English Icelandic
Birt: 2010-04-29 13:48:55 CEST
Origo hf.
Reikningsskil
Leiðrétting - Uppgjör Nýherja fyrir fyrsta ársfjórðung 2010 - Frétt birt 2010-04-28 18:21:32
Leiðrétting: Fréttatilkynning í viðhengi.

Helstu niðurstöður fyrir fyrstu
þrjá mánuði ársins 2010

•  Heildartekjur samstæðunnar námu 3.509 milljónum
króna og eru svipaðar og í
   fyrsta ársfjórðungi 2009
 
•  EBITDA í
ársfjórðungnum nam 35 milljónum króna, en heildartap tímabilsins er
   130
milljónir króna
 
•  Jákvæð EBITDA er af innlendum rekstri, en erlend
starfsemi er í járnum.

•  Applicon A/S gerði mikilvægan þriggja ára samning
að fjárhæð 1,8 milljarða
   króna, sem tryggir góða afkomu af erlendri
starfsemi á árinu. Tap var á
   rekstri Applicon að upphæð 32 mkr í fyrsta
ársfjórðungi, en útlit fyrir
   ágætan hagnað út árið
 
•  Fjárhagsstaða
félagsins verður styrkt á næstunni m.a. með hlutafjáraukningu
   og sölu
eigna. 

Þórður Sverrisson, forstjóri:

„Rekstrartekjur af innlendri
starfsemi Nýherja jukust um 3% frá fyrsta
ársfjórðungi í fyrra og EBITDA
batnaði um nær  65 milljónir. Vörusala hefur
vaxið um nær fjórðung frá sama
ársfjórðungi í fyrra ári og jafnvægi er að nást
í hugbúnaðarráðgjöf og
þjónustu. 

Stórir samningar Applicon A/S bættu rekstrarafkomu erlendu
starfseminnar í lok
ársfjórðungsins. Halli af rekstri þess félags síðustu tvo
ársfjórðunga er
samtals 125 mkr, en samningarnir treysta góða afkomu næstu
misseri. 

Horfur um rekstrarafkomu félagsins eru nú jákvæðar, í kjölfar
umfangsmikilla
aðgerða sem ráðist hefur verið í hérlendis til að lækka
kostnað, laga rekstur
að markaðsaðstæðum og ná mikilvægum samningum hérlendis
og erlendis. 

Meginverkefni Nýherja næstu mánuðina er að tryggja
fjárhagslega stöðu félagsins
og liggja nú fyrir tillögur stjórnar til
viðskiptabanka félagsins um
ráðstafanir til að ljúka fjárhagslegri
endurskipulagningu þess með m.a.
hlutafjáraukningu og sölu eigna.“


Nánari
upplýsingar veitir:
Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja, í síma +354 893
3630.
 


frettatilkynning.pdf
nyherji arshlutar 31 3 2010.pdf
nyherji lykiltolur 31 3 2010.pdf