Icelandic
Birt: 2011-04-29 18:18:52 CEST
Origo hf.
Reikningsskil

Uppgjör Nýherja hf. fyrir fyrsta ársfjórðung 2011

Helstu niðurstöður fyrir fyrsta ársfjórðung 2011

 

  • EBITDA var 160 mkr á fyrsta ársfjórðungi 2011, en var 35 mkr á sama tímabili árið á undan.
     
  • Heildarhagnaður nam 64 mkr en 130 mkr tap var á fyrsta ársfjórðungi 2010.
     
  • Ágæt afkoma var af rekstri erlendra dótturfélaga og batnaði EBITDA þeirra um 52 mkr milli ára.
     
  • Nýtt skipulag fyrir innlenda starfsemi Nýherjasamstæðunnar tók gildi 1. apríl 2011.  
     
  • Mikil eftirspurn er eftir hugbúnaðarráðgjöf og góð verkefnastaða hugbúnaðarráðgjafa.

 

Þórður Sverrisson, forstjóri:

„Starfsemi Nýherja gekk vel í fyrsta ársfjórðungi og var rekstur og afkoma í meginatriðum samkvæmt áætlun og nam EBITDA 160 mkr á tímabilinu. Afkoma erlendrar starfsemi var ágæt og nam EBITDA 55 mkr samanborið við 3 mkr á síðasta ári.

Með breytingum á skipulagi innlendrar starfsemi, sem tók gildi 1. apríl síðastliðinn, skapast tækifæri til að ná auknum slagkrafti í rekstri samstæðunnar með færri og sterkari einingum, þannig að mæta megi betur síbreytilegum þörfum viðskiptavina okkar.”


frettatilkynning Uppgjor Nyherja hf fyrir fyrsta arsfjorung - 29 april 2011.pdf
Nyherji hf arshlutareikningur 31 3 2011.pdf
Nyherji lykiltolur 31 3 2011.pdf