English Icelandic
Birt: 2012-02-03 17:27:54 CET
Icelandair Group hf.
Fyrirtækjafréttir

Icelandair Group skoðar mögulega viðbótarskráningu í kauphöllina í Osló ásamt því að breyta uppgjörsmynt í Bandaríkjadollar

Í febrúar 2011 var tilkynnt um þá ákvörðun stjórnar Icelandair Group hf. að kanna skráningu félagsins í aðra kauphöll til viðbótar við núverandi skráningu hjá Nasdaq OMX á Íslandi.  Í september síðastliðnum var ferlinu frestað vegna krefjandi aðstæðna á alþjóðlegum fjármálamörkuðum.  Stjórn Icelandair Group hefur nú ákveðið að endurvekja ferlið og skoðar nú mögulega viðbótarskráningu í kauphöllina í Osló.

Af þessu tilefni hefur Icelandair Group ráðið útibú Skandinaviska Enskilda Banken AB í Osló ásamt Íslandsbanka hf. til að vera umsjónaraðilar í skráningarferlinu. 

Meirihluti kostnaðar og efnahagsreiknings Icelandair Group er í Bandaríkjadollar.  Af þessum sökum mun félagið frá og með 1. ársfjórðungi ársins 2012 breyta um uppgjörsmynt og birta reikninga sína í Bandaríkjadollar. 

 

Nánari upplýsingar veita:

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri, gsm: 896 1455

Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála, gsm: 665 8801