English Icelandic
Birt: 2011-03-18 19:16:40 CET
Icelandair Group hf.
Niðurstöður hluthafafunda

Aðalfundur 2011

ICELANDAIR GROUP HF. – AÐALFUNDUR 18. MARS 2011

Eftirfarandi tillögur voru samþykktar á fundinum:

Tillögur

a. Ársreikningur (liður 2)

Stjórn Icelandair Group hf. leggur til við aðalfund félagsins að ársreikningur fyrir árið 2010 verði samþykktur.

b. Arður (liður 2)

Stjórn Icelandair Group hf. leggur til við aðalfund félagsins að ekki verði greiddur arður vegna rekstrarársins 2010.

c. Þóknun til stjórnarmanna (liður 3)

Stjórn Icelandair Group hf. leggur til við aðalfund félagsins að þóknanir til stjórnarmanna verði óbreyttar: Stjórnarmenn fái 160 þúsund krónur á mánuði, formaður fái 320 þúsund krónur á mánuði og varamenn fái 80 þúsund krónur fyrir hvern setinn fund. Þó fái varamenn aldrei hærri laun mánaðarlega en stjórnarmenn.

d. Starfskjarastefna (liður 4)

Stjórn Icelandair Group hf. leggur til við aðalfund félagsins að meðfylgjandi starfskjarastefna, sem er óbreytt frá síðasta fundi, verði samþykkt.

e. Endurskoðandi (liður 6)

Stjórn Icelandair Group hf. leggur til við aðalfund félagsins að KPMG hf. verði endurskoðunarfyrirtæki félagsins, en að Alexander Eðvardsson og Guðný Helga Guðmundsdóttir muni annast endurskoðunina f..h. KPMG.

f. Heimild til kaupa á eigin bréfum (liður 7)

Stjórn Icelandair Group hf. leggur til við aðalfund félagsins að félaginu verði heimilt að kaupa allt að 10% af eigin bréfum, skv. 55. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Verð bréfanna skal miðað við síðasta skráða dagslokagengi á markaði áður en samningur var gerður.

Á fundinum voru eftirtaldir aðilar kjörnir í stjórn og varastjórn félagsins:

Aðalastjórn

Finnbogi Jónsson, kennitala: 180150-2429
Herdís Dröfn Fjeldsted, kennitala: 210971-4329
Katrín Olga Jóhannesdóttir, kennitala: 010862-7369
Sigurður Helgason, kennitala: 010546-2069
Úlfar Steindórsson, kennitala: 030756-2829 

Varastjórn

Anna Guðný Aradóttir, kennitala: 110156-7669
Auður Björk Guðmundsdóttir, 150866-4059
Magnús Magnússon, kennitala: 160965-4799

Á fundi stjórnar að loknum aðalfundi var Sigurður Helgason kjörinn formaður og Finnbogi Jónsson, varaformaður

Stjórnin


Icelandair Group hf_remuneration_policy.pdf