English Icelandic
Birt: 2011-10-07 18:09:31 CEST
Icelandair Group hf.
Fyrirtækjafréttir

Flutningatölur september 2011

Icelandair flutti 168 þúsund farþega í september. Það er mesti farþegafjöldi í septembermánuði í sögu félagsins og jafngildir 15% aukningu frá síðasta ári. Sætaframboð Icelandair var aukið um 23% á tímabilinu og sætanýting nam 78,3% sem er yfir meðallagi í september. Sætanýting lækkaði um 3,7 prósentusig í samanburði við metsætanýtingu félagsins í september í fyrra. Farþegaaukning varð mest á ferðamannamarkaðnum til Íslands, eða um 24%. Sú aukning er í samræmi við stefnu félagsins að fjölga ferðamönnum til Íslands utan háannatíma.

Farþegar hjá Flugfélagi Íslands voru tæplega 30 þúsund í september og fjöldi þeirra jókst um 9% miðað við sama tíma í fyrra.  Sætanýting Flugfélagsins var 66,5% og lækkaði lítillega á milli ára.  Seldum tímum í leiguflugi fækkaði á milli ára um 11%. Frakt flutningar jukust um 4% miðað við september á síðasta ári. 

Framboð á gistinóttum hjá Flugleiðahótelunum jókst um 12% á milli ára og herbergjanýtingin var 80,6%.  Endurnýjað Icelandair Hotel Reykjavik Natura hefur fengið mjög góðar viðtökur og var septembermánuður metmánuður í sögu hótelsins.

 

ICELANDAIR SEP 11 CHG (%) YTD 11 CHG (%)
Number of Passengers (PAX) 168,013 15% 1,393,620 19%
Load Factor (%) 78.3% -3.7 ppt 79.6% 1.0 ppt
Available Seat KM (ASK´000) 611,970 23% 4,892,249 20%
         
AIR ICELAND SEP 11 CHG (%) YTD 11 CHG (%)
Number of Passengers (PAX) 29,984 9% 271,918 4%
Load Factor (%) 66.5% -0.3 ppt 69.8% 1.6 ppt
Available Seat KM (ASK´000) 16,257 16% 141,492 9%
         
CAPACITY SEP 11 CHG (%) YTD 11 CHG (%)
Fleet Utilization (%) 92.3% 5.2 ppt 92.3% -0.9 ppt
Sold Block Hours 2,703 -11% 26,603 3%
         
ICELANDAIR CARGO SEP 11 CHG (%) YTD 11 CHG (%)
Available Tonne KM (ATK´000) 15,929 26% 130,266 11%
Freight Tonne KM (FTK´000) 6,401 4% 55,691 2%
         
ICELANDAIR HOTELS SEP 11 CHG (%) YTD 11 CHG (%)
Available Hotel Room Nights 17,850 12% 198,852 6%
Sold Hotel Room Nights 14,385 26% 142,448 8%
Utilization of Hotel Rooms 80.6% 9.3 ppt 71.6% 1.6 ppt

 

Nánari upplýsingar veita:

Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010


Traffic Data_September2011.pdf