-Fjárhagslegri endurskipulagningu lokið
Icelandair Group hf. (samstæðan) tilkynnti þann 31. janúar sl. að öll lokaskjöl milli samstæðunnar og lánveitenda hennar væru til staðar í samþykktu formi og aðeins væri beðið eftir samþykki Samkeppniseftirlitsins vegna sölu á eignum frá samstæðunni til félags í eigu lánveitendanna. Öll nauðsynleg samþykki liggja nú fyrir og öll skjöl sem tengjast fjárhagslegu endurskipulagningunni hafa verið undirrituð. Fjárhagslegri endurskipulagningu samstæðunnar er því nú að fullu lokið.
Frekari upplýsingar veita:
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Sími: 896 1455
Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Sími: 665 8801
|