English Icelandic
Birt: 2011-09-05 14:16:59 CEST
Icelandair Group hf.
Fyrirtækjafréttir

Icelandair Group hf. gerir samning um viðskiptavakt við MP Banka

Icelandair Group hf (ICEAIR) hefur gert samning við MP Banka um viðskiptavakt á útgefnum hlutabréfum félagsins sem skráð eru í NASDAQ OMX Nordic. Samningurinn tekur gildi frá og með 6. september 2011 og er hann ótímabundinn en uppsegjanlegur með eins mánaðar fyrirvara. Tilgangur samningsins er að efla viðskipti með hlutabréf ICEAIR í NASDAQ OMX Nordic í því skyni að markaðsverð skapist á hlutabréfunum og verðmyndun verði með skilvirkum og gagnsæjum hætti.
 

MP Banki mun daglega setja fram, í eigin reikning, kaup- og sölutilboð í hlutafé ICEAIR, að lágmarki kr. 2.000.000 að nafnvirði á gengi sem MP Banki ákveður í hvert skipti. Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal ekki vera meiri en 1,5% og frávik frá síðasta viðskiptaverði ekki meira en 3%. Breytist verð ICEAIR innan dagsins um meira en 10% er MP Banka heimilt að tvöfalda hámarks mun á kaup- og sölutilboðum það sem eftir er dagsins. Tilboðin skulu endurnýjuð innan 10 mínútna eftir að þeim er tekið að fullu. Hámarksfjárhæð viðskipta dag hvern sem MP Banki er skuldbundinn til að kaupa eða selja skal vera kr. 80.000.000, að markaðsvirði.