Icelandic
Birt: 2012-03-21 18:20:54 CET
Hagar hf.
Fyrirtækjafréttir

Hagar leita réttar síns vegna gengistryggðra lána

Í kjölfar niðurstöðu dóms Hæstaréttar í máli nr. 600/2011, sem kveðinn var upp 15. febrúar sl., hafa Hagar hf. fengið lögfræðiálit á stöðu sinni vegna gengistryggðra lána félagsins hjá Arion banka hf., áður Kaupþings Búnaðarbanka hf., sem greidd voru upp í október 2009.

Hagar fengu greiddar kr. 514.891.325 í desember 2011 vegna endurútreiknings bankans á fyrrnefndum lánum.

Niðurstaða lögfræðiálitsins gefur til kynna að Hagar eigi enn frekari kröfu á hendur Arion banka vegna lánanna en Arion banki hefur tilkynnt félaginu, með bréfi dagsettu 12. mars sl., að bankinn álíti sem svo að dómurinn hafi takmarkað fordæmisgildi og telji því að Hagar eigi ekki rétt til frekari endurútreiknings lánanna.

Stjórn Haga hefur tekið þá ákvörðun að höfða dómsmál á hendur Arion banka til að fá skorið úr um réttmæti kröfunnar enda er ljóst að um umtalsverðar fjárhæðir er að ræða. Hagar hafa fengið fyrirtækjasvið KPMG ehf. til að framkvæma endurútreikning miðað við forsendur dómsins og gefur hann til kynna að félagið eigi rúmar 824 milljóna króna kröfu á bankann, miðað við uppgjörsdag 29. febrúar 2012.

 

 

 

Nánari upplýsingar veitir Finnur Árnason, forstjóri Haga hf., í síma 530-5500.