English Icelandic
Birt: 2011-03-07 10:22:54 CET
Icelandair Group hf.
Fyrirtækjafréttir

Tjón vegna Dash 8 vélar

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum hlekktist annarri Dash 8 vélum Flugfélags Íslands ehf. (Flugfélagið), sem er dótturfélag Icelandair Group hf., á í lendingu í Nuuk á Grænlandi sl. föstudag. Tjón varð á skrokki vélarinnar og hreyflum, en gera má ráð fyrir að það sé töluvert. Flugfélagið er að fullu tryggt fyrir öllu tjóni, nema tjóni vegna tekjumissis sem leiðir af því að missa eina vél úr rekstri leiðakerfis Flugfélagsins næstu vikurnar. Ekki liggur fyrir hve mikið tjónið verður en það mun hafa óveruleg áhrif á rekstur Icelandair Group hf 

Frekari upplýsingar veitir

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri, 896 1455