English Icelandic
Birt: 2011-09-01 20:26:47 CEST
Icelandair Group hf.
Fyrirtækjafréttir

Arðgreiðslustefna og möguleg tvískráning

Stjórn Icelandair Group hf. hefur samþykkt eftirfarandi arðgreiðslustefnu: „Markmið Icelandair Group hf. er að greiða um 20-40% hagnaðar hvers árs sem arð. Endanleg arðgreiðsla hvers árs mun ráðast af fjárhagslegri stöðu félagsins, fjárfestingaþörf og markaðsaðstæðum.“

Vegna aðstæðna á alþjóðlegum fjármálamörkuðum hefur stjórnin jafnframt ákveðið að fresta endanlegri ákvörðun um mögulega skráningu félagsins, í annarri norræni kauphöll, þangað til á næsta ári.