English Icelandic
Birt: 2011-01-31 20:28:56 CET
Icelandair Group hf.
Fyrirtækjafréttir

Icelandair Group -Lokum fjárhagslegrar endurskipulagningar frestað

Icelandair Group hf. (samstæðan) tilkynnti þann 15. desember sl. að frágangi formsatriða vegna loka fjárhagslegrar endurskipulagningar yrði lokið fyrir lok janúar. Öll skjöl eru nú til staðar í samþykktu formi milli samstæðunnar og lánveitenda hennar. Aðeins er beðið eftir samþykki Samkeppniseftirlitsins sem nauðsynlegt er til að klára sölu á eignum til félags í eigu lánveitendanna. Gert er ráð fyrir að samþykkið liggi fyrir á næstu dögum og mun það marka lok þeirrar fjárhagslegu endurskipulagningar samstæðunnar sem staðið hefur yfir frá árslokum 2008.

Samið hefur verið um það við bankana að samstæðan muni áfram eiga SmartLynx og hlut sinn í Travel Service þar sem ekki fengust samþykki frá viðeigandi lánveitendum og hluthöfum þeirra félaga. Í upphaflegum kaupsamningi var gert ráð fyrir að heildarsöluverð þeirra eigna sem til stóð að selja næmi 7,6 milljörðum og mun það haldast óbreytt. Engin breyting hefur orðið á stefnu samstæðunnar varðandi sölu þessara eigna og heldur söluferli því áfram.

Samstæðan mun greiða 500 milljónir króna fyrir að taka hlutabréfin í Travel Service aftur. Þegar hlutabréfin verða seld þá rennur söluandvirði upp að 500 milljónum króna til félagsins. Söluandvirði milli 500 milljónum króna og 1.600 milljónum króna mun renna til félags í eigu lánveitendanna en söluandvirði umfram 1.600 milljónir króna rennur til samstæðunnar. Í upphaflegum áætlunum var gert ráð fyrir að Travel Service yrði selt til félags í eigu lánveitendanna fyrir 1.600 milljónir króna.

Samkvæmt upphaflegum kaupsamningi nam söluverðið á SmartLynx 1 krónu og jafnframt var gert ráð fyrir að allar ábyrgðir á skuldbindingum SmartLynx héldust hjá samstæðunni. Það að samstæðan eigi félagið áfram hefur því engin fjárhagsleg áhrif og gerir samstæðunni því auðveldara um vik að losa um þær ábyrgðir sem til staðar eru.

Frekari upplýsingar veita:

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri, +354 896 1455

Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála, +354 665 8801