English Icelandic
Birt: 2010-08-27 22:14:25 CEST
Orkuveita Reykjavíkur
Reikningsskil
Afkomubati hjá Orkuveitu Reykjavíkur
Þrátt fyrir 2,1 milljarðs króna tap á öðrum ársfjórðungi 2010,
skilaði
reksturinn 5,1 milljarðs króna hagnaði fyrstu sex mánuði ársins.
Helstu
ástæðurnar eru styrking íslensku krónunnar og lækkun
fjármagnskostnaðar.
Árshlutareikningur samstæðu OR var samþykktur á
stjórnarfundi í dag. 

Gengi íslensku krónunnar styrktist um 8,3% á fyrri
helmingi ársins og hefur
styrkst um önnur 2,5% síðan. Greiddir vextir fyrri
hluta árs námu 1,1 milljarði
króna. Samsvarandi fjárhæð 2009 var 3,3
milljarðar króna. Vaxtakostnaður lækkar
því á milli tímabila um tvo þriðju,
eða 2,2 milljarða. Ástæðan er að á árinu
2009 þurfti OR að leita á íslenskan
lánamarkað, þar sem vextir eru meira en
tífaldir meðalvextir erlendra lána OR,
sem eru 0,99%. 

Rekstrarhagnaður OR fyrir fjármagnsliði, skatta og
afskriftir, EBITDA, fyrstu
sex mánuði ársins 2010 var 7,1 milljarður króna.
Hagnaður fyrir skatta nam 6,1
milljarði. Reiknaðir skattar eru 1,0 milljarður
og afkoma tímabilsins því
jákvæð sem nemur 5,1 milljarði króna.


Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega
reikningsskilastaðla.

Helstu niðurstöður tímabilsins 1.1. til 30.6.
2010

Rekstur Orkuveitu Reykjavíkur var með 5.118 milljóna króna hagnaði
fyrstu sex
mánuði ársins 2010 samanborið við 10.615 milljóna króna tap á sama
tímabili
2009. 
 
Rekstrartekjur tímabilsins námu 13.561 milljón króna en
voru 11.925 milljónir
króna sama tímabil árið áður. 
 
Hagnaður
fyrirtækisins fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir, EBITDA, var
7.056
milljónir króna samanborið við 5.692 milljónir króna sama tímabil árið
áður.

 
Fjármagnsliðir voru jákvæðir um 2.913 milljónir króna á tímabilinu, en
voru
neikvæðir um 14.132 milljónir á sama tímabili árið 2009. 


Heildareignir þann 30. júní 2010 voru 277.703 milljónir króna en voru
281.526
milljónir króna 31. desember 2009. 
 
Eigið fé þann 30. júní 2010
var 44.924 milljónir króna en var 40.657 milljónir
króna 31. desember 2009. 


Heildarskuldir fyrirtækisins þann 30. júní 2010 voru 232.779 milljónir
króna
samanborið við 240.868 milljónir króna í árslok 2009. 


Eiginfjárhlutfall var 16,2% þann 30. júní 2010 en var 14,4% í árslok 2009.


Ýmis mál og horfur
Forstjóraskipti urðu hjá OR 17. ágúst sl. þegar dr. Helgi
Þór Ingason tók við
starfinu. 

Stjórn OR hefur treyst tekjustraum
fyrirtækisins með mörkun gjaldskrárstefnu og
markmiðssetningu um hagræðingu í
rekstri. Ávinnings þessa mun sjá stað á árinu
2010 og styrkja sjóðsflæði og
greiðslugetu. 

Áfram er unnið að stækkun Hellisheiðarvirkjunar. Áformað er
að taka 4. áfanga
hennar, framleiðslu á heitu vatni, í notkun undir lok
yfirstandandi árs og 5.
áfanga virkjunarinnar, framleiðslu á 90 MW rafafls,
síðla árs 2011. Samið hefur
verið við Evrópska fjárfestingabankann um
fjármögnun helmings 5. áfanga
Hellisheiðarvirkjunar. Viðræður um frekari
fjármögnun fyrirtækisins standa
yfir. 

Nánari upplýsingar veitir Helgi Þór
Ingason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, í
síma 516-6000 
 


orkuveita reykjavikur - arshlutareikningur 30.6.2010.xls.pdf