Icelandic
Birt: 2011-10-27 20:00:00 CEST
Embla Medical hf
Reikningsskil
Össur - uppgjör þriðja ársfjórðungs 2011
                                     Fréttatilkynning frá Össuri hf. nr.
11/2011
                                                     Reykjavík, 27.
október 2011

GÓÐUR SÖLUVÖXTUR


Sala  -  Söluvöxtur  á  þriðja  ársfjórðungi 
var 12%, mælt í staðbundinni mynt.
Heildarsalan  nam 101 milljón Bandaríkjadala
samanborið  við 87 milljónir dala á
þriðja  ársfjórðungi  2010. Öll  landsvæði 
og  vörumarkaðir sýndu vöxt á þessum
ársfjórðungi.  Sala á spelkum  og
stuðningsvörum var  sérstaklega góð og skilaði
17% söluvexti,  mælt í
staðbundinni mynt.  Söluvöxtur í stoðtækjum var jafnframt
góður eða 7%, mælt í
staðbundinni mynt.

Arðsemi  - Arðsemi  Össurar er  áfram góð  og jókst 
hagnaður félagsins um 165%
samanborið við þriðja ársfjórðung 2010. EBITDA nam
21 milljón Bandaríkjadala eða
21% af  sölu. Framlegð nam 64 milljónum dala eða
63% af sölu og hagnaður nam 11
milljónum dala eða 11% af sölu.

Jón Sigurðsson,
forstjóri:
"Salan  á þriðja ársfjórðungi var mjög góð  og við erum ánægð með
frammistöðuna,
enda  sýndu öll landsvæði og vörumarkaðir vöxt.  Gott og stöðugt
framboð á nýjum
vörum  er mikilvægt fyrir vöxt félagsins og þær  vörur sem komu
á markað á þessu
ári  og  því  síðasta  áttu  stóran  þátt  í þessari
velgengni. Á ársfjórðungnum
kynntum  við enn eina vöruna í Bionic  vörulínu
félagsins, SYMBIONIC LEG, sem er
sú  fyrsta sinnar  tegundar í  heiminum. Varan
 sameinar eiginleika RHEO KNEE og
PROPRIO  FOOT og veitir  einstaka virkni
fyrir  þá sem eru  aflimaðir fyrir ofan
hné.  Þessi  nýja  viðbót  í  Bionic 
vörulínunni  staðfestir  forystu  okkar  í
rafeindastýrðum stoðtækjum með
gervigreind."


Helstu tíðindi á fjórðungnum:

  * SYMBIONIC LEG kynntur - Í
september var SYMBIONIC LEG kynntur á
    vörusýningunni AOPA í Bandaríkjunum.
SYMBIONIC LEG sameinar þekkta virkni
    frá RHEO KNEE og PROPRIO FOOT í eina
heildstæða lausn sem veitir einstaka
    virkni fyrir þá sem eru aflimaðir
fyrir ofan hné. Þessi byltingarkennda vara
    er sú fyrsta sinnar tegundar á
markaðnum.
  * Framleiðsla í Mexico - Verksmiðja Össurar í Mexíkó var formlega
opnuð í
    september. Össur hóf uppbyggingu á verksmiðjunni fyrir ári síðan og
hefur nú
    flutt framleiðslu á nokkrum vörulínum þangað frá Bandaríkjunum.
Verksmiðjan
    er með hágæða tækjabúnað, vel menntað starfsfólk og
viðurkennda
    framleiðsluferla.
  * Stöðugt framboð á nýjum vörum -  Á
fjórðungnum voru sex nýjar vörur kynntar,
    fjórar spelkur og stuðningsvörur
og tvær stoðtækjavörur. Framboð á nýjum
    vörum hefur verið stöðugt á þessu
ári og gott jafnvægi á milli nýrra vara og
    vara sem hafa verið
uppfærðar.


Áætlun  2011 -  Fyrir  árið  2011 gera  stjórnendur  ráð fyrir
innri söluvexti á
bilinu   4-6%, mælt   í   staðbundinni   mynt,  og  að 
EBITDA,  leiðrétt  fyrir
einskiptistekjum  og  -kostnaði,  verði  á  bilinu 
20-21% af veltu fyrir árið í
heild. Engar breytingar hafa orðið frá áður birtri
áætlun fyrir árið 2011.


Símafundur föstudaginn 28. október kl. 10:00

Á 
morgun, föstudaginn 28. október 2011, verður haldinn símafundur þar sem
farið
verður  yfir niðurstöður  þriðja ársfjórðungs.  Fundurinn hefst  kl.
10:00 GMT /
12:00 CET.   Á  fundinum  munu  þeir  Jón  Sigurðsson,  forstjóri,
og Hjörleifur
Pálsson,  fjármálastjóri, kynna afkomu félagsins  og svara
spurningum. Fundurinn
fer  fram á  ensku og  verður hægt  að fylgjast  með
honum  á netinu  á slóðinni
www.ossur.com/investors

Símanúmer til að taka þátt
í fundinum eru:
Evrópa: + 44 (0) 20 3043 2436 eða
+46(0)8 505 598
53
Bandaríkin: +1 866 458 40 87
Ísland: 800 8660

Nánari upplýsingar:

Jón
Sigurðsson, forstjóri                sími: 515-1300

Hjörleifur Pálsson,
fjármálastjóri       sími: 515-1300

Sigurborg Arnarsdóttir, fjárfestatengill
sími: 664-1044


Vinsamlega athugið að þetta yfirlit nær aðeins yfir helstu
þætti uppgjörsins.
Tilkynningu í fullri lengd á ensku er að finna
áwww.ossur.com/investors

[HUG#1558939]

 


Ossur Financial Statements 30.9.2011.pdf
Ossur Press Release Q3 2011 English.pdf
Q3 2011 Investor Presentation.pdf