Icelandic
Birt: 2010-10-22 18:42:15 CEST
Origo hf.
Reikningsskil
Uppgjör Nýherja hf. fyrir þriðja ársfjórðung 2010
Nýherji skilar 169 mkr rekstrarhagnaði fyrir afskriftir á þriðja
ársfjórðungi

Helstu niðurstöður 

•   169 mkr EBITDA á þriðja
ársfjórðungi, en EBITDA var 107 mkr á sama tímabili
    2009. 
•   132 mkr
heildarhagnaður á fyrstu níu mánuðunum, en heildartap var 178 mkr á
    sama
tímabili í fyrra. 
•   Nýherji hf. jók hlutafé um 840 mkr að markaðsvirði. 
•
  Lokið er samningum við viðskiptabanka félagsins um endurskipulagningu
   
langtímalána. 
•   Fasteign Nýherja verður seld á 1.650 mkr, samhliða því að
félagið gerir
    leigusamning til 15 ára.
•   Áætlað að vaxtaberandi skuldir
félagsins lækki um 2.600 mkr.

Þórður Sverrisson, forstjóri:

„Mjög jákvæð
þróun hefur verið í rekstri Nýherja og innlendra dótturfélaga á
árinu og er
afkoman ágæt í þriðja ársfjórðungi 2010. Eftirspurn eftir tölvu-
og
tæknibúnaði hefur aukist og er sala umfram áætlanir. Eftir umtalsverða
fækkun
sérfræðinga á sviði hugbúnaðar hefur náðst jafnvægi við eftirspurn
eftir
hugbúnaðarþjónustu innanlands og skilar sú starfsemi nú hagnaði.


Nýherji jók hlutafé um 120 mkr að nafnvirði og seldi fjárfestum á genginu
7,0.
Samhliða var lokið samningum við viðskiptabanka félagsins um
endurskipulagningu
á langtímalánum. Heildaráhrif aðgerðanna eru að eigið fé
félagsins styrkist um
nálægt einn milljarð króna. Hlutafjáraukningin, sala
fasteignar og lækkun
höfuðstóls skulda mun lækka vaxtaberandi skuldir um 2.600
mkr. Að loknum þessum
aðgerðum verður fjárhagsstaða Nýherja orðin sterk á ný
og eiginfjárhlutfall
félagsins verður yfir 30% í lok árs. Félagið mun leggja
megináherslu á að bæta
afkomuna enn frekar með áframhaldandi breytingum til
hagræðingar í rekstrinum.“ 


Rekstrarniðurstaða fyrir þrjá ársfjórðunga
2010

Sala á vöru og þjónustu nam 10.273 mkr fyrstu 9 mánuði ársins 2010,
samanborið
við 10.339 mkr á sama tímabili árið áður. Laun og launatengd gjöld
námu 4.162
mkr, en voru 4.521 mkr fyrir sama tímabil árið áður. Laun vegna
erlendrar
starfsemi hafa lækkað um 125 mkr. Meðalfjöldi stöðugilda fyrstu 9
mánuði ársins
2010 var 565 en var 652 fyrir sama tímabil árið áður.
Rekstrarkostnaður var um
1.413 mkr, en var 1.826 mkr yfir sama tímabil í
fyrra. Rekstrarhagnaður fyrir
afskriftir, fjármagnsliði og skatta - EBITDA -
var 327 mkr á tímabilinu en
EBITDA var neikvæð um 9 mkr árið áður. 
 
Hrein
fjármagnsgjöld voru 151 mkr í samanburði við 504 mkr á sama tímabili
árið
2009. Heildarhagnaður fyrstu 9 mánuði ársins 2010 var 132 mkr en
heildartap
fyrstu 9 mánuði ársins 2009 nam 178 mkr. 

Heildareignir í lok
tímabilsins voru 9.970 mkr samanborið við 9.595 mkr í lok
ársins 2009.
Langtímaskuldir hafa hækkað frá árslokum úr 1.526 mkr í 2.564 mkr
en samhliða
því hafa skammtímaskuldir lækkað frá árslokum úr 6.805 mkr í 5.183
mkr.
Vaxtaberandi skuldir námu 5.100 mkr, en voru 5.537 mkr í ársbyrjun 2010.
Eigið
fé í lok september 2010 var 2.223 mkr og er eiginfjárhlutfall nú 22,3% en
var
13,2% um síðustu áramót. 


Rekstrarniðurstaða á þriðja ársfjórðungi
2010

Sala á vöru og þjónustu nam 3.234 mkr í þriðja ársfjórðungi, samanborið
við
3.301 mkr á sama tímabili árið 2009 og hafa tekjur því lækkað um 2% frá
þriðja
ársfjórðungi 2009. 

Laun og launatengd gjöld námu 1.187 mkr en voru
1.357 mkr fyrir sama tímabil
2009. Meðalfjöldi stöðugilda í þriðja
ársfjórðungi var 553 en var 631 á sama
tíma í fyrra. Launakostnaður innanlands
hefur lækkað um 47 mkr frá því á þriðja
ársfjórðungi 2009. Laun starfsmanna
erlendis hafa lækkað um 123 mkr milli
þriðja ársfjórðungs 2009 og 2010. 


Rekstrarkostnaður var 434 mkr í þriðja ársfjórðungi en var 527 mkr á sama
tíma
á árinu 2009. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta
-
EBITDA - var 169 mkr á tímabilinu en EBITDA var 107 mkr á sama tímabili
fyrir
árið 2009. 

Hrein fjármagnsgjöld voru 73 mkr í þriðja ársfjórðungi í
samanburði við 171 mkr
í þriðja ársfjórðungi 2009.  Heildarhagnaður í
fjórðungnum nam 32 mkr, en
heildartap í þriðja ársfjórðungi í fyrra nam 107
mkr. 


Samningar við banka og aukning hlutafjár

Nýherji jók í þriðja
ársfjórðungi hlutafé um 120 mkr að nafnvirði. Félagið gekk
frá samningum við
fjárfesta um kaup á því hlutafé á genginu 7,0 og var heildar
söluverð því 840
mkr. Einnig var gengið frá samningum við Arion banka annars
vegar og
Íslandsbanka hins vegar um endurskipulagningu á langtímalánum
félagsins, þar
sem greiðslutími verður lengdur. Til að lækka skuldir félagsins
enn frekar
hefur Nýherji gert samning um sölu á fasteign félagsins við
Borgartún 37 og er
söluverðið 1.650 mkr. Samhliða hefur félagið gert 15 ára
leigusamning um
Borgartún 37. 


Yfirlit yfir rekstur 

Eftirspurn eftir tölvubúnaði og
tæknilausnum fór vaxandi á þriðja ársfjórðungi
hjá samstæðunni, einkum á
fyrirtækjamarkaði. Sala á IBM netþjónum og
gagnageymslulausnum og Lenovo
tölvubúnaði var talsvert umfram áætlun. Þá jókst
eftirspurn eftir IBM
hugbúnaði og Canon fjölnota prentbúnaði í fjórðungnum.
Sala á sviði hljóð- og
myndlausna var samkvæmt áætlunum, en meðal annars var
unnið verkefni fyrir
Háskólann á Akureyri. Sala á neytendabúnaði, svo sem
sjónvörpum og myndavélum
frá Canon og Sony, var stöðug. 

Rekstrar- og hýsingarþjónusta samstæðunnar
hefur lagt áherslu á hagræðingu og
lækkun rekstrarkostnaðar sem hefur skilað
sér í bættri afkomu þrjá ársfjórðunga
í röð og er að nást jafnvægi í þessari
starfsemi. Aukin eftirspurn er eftir
útstöðvaþjónustu og alrekstri í
prentþjónustu. Þá hefur verið samið við
landskjörstjórn um rafræna skönnun við
talningu á atkvæðaseðlum fyrir
stjórnlagaþing í nóvember. 

Rekstur
innlendra eininga á sviði viðskiptahugbúnaðar gekk vel á tímabilinu.
Þjónusta
og vörusala var talsvert umfram væntingar. Vöruframboð var eflt með
smíði á
lausnum og þekking aukin á stefnumótandi þáttum, svo sem á
sviði
viðskipgreindar. Verkefnastaða og horfur, bæði á innlendum og
erlendum
vettvangi, eru vænlegar. 

Góð afkoma var í sölu hugbúnaðalausna
sem hafa verið þróaðar af
hugbúnaðarfyrirtækjum samstæðunnar. Unnið var að
þróun á Sögu sjúkraskrárkerfi
í samstarfi við Landspítalann og
heilbrigðisráðuneytið auk verkefna sem
tengjast rafrænum sendingum yfir Heklu
heilbrigðisnet, en með rafrænum
sendingum heilbrigðisgagna má ná fram mikilli
hagræðingu fyrir aðila á
heilbrigðissviði og bæta þjónustu við sjúklinga. Þá
voru smærri
hugbúnaðarlausnir seldar yfir netið til fyrirtækja víða um heim og
unnið að
hugbúnaðarverkefnum í Svíþjóð, Danmörku, Bretlandi og í
Mið-Austurlöndum.
Jafnvægi er að nást í innlendri hugbúnaðarþróun og afkoma
betri en á sama tíma
í fyrra. 

Afkoma af starfsemi Applicon í Svíþjóð er
ágæt og í samræmi við áætlun en meðal
samninga við fyrirtæki má nefna
Álandsbankann, Nordea og TeliaSonera. Rekstur
Applicon í Danmörku skilar
jákvæðri afkomu en er undir áætlun. Dansupport
skilar nú jákvæðri afkomu en
tap var á rekstri þess félags á síðasta ári.
Samkvæmt spá greiningafyrirtækja
mun eftirspurn eftir þjónustu í
upplýsingatækni á Norðurlöndum fara vaxandi og
mun það styrkja rekstur
félaganna erlendis. 


Horfur

Rekstur Nýherja og
dótturfélaga hefur styrkst á undanförnum ársfjórðungum og
eru horfur fyrir
fjórða ársfjórðung góðar. Jafnvægi fer að skapast í rekstri
félagsins m.v.
núverandi eftirspurn og stöðu í efnahagsmálum. Ágætar horfur eru
um að afkoma
af rekstri samstæðunnar haldi áfram að batna á næstu misserum,
verði ekki
bakslag í efnahagsþróun hérlendis. 


Fjárhagsdagatal fyrir 2010:

28.
janúar 2011 - Ársuppgjör

Samþykkt árshlutareiknings
Árshlutauppgjör fyrir
þriðja ársfjórðung 2010 var samþykkt á stjórnarfundi
Nýherja hf. 22. október
2010. Árshlutauppgjör Nýherja hf. er gert í samræmi við
alþjóðlega
reikningsskilastaðla (IFRS-International Financial Reporting
Standards).
Árshlutauppgjörið hefur hvorki verið endurskoðað né kannað af
endurskoðendum
félagsins. 


Nánari upplýsingar

Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja, í
síma +354 893 3630.

Nýherji hf.
Hlutverk Nýherja hf. er að skapa
viðskiptavinum sínum virðisauka með þekkingu
starfsmanna á upplýsingatækni,
rekstri fyrirtækja og þörfum viðskiptavina.
Nýherji býður fyrsta flokks
ráðgjöf og fagþjónustu á sviði upplýsingatækni og
vandaðan tölvu-, skrifstofu-
og hugbúnað ásamt traustri tækni- og
rekstrarþjónustu. Félög
Nýherjasamstæðunnar í rekstri eru 18 bæði hér heima og
erlendis og eru
stöðugildi 540. Hlutabréf Nýherja hf. eru skráð í NASDAQ OMX
Iceland hf.
(Kauphöll Íslands). 

Stjórn Nýherja: Benedikt Jóhannesson, stjórnarformaður,
Árni Vilhjálmsson og
Guðmundur Jóh. Jónsson. Þórður Sverrisson er forstjóri
Nýherja.
 


nyherji.lykiltolur.30.9.2010.xls
nyherji hf. arshlutareikningur 30 9 2010.pdf
uppgjor nyherja hf. 3. arsfjorungur 2010 22. oktober.pdf