Icelandic
Birt: 2010-04-30 19:24:12 CEST
Byggðastofnun
Reikningsskil
Ársreikningur 2009
Ársreikningur Byggðastofnunar fyrir árið 2009, var staðfestur af
stjórn
stofnunarinnar 30. apríl 2010. 

Tap ársins nam 3.015 mkr.  Samkvæmt
ársreikningnum er eigið fé stofnunarinnar
1.130 mkr. 

Helstu niðurstöður úr
ársreikningi Byggðastofnunar fyrir árið 2009:
•	Tap stofnunarinnar á árinu nam
3.015 mkr.
•	Hreinar vaxtatekjur voru jákvæðar um 684,6 mkr. samanborið við
459,6 mkr.
hreinar vaxtatekjur á árinu 2008. 
•	Rekstrartekjur námu 509,3
mkr.
•	Almenn rekstrargjöld, styrkir og framlög til atvinnuþróunarfélaga námu
487,5
mkr. 
•	Framlög í afskriftarreikning útlána, og matsbreyting hlutafjár
nam 3.721 mkr.
•	Handbært fé frá rekstri nam 522 mkr.
•	Endanlega töpuð útlán
námu 430 mkr.
•	Eignir námu 23.714 mkr. og hafa hækkað um 405,4 mkr. frá árinu
2008.  Þar af
voru útlán 17.763 mkr. 
•	Skuldir námu 22.584 mkr. og hafa
hækkað um 820 mkr. frá árinu 2008.
•	Veittar ábyrgðir utan efnahagsreiknings
námu 368,3 mkr. 
•	Alþingi samþykkti í Fjáraukalögum 2009, 2.600 mkr. framlag
til að auka eigið
fé stofnunarinnar. 
•	Eiginfjárhlutfall skv. lögum um
fjármálafyrirtæki er 4,92% en skal að
lágmarki vera 8% 

Um
ársreikninginn

Vegna hruns íslensku bankanna og erfiðs efnahagsástands hefur
stofnunin þurft
að leggja aukna fjármuni inn á afskriftarreikning útlána vegna
mögulegrar
taphættu.  Á árinu var þessi fjárhæð 3.721 mkr. í samanburði við
1.660 mkr.
árið 2008.  Skýrist tap stofnunarinnar á árinu af þessum
varúðarfærslum. 

Hreinar vaxtatekjur stofnunarinnar námu 684,6 mkr. og hafa
aukist jafnt og þétt
undanfarin ár.  Afskriftarreikningur útlána er myndaður
til að mæta hugsanlegum
töpum í framtíðinni.  Framlög í afskriftarreikninginn
námu 3.721 mkr. á árinu
2009 og var hlutfall afskriftarreiknings af
heildarútlánum 21%.  Vegna
bankahrunsins, falls íslensku krónunnar og
efnahagsþrenginga hefur stofnunin
þurft að leggja til hliðar í
afskriftarreikning til að bregðast við töpum í
framtíðinni. 

Nýjar
lánveitingar drógust saman á tímabilinu og námu 1.148 mkr. samanborið
við
3.881 mkr. á árinu 2008. 

Í byrjun ársins gaf stofnunin út skuldabréf
og bauð í lokuðu útboði og nam
útgáfufjárhæðin 1.000 mkr.  Töluverð
umframeftirspurn var eftir skuldabréfunum. 

Horfur

Til að bregðast við
því að koma eiginfjárhlutfalli Byggðastofnunar yfir 8%
lögbundið lágmark
samþykkti Alþingi 1.000 mkr. aukningu á eiginfé hennar í
Fjárlögum 2010. 

Á
árinu 2010 er á gjalddaga skuldabréfaflokkurinn BYG 98 sem gefinn var út
1998.

Byggðastofnun hefur tryggt fjármagn til að standa við greiðslu á honum.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Þorsteinsson,
forstjóri Byggðastofnunar í
síma 455 5400 eða á netfanginu
adalsteinn@byggdastofnun.is
 


arsreikningur 2009.pdf
frettatilkynning v arsreiknings 2009.pdf
lykiltolur me arsreikningi 31.12.2009.pdf