English Icelandic
Birt: 2011-04-27 16:05:13 CEST
Marel hf.
Reikningsskil

Marel kynnir afkomu fyrsta ársfjórðungs 2011

Árið byrjar vel hjá Marel

  • Tekjur fyrsta ársfjórðungs 2011 námu 153,5 milljónum evra, sem er 19,1% aukning samanborið við tekjur af kjarnastarfsemi á fyrsta ársfjórðungi 2010 [Q1 2010: 128,9 milljónir evra].[1]
  • EBITDA var 23,3 milljónir evra, sem er 15,2% af tekjum [Q1 2010: 20,9 milljónir evra af kjarnastarfsemi].
  • Rekstrarhagnaður (EBIT) var 17,1 milljón evra, sem er 11,2% af tekjum [Q1 2010: 15,1 milljón evra af kjarnastarfsemi].
  • Hagnaður nam 8,8 milljónum evra á fyrsta ársfjórðungi 2011 [Q1 2010: 5,6 milljónir evra af heildarstarfsemi].
  • Sjóðstreymi er sterkt og nettó vaxtaberandi skuldir nema 247,6 milljónum evra í lok fyrsta ársfjórðungs 2011 [Q1 2010: 286,3 milljónir evra].
  • Pantanabók heldur áfram að styrkjast í takt við stöðugt framboð nýrra vara og hagstæðar markaðsaðstæður. Fyrirliggjandi pantanir námu 169,3 milljónum evra í lok fyrsta ársfjórðungs 2011 [Q1 2010: 113,5 milljónir evra af kjarnastarfsemi].

Fyrsti ársfjórðungur 2011 var góður hjá Marel. Tekjur námu 153,5 milljónum evra, sem er 19% aukning samanborið við sama tímabil fyrir ári. Enn á ný náði fyrirtækið markmiði sínu um rekstrarhagnað upp á 10-12% af veltu. Þá voru nýjar pantanir fleiri en afgreiddar pantanir. Fyrir vikið hélt pantanabókin áfram að styrkjast og nam hún 169,3 milljónum evra í lok fyrsta ársfjórðungs, samanborið við 162,2 milljónir evra í lok ársfjórðungsins á undan og 113,5 milljónir evra á sama tíma fyrir ári.

 

Theo Hoen, forstjóri:

 „Árið fer vel af stað og við erum ánægð með afkomu fyrsta ársfjórðungs. Það er góður vöxtur hjá okkur miðað við sama tímabil fyrir ári, hagnaður hefur aukist og það er gott jafnvægi milli þeirra fjögurra geira sem við sérhæfum okkur í. Enn á ný náðum við langtímamarkmiði okkar um rekstrarhagnað upp á 10-12% af veltu.

Pantanastaðan er áfram góð og virði fyrirliggjandi pantana aldrei verið hærra. Stórar pantanir berast nú jafnt og þétt og sala staðlaðra lausna er stöðug. Við njótum enn góðs af því að hafa á undanförnum tveimur árum fjárfest af sama krafti og áður í nýsköpun og vöruþróun. Sú velgengni sem nýja IBS 4600 beikonskurðarvélin okkar naut í Bandaríkjunum á fyrsta ársfjórðungi er skýrt dæmi um það.[2]

Akoman á fyrsta ársfjórðungi og vaxandi pantanabók gefa góð fyrirheit fyrir árið í heild.“

 

Pantanabók vex enn

Marel nýtur áfram góðs af sterkri markaðsstöðu og stöðugu framboði nýrra vara. Nýjar pantanir, að meðtöldum þjónustutekjum, námu 160,7 milljónum evra á fyrsta ársfjórðungi 2011, samanborið við 135 milljónir á sama tímabili fyrir ári. Sem fyrr voru nýjar pantanir fleiri en afgreiddar pantanir, enda er fjöldi stórra pantana sambærilegur við það sem hann var fyrir fjármálakreppuna. Pantanabókin heldur þar af leiðandi áfram að vaxa og hefur aldrei verið stærri. Virði pantana nam 169,3 milljónum evra í lok fyrsta ársfjórðungs 2011 samanborið við 113,5 milljónir evra á sama tíma fyrir ári.

Handbært fé frá rekstri er áfram traust og nemur 14,1 milljón evra á fyrsta ársfjórðungi, fyrir fjármagnsliði og skatta. Efnahagsreikningurinn er sterkur og eru nettó skuldir félagsins nú 247,6 milljónir evra samanborið við 286,3 milljónir í lok fyrsta ársfjórðungs 2010.

 

Horfur

Markaðsaðstæður hafa áfram batnað. Marel hefur styrkt markaðsstöðu sína enn frekar og sterk pantanabók gefur góð fyrirheit um framhaldið á komandi mánuðum. Engu að síður má gera ráð fyrir að afkoman verði breytileg milli ársfjórðunga vegna sveiflna í pöntunum og tímasetningu stærri verkefna.

 

Kynningarfundur 28. apríl 2011

Marel boðar til kynningarfundar um afkomu félagsins fimmtudaginn 28. apríl kl. 8:30 í húsnæði félagsins að Austurhrauni 9, Garðabær. Fundinum verður einnig netvarpað: www.marel.com/webcast

 

Birtingardagar fyrir reikningsárið 2011 og aðalfundur 2012

  • 2. ársfjórðungur 2011                                                         27. júlí 2011
  • 3. ársfjórðungur 2011                                                         26. október 2011
  • 4. ársfjórðungur 2011                                                         1. febrúar 2012
  • Aðalfundur Marel hf.                                                          29. febrúar 2012

 

Frekari upplýsingar veita:

Jón Ingi Herbertsson, fjárfesta- og almannatengsl. Sími: 563-8451

Erik Kaman, fjármálastjóri. Sími: 563-8072

Sigsteinn Grétarsson, forstjóri Marel ehf. Sími: 563-8072

 

Um Marel

Marel er í hópi stærstu útflutningsfyrirtækja Íslands og er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu á háþróuðum búnaði og kerfum til vinnslu á fiski, kjöti og kjúklingi. Fyrirtækið starfrækir skrifstofur og dótturfyrirtæki í meira en 30 löndum, auk 100 umboðsmanna og dreifingaraðila.

Athygli fjárfesta er vakin á eftirfarandi:

Sumar staðhæfingar í þessari fréttatilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna við birtingu hennar. Í eðli sínu fela slíkar staðhæfingar því í sér óvissu. Við vekjum þess vegna athygli fjárfesta á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstraumhverfi og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í þessari tilkynningu. Tilkynningin verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar.

 

 

 

[1] Sölu helstu eigna félagsins utan kjarnastarfsemi var lokið á fyrsta ársfjórðungi 2010 þegar Carnitech A/S og Food & Dairy Systems voru seld. Afkomutölur frá Carnitech A/S eru taldar með í heildarafkoma ársins 2010 fram til 1. febrúar 2010 og tölur frá Food & Dairy Systems til 31. mars 2010. Þegar afkoma fyrsta ársfjórðungs 2011 er borin saman við árið á undan er þess vegna gagnlegra að miða við afkomu af kjarnastarfsemi árið 2010 en heildarafkomu.

 

[2] IBS 4600 er fyrsta beikonskurðarvélin á markaðnum sem útbúin er fjórum sjálfstæðum innmötunarbrautum. Hver braut er með eigið tölvusjónkerfi sem mælir fitumagn í hverju stykki þegar það er sneitt og er þykkt sneiðanna ákvörðuð út frá fitumagni. Sneiðarnar eru síðan sendar áfram í örbylgjueldunartæki.

 

 

 


Consolidated financial statements Q1 2011.pdf
Frettatilkynning Q1 2011.pdf