English Icelandic
Birt: 2011-09-14 10:42:23 CEST
Icelandair Group hf.
Fyrirtækjafréttir

Icelandair eykur umsvif á næsta ári

  • Eykur flug um 13% milli ára
  • Allt að 400 flug á viku – 10 þúsund farþegar á sólarhring
  • 2 milljónir farþega 2012
  • Áhersla á framboðsaukningu utan sumars
  • 52% vöxtur frá 2008  – 700 þúsund fleiri farþegar en 2009
  • Denver Colorado nýr áfangastaður

Flugáætlun Icelandair, dótturfélags Icelandair Group, fyrir árið 2012 er sú stærsta í sögu félagsins og um 13% umfangsmeiri en á þessu ári. Nýr heilsárs áfangastaður, Denver í Colorado, bætist við og ferðum er fjölgað til ýmissa borga í Bandaríkjunum og Evrópu. Gert er ráð fyrir að farþegar félagsins verði um 2 milljónir á árinu 2012, en samkvæmt áætlunum verða þeir 1,8 milljónir á árinu 2011.  Alls verða 16 Boeing 757 flugvélar nýttar til áætlunarflugsins næsta sumar, tveimur fleiri en á þessu ári. Flugvélar félagsins munu taka á loft allt að 400 sinnum á viku yfir sumarið og farþegafjöldinn mun verða um 10 þúsund manns á sólarhring þegar mest lætur.

Áætlanir Icelandair fyrir yfirstandandi ár eru að ganga eftir og markaðsrannsóknir gefa til kynna möguleika til arðbærs vaxtar á næsta ári. Stefna félagsins er að auka ferðamannastraum til Íslands utan háannatímans og það hafði áhrif á þá ákvörðun að hefja flug til og frá Denver í Colorado allt árið um kring, en þar er sterkur vetrarmarkaður meðal annars vegna skíðaferðalaga.

Mikill vöxtur hefur verið í starfsemi Icelandair á undanförnum árum í samræmi við stefnumótun Icelandair Group í ársbyrjun 2009 eftir samdrátt vegna efnahagskreppunnar. Frá 2009 til 2012 er vöxturinn í áætlunarflugi Icelandair um 52% og farþegum fjölgar úr 1,3 milljónum í 2 milljónir á næsta ári. Í ár er aukningin um 17% frá síðasta ári og vöxturinn er áætlaður um 13% á því næsta og hlutfallslega meiri að vetri en sumri. Vetraráætlun 2012-2013 verður stærri en sumaráætlun Icelandair var fyrir tveimur árum.

Auk fjögurra vikulegra ferða til nýja áfangastaðarins, Denver í Colorado, mun Icelandair fjölga ferðum til Washington og Seattle í Bandaríkjunum, til allra höfuðborga Norðurlandanna og Þrándheims, Stavanger og Bergen í Noregi, til Billund í Danmörku, til Munchen, Amsterdam, Brussel og Parísar á meginlandi Evrópu og til Manchester og Glasgow á Bretlandseyjum. Alls verða áfangastaðirnir 31 á næsta ári.

Icelandair byggir leiðakerfi sitt á staðsetningu landsins mitt á milli Norður-Evrópu og Norður-Ameríku. Með leiðakerfinu er Icelandair unnt að þjóna þremur mörkuðum; heimamarkaðinum á Íslandi, ferðamannamarkaðinum til Íslands og alþjóðlega markaðinum milli Evrópu og Norður-Ameríku. Um 20% vöxtur er á ferðamannamarkaðinum til Íslands í ár. Ferðir Íslendinga til útlanda hafa vaxið jafnt og þétt frá 2008 og gert er ráð fyrir að sú þróun muni halda áfram. Þá hefur Icelandair náð mjög góðum árangri á þessu ári, líkt og í fyrra, á þriðja markaðinum sem félagið starfar á, þ.e. á  Norður-Atlantshafsmarkaðinum og þar eru tækifæri til að styrkja markaðsstöðu Icelandair enn frekar á næsta ári með nýjum áfangastað og aukinni tíðni.

Vegna mikillar samvinnu Icelandair við önnur dótturfélög Icelandair Group þá mun vöxtur hjá Icelandair jafnframt koma fram í veltuaukningu þeirra. Þannig skapar vöxturinn meiri tíðni fyrir viðskiptavini Icelandair Cargo og aukið umfang á Keflavíkurflugvelli mun skila sér í meiri veltu hjá Icelandair Ground Services. Vöxturinn skapar einnig aukin tækifæri fyrir önnur félög innan samstæðunnar. Stækkun leiðarkerfis Icelandair er í takt við þá stefnu sem mörkuð var hjá Icelandair Group að byggja vöxt samstæðunnar innan frá. 

 

Nánari upplýsingar veita:

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, sími 896-1455

Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group, sími 665-8801