English Icelandic
Birt: 2011-04-29 17:02:18 CEST
Farice ehf.
Reikningsskil

Ársreikningur Farice fyrir árið 2010

Ársreikningur Farice ehf 2010, helstu niðurstöður.
(Fjárhæðir eru í evrum)

  • Rekstrartekjur voru 6,7 milljónir (2009: 5,8 milljónir)
     
  • Rekstrar- og stjórnunarkostnaður nam 5,8 milljónum (2009: 4,5 milljónir)
     
  • Tap ársins nam 17 milljónum  ( 2009: 14,6 milljónir)

 

Helstu atriði

Á árinu 2010 stóð yfir fjárhagsleg endurskipulagning Eignarhaldsfélagsins Farice ehf og dótturfélagsins Farice hf, í samvinnu við lánardrottna og hluthafa félaganna. Á hluthafafundum sem haldnir voru í félögunum í desember 2010 var samruni félaganna samþykktur. Ennfremur var samþykkt veruleg aukning hlutafjár í hinu sameinaða félagi, eftir að hlutafé hafði verið lækkað til að mæta uppsöfnuðu tapi. Þá var nafni sameinaða félagsins breytt í Farice ehf.

 

Rekstrarumhverfi og fjárhagur

Endurskipulagður fjárhagur Farice ehf á að tryggja að félagið geti staðið undir heilbrigðum rekstri og mætt þeim rekstri sem áætlaður er að verði á næstu árum. Tekjur félagsins eru annars vegar af viðskiptasamningum við almenn fjarskiptafélög og hins vegar af samningum við gagnaveraiðnaðinn. Árleg aukning fjarskiptaumferðar almennra fjarskiptafélaga er veruleg, en í áætlunum félagsins er þó gert ráð fyrir að meginvöxturinn verði á sviði þjónustu við gagnaver og skyldan iðnað. Þá skipta nýir samningar við lánardrottna um endurgreiðslur langtímalána afar miklu máli hvað varðar framtíð Farice ehf.

 

Frekari upplýsingar veitir:

Guðmundur Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Sími:  893 4840
Netfang: gg@farice.is

 

 


Farice ehf arsreikningur 2010.pdf