Icelandic
Birt: 2011-03-24 17:37:03 CET
Landsvaki
Reikningsskil

Landsvaki hf. - Reikningsskil 2010

Stjórn Landsvaka hf., sem rekur verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóði Landsbankans, hefur staðfest ársreikning félagsins fyrir árið 2010. Í lok ársins 2010 annaðist Landsvaki hf. rekstur 21 sjóða um sameiginlega fjárfestingu en á árinu voru stofnaðir 2 nýir sjóðir og 2 sjóðum var slitið.  Í árslok nam heildarstærð sjóða í rekstri Landsvaka 53,4 milljörðum króna samanborið við 44 milljarða í árslok 2009.

Lykiltölur í þúsundum króna: Sjá viðhengi.

  • Ársreikningi félagsins er skipt í tvo hluta, A-hluta sem inniheldur ársreikning rekstrarfélagsins og B-hluta sem inniheldur ársreikning verðbréfa-, fjárfestinga- og fagfjárfestasjóða.  Þessi framsetning á reikningnum er í samræmi við reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar voru af Fjármálaeftirlitinu. 
     
  • Ársreikningurinn hefur verið endurskoðaður af KPMG sem telur að reikningurinn gefi glögga mynd af afkomu félagsins og sjóðanna á árinu 2010, efnahag þess 31. desember 2010 og breytingu á handbæru fé og hreinni eign sjóðanna á árinu 2010, í samræmi við lög og settar reikningsskilareglur.

Bæði skuldabréfa- og hlutabréfamarkaðir eru enn verulega laskaðir eftir áföll fjármálakreppunnar og mikið vantar enn upp á skilvirkni og dýpt. Þróun þessara markaða hefur mikil áhrif á rekstur sjóða Landsvaka auk þess sem vaxtalækkanir, minnkandi verðbólga og almenn efnahagsþróun hefur áhrif á stöðu félagsins.

Eftir að heildareignir í stýringu minnkuðu verulega í kjölfar falls bankanna í byrjun október 2008 hafa aðstæður breyst til batnaðar. Þróunin á árinu 2010 var sjóðum Landsvaka tiltölulega hagstæð og jukust eignir i stýringu um 23%.  Stærð skuldabréfasjóða jókst þannig um 100% og stærð innlendra hlutabréfasjóða jókst um 148%.  Markaðshlutdeild félagsins jókst á árinu og ávöxtun sjóða félagsins var einnig vel ásættanleg miðað við hefðbundin viðmið.

Tap var af rekstri félagsins á árinu að fjárhæð 13 milljónir króna samkvæmt rekstrarreikningi félagsins.  Eigið fé Landsvaka hf. í lok ársins nam 310 milljónum króna samkvæmt efnahagsreikningi.  Eiginfjárhlutfall félagsins, sem reiknað er samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, var 83% en þetta hlutfall má ekki vera lægra en 8% samkvæmt lögum.

 

Nánari upplýsingar um ársreikning Landsvaka hf. veitir Ari Skúlason, framkvæmdastjóri Landsvaka í síma 410 7406.


Arsskyrsla Landsvaka 2010.pdf
Lykiltolur Landsvaka 31_12_10.pdf