English Icelandic
Birt: 2012-02-06 09:59:31 CET
Icelandair Group hf.
Fyrirtækjafréttir

Icelandair Group hf. selur dótturfélagið SmartLynx í Lettlandi

Síðan fjárhagslegri endurskipulagningu Icelandair Group hf. lauk þá hefur staðið til að selja dótturfélag þess, SmartLynx í Lettlandi. Í lok árs 2011 var gengið frá samningi við stjórnendur SmartLynx um kaup á öllu hlutafé félagsins.  Í samningnum voru nokkrir fyrirvarar sem nú hafa verið uppfylltir. 

Salan er bókfærð á árinu 2011 og hefur jákvæð áhrif á afkomu Icelandair Group að fjárhæð 1,1 milljarð króna, þar af eru tekjuskattsáhrif jákvæð um 700 milljónir króna.  Áhrif á eigið fé eru óveruleg.

Eftir söluna er Icelandair Group enn í ábyrgð fyrir leigugreiðslum á tveimur Airbus 320 vélum en ábyrgðin rennur út í apríl 2012.  Jafnframt er Icelandair Group í ábyrgð vegna leigu á tveimur Boeing 767 vélum og renna þeir leigusamningar út í lok árs 2012.  Allar þessar flugvélar eru reknar á flugrekstrarskírteini SmartLynx.

Frekari upplýsingar veita:

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri, sími: + 354 896-1455

Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála, sími: +354 665-8801