English Icelandic
Birt: 2012-03-29 16:32:45 CEST
Síminn hf.
Reikningsskil

Ársreikningur Skipta hf. fyrir árið 2011

Afkoma Skipta hf. á árinu 2011

Tap ársins eftir fjármagnsliði og skatta nam 10,6 milljörðum króna

Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði nam 6 milljörðum króna

 

  • Sala nam 27,6 milljörðum króna samanborið við 33,6 milljarða árið áður. Lækkunin skýrist einkum af því að rekstur Sirius IT var í bókum Skipta á fyrri helmingi árs 2010.
     
  • Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) nam 6 milljörðum króna samanborið við 5,1 milljarð árið áður. Hækkun EBITDA skýrist einkum af hagræðingaraðgerðum sem félagið greip til. EBITDA hlutfallið var 21,5% en var 14,9% árið 2010.
     
  • Bókfært tap Skipta á árinu nam 10,6 milljörðum króna sem skýrist einkum af 4,5 milljarða varúðarniðurfærslu á kröfum sem Skipti eiga á banka í slitameðferð auk virðisrýrnunar óefnislegra eigna sem nam 2,7 milljörðum króna. Tap félagsins nam 2,5 milljörðum króna árið áður.
     
  • Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta nam 4,5 milljörðum króna, samanborið við 6 milljarða árið áður. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 1,9 milljörðum króna.
     
  • Fjármagnsgjöld voru 10,9 milljarðar króna en þar af námu vaxtagjöld 5 milljörðum auk þess sem áður nefnd varúðarniðurfærsla er færð á meðal fjármagnsliða. Gengistap nam 1,6 milljarði króna.
     
  • Vaxtaberandi skuldir námu 60,8 milljörðum um áramót en voru 75,4 milljarðar árið áður.
     
  • Eiginfjárhlutfall Skipta hf. er 14,5% og eigið fé er 11,5 milljarðar króna.
     
  • Skipti hf. gerðu samkomulag við lánveitendur í apríl 2011 sem fól m.a. í sér 17,4 milljarða fyrirframgreiðslu lána. Alls greiddi Skipti hf. 22,4 milljarða í afborganir og vexti árið 2011. Öll lán félagsins eru í skilum og Skipti hf. hafa ekki fengið neina niðurfellingu skulda.

 

Steinn Logi Björnsson, forstjóri Skipta hf:

„Rekstur Skiptasamstæðunnar hefur farið batnandi á árinu sem skýrist helst af því að við höfum gripið til verulegra hagræðingaraðgerða hjá Skiptum og dótturfélögum að undanförnu. Sem fyrr er verkefnið  að hámarka arðsemi rekstrarfélaganna og  tryggja langtímafjármagnsskipan Skipta. Þetta er áframhaldandi verkefni því fjármagnsliðir eru þungir og takmarkar það svigrúm okkar.  Lánagreiðslur af langtímalánum og vaxtagreiðslur félagsins voru yfir tuttugu milljarðar króna á síðasta ári.  Undirbúningur fyrir endurfjármögnun fyrirtækisins stendur enn yfir en mikilvægt er að horfa til þess að samstæðan hefur ávallt staðið í skilum og hefur ekki fengið neinar skuldir niðurfelldar.

Eins og tölur Póst- og fjarskiptastofnunar sýna hefur fjarskiptamarkaðurinn á Íslandi farið minnkandi á síðustu 3-4 árum, eins og reyndar víðar í Evrópu. Þá hefur markaðshlutdeild Skiptasamstæðunnar einnig minnkað á sama tíma og erum við nú með vel innan við helming af heildarmarkaðnum. Þetta hefur sett verulegan þrýsting á rekstarafkomuna á síðustu árum.  Þessu til viðbótar eru fjármagnsliðirnir mjög þungir og skuldir miklar eins og ársreikningurinn ber með sér.  Við teljum mikilvægt að eftirlitsstofnanir, sem félagið á samskipti við, átti sig á þessari stöðu. Okkur finnst þær hafa ofmetið fjárhagslegan styrk félagsins þegar staða á einstökum mörkuðum er skoðuð. Við eigum ekki annarra kosta völ en að leita sífellt að hagræðingarmöguleikum sem hefur borið nokkurn árangur og munum við halda áfram á þeirri braut. 

Þrátt fyrir þunga fjármagnsliði munu Skipti og dótturfélög, nýta það svigrúm sem skapast, m.a. vegna lítilla framkvæmda við ný íbúðarhverfi, og leggja hátt í þrjá milljarða á næstu tveimur árum í að ljúka Ljósnetsvæðingu sem mun þá ná til um 89 þúsund heimila á suðvesturhorni landsins.  Nú þegar hafa 40 þúsund heimili kost á að tengjast Ljósneti.  Þetta þýðir stóraukinn internethraða og margar háskerpusjónvarpsrásir hjá stórum hluta þjóðarinnar. Að loknum þessum áfanga í Ljósnetinu geta um 75% heimila fengið allt að 100Mb/s, sem er talsvert umfram þau markmið sem fram koma í fjarskiptaáætlun stjórnvalda.  Þetta verkefni  gengur mjög vel og hefur verið mjög vel tekið af viðskiptavinum okkar.  Það ásamt batnandi afkomu gerir okkur  bjartsýn á að geta aukið verðmæti Skiptasamstæðunnar og auðveldað endurfjármögnun hennar.“

 

Helstu niðurstöður í rekstri á árinu 2011
 

Reikningsskilaaðferðir

Samstæðuársreikningur Skipta hf. er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu.  Samstæðuársreikningurinn hefur að geyma ársreikning Skipta hf. og dótturfélaga þess. Stjórn og forstjóri Skipta hf. hefur staðfest ársreikning samstæðu félagsins fyrir árið 2011.
 

Rekstur

Salan á árinu 2011 nam 27.572 m.kr. samanborið við 33.633 m.kr. árið áður, sem er 18% lækkun. Lækkunin skýrist einkum af því að í júlí 2010 seldi Skipti Sirius IT og var félagið hluti af samstæðunni fram að miðju ári 2010. Auk þess seldu Skipti Já í lok árs 2010 og Tæknivörur í ágúst árið 2011.

Rekstrarhagnaður samstæðunnar fyrir afskriftir (EBITDA) var 6.006 m.kr. miðað við 5.076 m.kr. árið áður. Hækkun EBITDA skýrist í meginatriðum af hagræðingaraðgerðum í rekstri.

EBITDA hlutfallið var 21,5% en var 22,3% sé ekki tekið tillit til einskiptiskostnaðar.  EBITDA hlutfallið var 14,9% árið 2010. 

Afskriftir félagsins námu 6.539 m.kr. á árinu samanborið við 9.097 m.kr. árið áður. Munurinn skýrist einkum af minni virðisrýrnun óefnislegra eigna. Virðisrýrnun nam 2.710 m.kr. á árinu 2011.

Tap samstæðunnar eftir skatta nam 10.573 m.kr. samanborið við 2.512 m.kr. tap á árinu 2010. Tapið nú skýrist einkum af 4.451 m.kr. varúðarniðurfærslu krafna á banka í slitameðferð auk virðisrýrnun óefnislegra eigna sem nam um 2.710 milljörðum króna. Gengistap nam auk þess 1.628 m.kr. Virðisrýrnun óefnislegra eigna nam um 4.916 m.kr. árið 2010.


Sjóðstreymi

Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta var 4.451 m.kr. á árinu en var 5.964 m.kr. á fyrra ári.

Fjárfestingar samstæðunnar í varanlegum rekstrarfjármunum (CAPEX) námu 2.779 m.kr. á árinu en námu 3.264 m.kr. fyrir sama tímabil 2010.


Efnahagur

Heildareignir samstæðunnar námu 79.368 m.kr. 31. des 2011 og minnkuðu eignir um 25% á árinu eða um 26,3 ma.kr. sem að mestu skýrist af fyrirframgreiðslu til lánveitenda. Vaxtaberandi skuldir voru 60,8 milljörðum um áramót en voru 75,4 milljarðar árið áður.

Eigið fé félagsins nam 11.538 m.kr. í lok árs 2011 og eiginfjárhlutfall var 14,5%.

 

Nánari upplýsingar um uppgjörið veitir:
Steinn Logi Björnsson, forstjóri Skipta, sími 550-6003.

 

Um Skipti hf.

Skipti reka fyrirtæki sem starfa einkum á sviði fjarskipta og upplýsingatækni, á Íslandi og erlendis. Hlutverk Skipta er að sinna sameiginlegri þjónustu fyrirtækjanna á einum stað, með hagræði og sveigjanleika að leiðarljósi. Innan samstæðunnar eru Síminn, Míla, Skjárinn, Sensa, Staki, On-Waves  Radiomiðun og Talenta. Erlendis rekur Skipti fjarskiptafélagið Síminn DK og Sensa DK í Danmörku.


Afkoma Skipta 2011 - FT.pdf
Skipti 31.12.2011.pdf
Tafla - frettat. 31.12.11 _ islenska.pdf