English Icelandic
Birt: 2011-10-04 19:02:15 CEST
Icelandair Group hf.
Fyrirtækjafréttir

Icelandair Group semur við Deutsche Bank um fjármögnun

Icelandair Group hefur gengið frá lántöku hjá Deutsche Bank. Lánsfjárhæðin nemur 18 milljónum bandaríkjadala. Lánið er veitt til sjö ára og Deutsche Bank tekur veð í tveimur flugvélum fyrirtækisins. Lánið er nýtt til endurfjármögnunar á óhagstæðari lánum sem hafa verið greidd upp.

Afborganir eru vísitölubundnar með hámarki og lágmarki. Kjörin fela því í sér ígildi breytilegra vaxta með vaxtaþaki og vaxtagólfi. Breytingar á undirliggjandi vísitölu hafa áhrif á afborgunarkjör innan fyrirfram skilgreindra marka. Deutsche Bank sér um rekstur og daglega skráningu vísitölunnar sem á sér rúmlega 20 ára sögu og er auðkennd á Bloomberg sem DBPPULSU INDEX.

Björgólfur Jóhannsson forstjóri félagsins: „Það er mikið ánægjuefni að hafa gengið frá samningum við Deutsche Bank, ekki síst í ljósi erfiðleika á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Við teljum að aðgengi Icelandair Group að erlendu fjármagni staðfesti að viðskiptalíkan félagsins er traust."

 

Frekari upplýsingar veita:

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, sími: 896-1455
Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group, sími: 665-8801