English Icelandic
Birt: 2011-06-03 18:03:14 CEST
Icelandair Group hf.
Fyrirtækjafréttir

Breytingar á framkvæmdastjórn Icelandair Group

Síðan Sigþór Einarsson, fyrrum aðstoðarforstjóri Icelandair Group hf., lét af störfum hafa forstjóri og framkvæmdastjóri fjármála einir skipað framkvæmdastjórn Icelandair Group hf.  Nú hafa tveir aðilar bæst við framkvæmdastjórnina og er hún því skipuð eftirfarandi:

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group hf., hefur verið forstjóri samstæðunnar frá því í ársbyrjun 2008.

Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group hf., hefur verið framkvæmdastjóri fjármála frá því í október 2008.

Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair ehf., hefur starfað hjá Icelandair síðan 2000 og sem framkvæmdastjóri síðan í maí 2008.

Magnea Þórey Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Flugleiðahótela ehf., hefur starfað hjá Flugleiðahótelum síðan 1994 og sem framkvæmdastjóri síðan 2005.