Icelandic
Birt: 2011-05-31 10:45:26 CEST
Spölur ehf.
Reikningsskil

Árshlutauppgjör 1. október 2010 til 31. mars 2011

• Hagnaður Spalar ehf eftir skatta fyrir rekstarárið 1. október 2010 til 31. mars 2011 nam kr. 37,1 m.kr. en tap á tímabilinu 1. október 2009 til 31. mars 2010 nam 40,6 m.kr. Hagnaður Spalar ehf eftir skatta á öðrum ársfjórðungi félagsins sem er 1. janúar 2011 til 31. mars 2011 nam 22,4 m.kr. Á sama tíma árið á undan nam hagnaður félagsins 13,5 m.kr.

• Greiðsluflæðið gefur hins vegar betri mynd af gangi félagsins þar sem verðbætur vegna vísitöluhækkana lána dreifast til greiðslu fram til loka lánstímans, þ.e. 2018. Greiðslugeta félagsins undanfarin 5 ár hefur verið sterk. Í lok september 2010 voru 575 m.kr (2009: 570) greiddar í afborganir og vexti á rekstrarárinu og nauðsynlegt umframfjármagn var að auki til staðar 30. september 2010 eins og lánasamningar gera ráð fyrir.

• Veggjald nam 375 m.kr. fyrstu 6 mánuði ársins til samanburðar við 356 m.kr. árið áður sem er 5,3% hækkun.

• Rekstrarkostnaður Spalar ehf án afskrifta fyrstu 6 mánuði ársins nam 145 m.kr. og lækkar um tæpar 2 m.kr frá árinu áður þegar hann nam 147 m.kr.

• Afskriftir á tímabilinu námu samtals 59 m.kr. Samanborið við 57 m.kr. frá árinu áður.

• Vaxtagjöld, verðbætur og gengismunur lækka á milli tímabila um 90 m. kr.

• Skuldir Spalar ehf hækka úr 4.230 m.kr. þann 30. september 2010 í 4.368 m.kr. þann 31. mars 2011.

• Á árinu 2010 veitti Ársreikningaskrá Speli ehf heimild til að breyta reikningsári sínu á þann hátt að árslok hvers uppgjörsárs miðast nú við 31. desember ár hvert í stað 30. september eins og verið hefur. Vegna þessara breytinga mun reikningsár Spalar ehf á árinu 2011 ná yfir 15 mánaða tímabil eða frá 1. október 2010 fram til 31. desember 2011.

• Spölur ehf er að fullu í eigu Eignarhaldsfélagsins Spalar hf.

Um uppgjörið

Gylfi Þórðarson, framkæmdastjóri Spalar, segir að umferð og tekjur séu að mestu leyti í samræmi við áætlanir þessa fyrstu 6 mánuði rekstrarársins. Talsverður samdráttur hefur orðið í umferð og þar með tekjum undanfarna 3 mánuði miðað við áætlanir og síðasta ár. Nokkuð ljóst er að núverandi rekstrarár verður lakara en áætlanir gerðu ráð fyrir að öllu óbreyttu.

Sjá viðhengi.


Frettatilkynning fra Speli ehf 31 03 2011 dags 30_5_2011.pdf
spolurarsrehf 032011 IFRS ISK 30.05.11.pdf