Icelandic
Birt: 2010-07-23 18:35:34 CEST
Origo hf.
Reikningsskil
Uppgjör Nýherja hf. á fyrri árshelmingi 2010
Helstu niðurstöður 

• 100 mkr heildarhagnaður á fyrri árshelmingi, en
heildartap var 71 mkr á sama
  tímabili í fyrra. 
• 123 mkr EBITDA í öðrum
ársfjórðungi, en EBITDA var neikvæð um 109 mkr á sama
  tímabili 2009. 
•
Vörusala innanlands í öðrum ársfjórðungi var 30% meiri en í sama ársfjórðungi

 í fyrra. 
• Jafnvægi hefur náðst í rekstri erlendra dótturfélaga og eru
horfur góðar á
  síðari árshelmingi. 
• Áformað er að samningar við
viðskiptabanka félagsins um fjárhagslega
  endurskipulagningu liggi fyrir á
næstunni. 


Þórður Sverrisson, forstjóri:

„Áætlun um afkomu félagsins
gekk eftir á fyrri árshelmingi og eru horfur
vænlegar fyrir síðari árshelming.
Erlend og innlend dótturfélög sem starfa á
sviði hugbúnaðarþjónustu skiluðu nú
góðum hagnaði, í stað taprekstrar í fyrra.
Tekist hefur að lækka
rekstrarkostnað innan samstæðunnar og afkoma því batnað. 
Nýherji er langt
kominn í viðræðum við bankana um endurskiplagningu á fjárhag
samstæðunnar og
er gert ráð fyrir að niðurstöður liggi fyrir á næstunni.“



Rekstrarniðurstaða á fyrri árshelmingi 2010


Fyrstu 6 mánuðir ársins
- Lykiltölur (sjá viðhengi)                            
                      
                                                  

Sala á vöru og þjónustu
nam 7.038 mkr fyrstu 6 mánuði ársins 2010, samanborið
við 7.037  mkr á sama
tímabili árið áður. Tekjur starfseminnar á Íslandi námu
4.864 mkr, en 2.174
mkr hjá erlendum dótturfélögum. 

Laun og launatengd gjöld námu 2.975 mkr, en
voru 3.164 mkr fyrir sama tímabil
árið áður. Laun vegna erlendrar starfsemi
hafa lækkað um 30 mkr vegna fækkunar
starfsfólks og gengisbreytinga.
Meðalfjöldi stöðugilda fyrstu 6 mánuði ársins
2010 var 571 en var 663 fyrir
sama tímabil árið áður. Rekstrarkostnaður var um
979 mkr, en var 1.300 mkr
yfir sama tímabil í fyrra. Rekstrarhagnaður fyrir
afskriftir, fjármagnsliði og
skatta - EBITDA - var 158 mkr á tímabilinu en
EBITDA var neikvæð um 117 mkr
árið áður. 
 
Hrein fjármagnsgjöld voru 77 mkr í samanburði við 333 mkr á
sama tímabili árið
2009. Heildarhagnaður fyrstu 6 mánuði ársins 2010 var 100 
mkr en heildartap
fyrstu 6 mánuði ársins 2009 nam 71 mkr.



Efnahagsreikningur 30.06. 2010 - Lykiltölur (sjá viðhengi)



Heildareignir í lok tímabilsins voru 9.245 mkr samanborið við 9.595 mkr í
lok
ársins 2009. Langtímaskuldir hafa lækkað frá árslokum úr 1.526 mkr í 1.095
mkr.
Skammtímaskuldir hafa lækkað frá árslokum úr 6.805 mkr í 6.785
mkr.
Vaxtaberandi skuldir námu 5.224 mkr, en voru 5.537 mkr í ársbyrjun
2010.
Hlutfall vaxtaberandi skammtímaskulda er hátt þar sem samningum
við
viðskiptabanka um fjárhagslega endurskipulagningu er ekki lokið.  Eigið fé
í
lok júní 2010 var 1.364 mkr og er eiginfjárhlutfall nú 14,8% en var 13,2%
um
síðustu áramót. 


Rekstrarniðurstaða á öðrum ársfjórðungi
2010


Ársfjórðungsyfirlit - Lykiltölur (sjá viðhengi)


Sala á vöru og
þjónustu nam 3.530 mkr í öðrum ársfjórðungi, samanborið við
3.479 mkr á sama
tímabili árið 2009 og hafa tekjur því aukist um 1,4% frá öðrum
ársfjórðungi
2009. 

Laun og launatengd gjöld námu 1.462 mkr en voru 1.602 mkr fyrir sama
tímabil
2009. Meðalfjöldi stöðugilda  í öðrum ársfjórðungi var 558 en var 649
á sama
tíma í fyrra. Launakostnaður innanlands hefur lækkað um 58 mkr frá því
í öðrum
ársfjórðungi 2009. Laun starfsmanna erlendis hafa lækkað um 82 mkr
vegna
gengisbreytinga og fækkunar stöðugilda milli annars ársfjórðungs 2009 og
2010. 
 
Rekstrarkostnaður var 450 mkr í öðrum ársfjórðungi, en var 769 mkr á
sama tíma
á árinu 2009. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og
skatta -
EBITDA - var 123 mkr á tímabilinu en EBITDA var neikvæð um 109 mkr á
sama
tímabili fyrir árið 2009. 

Fjármunatekjur voru 0,3 mkr í öðrum
ársfjórðungi í samanburði við
fjármagnsgjöld að fjárhæð 257 mkr. í öðrum
ársfjórðungi 2009.  Heildarhagnaður
í fjórðungnum nam 231 mkr, en
heildarhagnaður í öðrum ársfjórðungi í fyrra nam
88 mkr. 

Guðmar
Guðmundsson framkvæmdastjóri fjármála Nýherja hf. hefur ákveðið að láta
af
störfum hjá félaginu og mun taka við starfi framkvæmdastjóra fjármála hjá
VÍS
hf. 

Roka ehf., dótturfélag Nýherja, var úrskurðað gjaldþrota á tímabilinu
og eru
allar eignir þess og skuldir því færðar út úr efnahagsreikningi
samstæðunnar. 


Yfirlit yfir rekstur 

Eftirspurn eftir lausnum og búnaði
jókst hjá móðurfélaginu Nýherja hf. í öðrum
ársfjórðungi. Góð sala var á IBM
vélbúnaðarlausnum, svo sem IBM BladeCenter
netþjónum og IBM
gagnageymslulausnum. Eftirspurn eftir tölvubúnaði frá Lenovo
er mikil, en sala
á fartölvum hefur aukist um ríflega 60% miðað við annan
ársfjórðung árið 2009.
Ágæt sala var á APC búnaði fyrir kerfissali. 

Sala hjá Sense ehf., sem
sérhæfir sig í hljóð- og myndlausnum, var í samræmi
við áætlanir. Ágæt
eftirspurn var eftir Canon og Sony myndavélum og sjónvörpum
frá Sony.
Verkefnastaða í mynd- og hljóðlausnum fyrir fyrirtæki og stofnanir
er
viðunandi, en félagið hefur meðal annars unnið að slíkum verkefnum í
Noregi. 

Afkoma Skyggnis ehf., rekstrar- og hýsingarfélags samstæðunnar, 
var undir
áætlunum í öðrum ársfjórðungi. Gerður var fjöldi nýrra þjónustu-
og
rekstrarsamninga við nýja og eldri viðskiptavini. Þá hefur vaxandi
fjöldi
fyrirtækja flutt tölvurekstur sinn í alrekstur hjá Skyggni. Félagið
hefur í
áratug annast hýsingu og rekstur tölvukerfa Icelandair Group, og var
í
ársfjórðungnum undirritaður nýr þriggja ára samningur um þá þjónustu.


Innlendur hugbúnaðarhluti Nýherjasamstæðunnar hefur náð að laga rekstur
að
nýjum markaðsaðstæðum. Jákvæð EBITDA hefur náðst hjá TM Software ehf. og
EMR
ehf. síðustu ársfjórðunga og er rekstur beggja fyrirtækja í samræmi
við
áætlanir. 

Hagnaður Applicon ehf., sem sérhæfir sig í viðskiptalausnum,
var undir
væntingum í öðrum ársfjórðungi, sem má rekja til verkefnastöðu
félagsins í
upphafi tímabilsins. Gert er ráð fyrir að aukin verkefni erlendis
muni bæta
afkomu félagsins á síðari árshelmingi. 

Rekstur Vigor ehf. var
þungur í öðrum ársfjórðungi, en ráðist hefur verið í
aðgerðir til að ná aftur
jafnvægi í rekstri félagsins. Helstu verkefni Vigor er
hugbúnaðarþjónusta við
viðskipta-, launa- og orkukerfi  og sérsmíði á lausnum
fyrir ýmis fyrirtæki
s.s. á sviði greiðslumiðlunar, tryggingastarfsemi og
orkudreifingu.


Bjartari horfur eru á dönskum markaði og betri verkefnastaða
dótturfélaga
Nýherja þar í landi hefur tryggt jákvæðan viðsnúning á rekstri
þeirra. Applicon
A/S í Danmörku gerði í öðrum árfjórðungi samning um
innleiðingu á
SAP-viðskiptakerfum fyrir sjúkrahús og aðrar
heilbrigðisstofnanir Region
Hovedstaden stjórnsýsluumdæmisins í Kaupmannahöfn
og á Norður Sjálandi.
Applicon er samstarfsaðili Siemens IT Solutions í þessu
verkefni, en hlutur
Applicon er um 1,8 milljarðar króna á þremur árum. Um er
að ræða stærsta
samning sem Applicon fyrirtækin hafa gert fram til þessa.
Þessi samningur ásamt
öðrum fyrirliggjandi samningum tryggja jákvæða afkomu
næstu misseri. Applicon
Solutions A/S í Danmörku hefur lagt aukna áherslu á
Bandaríkjamarkað við sölu á
aðgangsstýringarkerfinu APM fyrir SAP
viðskiptahugbúnað. Má þar nefna samning
við fyrirtækin Celanese, Mercedes Benz
og Xerox. 

Afkoma af rekstri Dansupport A/S var jákvæð og yfir áætlun á
fyrri árshelmingi
og er verkefnastaða félagsins viðunandi. Dansupport hefur í
auknum mæli lagt
áherslu á þjónustu við veitufyrirtæki og sambærileg meðalstór
fyrirtæki. 

Árangur Applicon í Svíþjóð er í takt við væntingar og hefur
vöxtur þess haldið
áfram. Nýir samningar voru gerðir við SEB, Nordea, Brummer
& Partners og Volvo.
Horfur í næsta ársfjórðungi eru ágætar. 

Applicon
vinnur einnig að verkefnum utan Norðurlandanna, svo sem fyrir SAP hjá
breska
bankanum Nationwide, en þar starfa sex íslenskir Applicon ráðgjafar
að
staðaldri við að þróa næstu kynslóð SAP viðskiptabankakerfa.



Horfur

Innlend starfsemi Nýherja hefur skilað jákvæðri og vaxandi
EBITDA í fjóra
ársfjórðunga í röð. EBITDA af erlendri starfsemi var jákvæð í
öðrum
ársfjórðungi eftir taprekstur nokkurra undanfarinna ársfjórðunga.
Áætlanir
félagsins gera ráð fyrir því að afkoma í þriðja og fjórða
ársfjórðungi verði
betri en hún var í öðrum ársfjórðungi. 

Fjárhagsdagatal
fyrir 2010:
Áætluð birting árshlutauppgjörs fyrir árið 2010.

22. október   
     Níu mánaða uppgjör
28. janúar 2011     Ársuppgjör


Samþykkt
árshlutareiknings

Árshlutauppgjör fyrir annan ársfjórðung 2010 var samþykkt
á stjórnarfundi
Nýherja hf. 23. júlí 2010. Árshlutauppgjör Nýherja hf. er gert
í samræmi við
alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS-International Financial
Reporting
Standards). Árshlutauppgjörið hefur hvorki verið endurskoðað né
kannað af
endurskoðendum félagsins 


Nánari upplýsingar

Þórður
Sverrisson, forstjóri Nýherja, í síma +354 893 3630.



Nýherji
hf.

Hlutverk Nýherja hf. er að skapa viðskiptavinum sínum virðisauka með
þekkingu
starfsmanna á upplýsingatækni, rekstri fyrirtækja og þörfum
viðskiptavina.
Nýherji býður fyrsta flokks ráðgjöf og fagþjónustu á sviði
upplýsingatækni og
vandaðan tölvu-, skrifstofu- og hugbúnað ásamt traustri
tækni- og
rekstrarþjónustu. Félög Nýherjasamstæðunnar í rekstri eru 18 bæði
hér heima og
erlendis og er heildarfjöldi stöðugilda 554. Hlutabréf Nýherja
hf. eru skráð í
NASDAQ OMX Iceland hf. (Kauphöll Íslands). 

Stjórn Nýherja:
Benedikt Jóhannesson, stjórnarformaður, Árni Vilhjálmsson og
Guðmundur Jóh.
Jónsson. Þórður Sverrisson er forstjóri Nýherja.
 


frettatilkynning - uppgjor nyherja hf. a fyrri arshelmingi 23.7.2010.pdf
nyherji.lykiltolur.30.6.2010.xls
nyherji arshlutareikningur 30.6.2010.pdf