English Icelandic
Birt: 2011-03-18 14:51:08 CET
Landsvirkjun
Reikningsskil

Ársreikningur Landsvirkjunar árið 2010

Gott sjóðstreymi

  • Rekstrartekjur námu 377,6 milljónum USD (43,4 ma.kr.) sem er 10,3% aukning á milli ára.
     
  • EBITDA nam 298,1 milljón USD (34,3 ma.kr.) að teknu tilliti til innleystra áhættuvarna tengdum álverði. EBITDA hlutfall er 78,9% af veltu.
     
  • Handbært fé frá rekstri nam 229,6 milljónum USD (26,4 ma.kr.), en var 197,0 milljónir USD árið áður sem er 16,5% aukning.
     
  • Hagnaður eftir skatta nam 72,9 milljónum USD (8,4 ma.kr.), en var 192,9 milljónir USD árið áður.
     
  • Meðal raforkuverð til stóriðju var 25,7 USD/MWst en var 19,5 USD/MWst árið áður. Meðal raforkuverð í heildsölu var 3,4 kr/kWst en var 3,2 kr/kWst árið áður.
     
  • Nettó vaxtaberandi skuldir félagsins lækkuðu um 149,9 milljónir USD á árinu og voru í árslok 2.674 milljónir USD.
     
  • Lausafjárstaða Landsvirkjunar er sterk og hafði fyrirtækið um áramót aðgang að 573,2 milljónum USD eða sem nemur 65,9 ma.kr.

 

Hörður Arnarson, forstjóri:

„Við erum mjög sátt við þetta uppgjör. Landsvirkjun hefur verið að auka áherslu á að hámarka langtímaarðsemi orkunýtingar og ber ársreikningurinn merki þess.  Nýr samningur við Alcan á Íslandi hf. var ákveðinn áfangi á þeirri leið þar sem verðþróun raforku á Íslandi var tengd þróun raforkuverðs á alþjóðlegum mörkuðum og álverðstenging afnumin.

Landsvirkjun hefur einnig lagt áherslu á að jafna áhættu í efnahagsreikningi sínum með því að greiða niður skuldir en jafnframt tryggja aðgengi að lausafé.  Árið  2010 var annað árið í röð þar sem fyrirtækið greiðir niður skuldir sínar og í árslok var aðgengi að lausu fé upp á 65,9 milljarða króna sem hefur aldrei verið hærra.   Á árinu 2011 verður áfram lögð áhersla á að lækka skuldir félagsins.

Horfur á árinu 2011 eru góðar og helgast af hagstæðu vaxtaumhverfi og viðunandi álverði. Þá hefur fyrirtækið mætt miklum áhuga, nýrra jafnt sem eldri, viðskiptavina á kaupum á raforku. Samningur við Íslenska Kísilfélagið ehf. sem undirritaður var í febrúar 2011 er til marks um það. Til að mæta  aukinni sölu þá hefur Landsvirkjun hafið framkvæmdir við Búðarhálsvirkjun og standa vonir til að fjármögnun hennar ljúki innan skamms.  Einnig áformar félagið fjárfestingar fyrir 1,5 milljarða króna í verkefni á Norðausturlandi á árinu.“

 


 

 

 

 

 


Arsreikningur LV 2010 samsta.pdf
LV Frettatilkynning 2010.pdf
tafla_2010.xls