Annars vegar er um að ræða kaup á vél og hins vegar leigu á vél til 20 mánaða.  Kaupin eru fjármögnuð úr sjóðum félagsins. Kaupverðið er trúnaðarmál.  Báðar vélarnar eru á leið í hefðbundið innleiðingarferli Icelandair til að uppfylla staðla félagsins fyrir notkun.  Gert er ráð fyrir að báðar vélarnar verði tilbúnar til notkunar í leiðarkerfi félagsins í maí næst komandi.

 

Nánari upplýsingar veitir:

Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801