English Icelandic
Birt: 2012-03-12 18:10:21 CET
Icelandair Group hf.
Hluthafafundir

Tillaga um arðgreiðslu

Tillaga um arðgreiðslu

Eins og fram kom í tillögum stjórnar Icelandair Group hf. til aðalfundar félagsins árið 2012 er lagt til að greiddur verði arður til hluthafa vegna reikningsársins 2011 sem nemur 0,16 krónum á hlut. Arðurinn verður greiddur í íslenskum krónum (ISK) og nemur heildararðgreiðsla 800 milljónum króna.

Samþykki aðalfundur tillöguna verður arðsréttindadagur (e. record date) 28. mars 2012. Hluthafar tilgreindir í hlutaskrá félagsins í lok arðsréttindadags eiga tilkall til arðs. Arðleysisdagur (e. ex-date), það er sá dagur sem viðskipti hefjast með bréf félagsins án réttar til arðs vegna reikningsársins 2011, verður 26. mars 2012, næsta viðskiptadag eftir aðalfund. Útborgunardagur (e. payment date) arðgreiðslu verður 20. apríl 2012.