English Icelandic
Birt: 2012-02-09 19:02:51 CET
Icelandair Group hf.
Reikningsskil

Afkoma á 4. ársfjórðungi í samræmi við væntingar félagsins

  • Hátt eldsneytisverð á 4. ársfjórðungi 2011 skýrir að mestu lakari afkomu en 2010
  • Eldsneytisverð 28% hærra en á 4. ársfjórðungi 2010
  • Hagnaður ársins 2011 4,5 milljarðar króna
  • Veltufé frá rekstri 12,5 milljarðar króna
  • Fjárhagsleg staða Icelandair Group sterk
  • Eiginfjárhlutfall 36% og nettó vaxtaberandi skuldir 11,1 milljarður króna
  • Stjórn félagsins leggur til að 0,8 milljarðar króna verði greiddir í arð til hluthafa á árinu 2012

 

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri:

„EBITDA Icelandair Group á fjórða ársfjórðungi var neikvæð um 0,1 milljarð króna en var jákvæð um 1,1 milljarð króna á fjórða ársfjórðungi 2010. Hátt eldsneytisverð leiddi til mikilla kostnaðarhækkana í fjórðungnum sem skýrir lakari afkomu á milli ára. Varðandi árið í heild þá erum við mjög sátt við niðurstöðuna, hagnað að fjárhæð 4,5 milljarð króna, sérstaklega í ljósi neikvæðra áhrifa hækkana á eldsneytisverði, eldgoss í Grímsvötnum og verkfallsaðgerða. Fjárhagsleg staða félagsins er sterk, eiginfjárhlutfallið er 36% og handbært fé og markaðsverðbréf nema 13,1 milljörðum króna í árslok. Ég vil þakka reynslumiklu og metnaðarfullu starfsfólki okkar fyrir þennan árangur.

Mikill innri vöxtur einkenndi árið 2011. Við gerum ráð fyrir að auka umsvif okkar enn á árinu 2012. Icelandair verður með umsvifamestu flugáætlun sína frá upphafi og bókanir fyrir fyrstu mánuði ársins 2012 lofa góðu. Icelandair Hotels opnar nýtt hótel við Reykjavíkurhöfn á vormánuðum auk þess sem Flugfélag Íslands mun halda áfram að auka framboð flugferða til Grænlands.

Á fyrri hluta ársins bætast tvær nýjar flugvélar í flota Icelandair og fylgir því nokkur innleiðingarkostnaður. Jafnframt er olíuverð hærra en á síðasta ári og gengi evru gagnvart dollar óhagstæðara og sjáum við fram á að afkoman á fyrsta ársfjórðungi 2012 verði nokkru lakari en á síðasta ári. Samkvæmt áætlunum félagsins fyrir árið 2012 í heild gerum við ráð fyrir að EBITDA verði
11,0–12,0 milljarðar króna, sem er aukning frá fyrra ári þegar EBITDA var 10,4 milljarðar króna.“

 

Frekari upplýsingar veita:

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, sími: 896-1455
Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group, sími: 665-8801 


Frettatilkynning_Q4_2011.pdf
Icelandair Group hf 31 12 2011.pdf