Icelandic
Birt: 2010-03-05 10:53:17 CET
TM hf.
Reikningsskil
Ársreikningur 2009
Uppgjör Tryggingamiðstöðvarinnar fyrir árið 2009

Sterk staða og viðsnúningur
í rekstri TM



Helstu niðurstöður ársins 2009

•  Hagnaður TM af
reglulegri starfsemi á árinu 2009 var 237 m.kr. samanborið við
   5.529 m.kr.
tap 2008.
 
•  Hagnaður af vátryggingastarfsemi var 342 m.kr. fyrir skatta
samanborið við
   166 m.kr. hagnað 2008.
 
•  Eigin iðgjöld jukust um 5% og
voru 9.431 m.kr. samanborið við 8.980 m.kr. á
   árinu 2008.
 
•  Eigin
tjónakostnaður lækkaði um 5% og var 8.858 m.kr. á árinu 2009 samanborið
   við
9.373 m.kr. 2008.
 
•  Rekstrarkostnaður lækkaði um 6% og var 2.192 m.kr. á
árinu 2009 samanborið
   við 2.320 m.kr. 2008. 

•  Eigið tjónshlutfall
félagsins lækkaði úr 104% í 94% á milli ára.

•  Fjárfestingatekjur félagsins
voru jákvæðar sem nemur 3.359 m.kr. en voru
   neikvæðar um 1.630 m.kr. á
árinu 2008. 

•  Heildareignir TM voru 28.477 m.kr. Eigið fé nam 8.039 m.kr.
og
   eiginfjárhlutfall var 28% þann 31. desember 2009. 

Sigurður
Viðarsson, forstjóri TM:

„Í ljósi efnahags- og samkeppnisaðstæðna var vöxtur
og afkoma TM á árinu 2009
viðunandi. Iðgjaldatekjur aukast á sama tíma og
tjónakostnaður lækkar.
Hagræðingaraðgerðir á árinu 2009 skiluðu góðum árangri
og lækkar
rekstrarkostnaður félagsins umtalsvert. Fjárhagsstaða TM er sem fyrr
traust en
mikill viðsnúningur varð í fjárfestingastarfsemi félagsins. Styrkur
TM felst í
góðu sambandi við viðskiptavini og reksturinn framundan býður uppá
fjölmörg
tækifæri”. 

Umbætur í vátryggingarekstri
Hagnaður af
vátryggingastarfsemi var 342 m.kr. fyrir skatta á árinu 2009.
Afkoma eigna-,
slysa- og frjálsra ökutækjatrygginga batnar verulega milli ára
og er
ánægjulegt að sjá markvissa vinnu á þessum sviðum skila árangri.
Afkoma
lögboðinna ökutækjatrygginga er óbreytt milli ára þrátt fyrir verulega
fækkun
árekstra. Athygliverð þróun hefur átt sér stað í greininni þar sem
líkamstjónum
fjölgar á sama tíma og munatjónum fækkar verulega. Afkoma skipa-
og
ábyrgðartrygginga veldur vonbrigðum en mikil fjölgun varð á ábyrgðartjónum
í
kjölfar efnahagshrunsins. Þrátt fyrir nýjar áskoranir lækkar
tjónshlutfall
samstæðunnar úr 104% í 94%.



Kostnaðarlækkun
Rekstrarkostnaður TM fyrir árið 2009 var 2.192 m.kr.
Umfangsmiklar
hagræðingaraðgerðir á árinu skiluðu sér í lækkun
rekstrarkostnaðar í krónum
talið, annað árið í röð. Aðgerðirnar fólu m.a. í
sér einföldun á
stjórnskipulagi, fækkun stöðugilda, endurskoðun á samningum
við birgja,
hagræðingu í innkaupum og lækkun á markaðs- og sölukostnaði.
Kostnaðarhlutfall
samstæðunnar lækkar úr 23% í 20%. 


Traust
fjárhagsstaða
Viðsnúningur var í afkomu af fjárfestingastarfsemi félagins sem
nemur 4.989
m.kr. milli ára. 

Afkoma félagsins af fjárfestingastarfsemi
skýrist að mestu af vaxtatekjum,
kröfulækkun ríkistryggðra skuldabréfa og
hækkun hlutabréfa. Hagnaður af
aflagðri starfsemi nam 2.691 m.kr. Hann skýrist
af gengishagnaði við sölu á
norska vátryggingafélaginu Nemi, sem selt var á
fyrsta fjórðungi ársins.
Fjárhagsleg staða TM er sem fyrr sterk. Eignir á móti
vátryggingaskuld
(bótasjóður) eru traustar þar sem stór hluti eignasafns
félagsins er í
ríkistryggðum verðbréfum og innstæðum. Geta félagsins til að
standa við
skuldbindingar sínar er langt umfram það sem opinberir aðilar gera
kröfur um. 

Skýr stefna
Stjórnendur og starfsmenn TM horfa björtum augum
til framtíðar. Félagið hefur
allt frá stofnun þess árið 1956 einbeitt sér að
því að byggja upp traust í
samskiptum við viðskiptavini sína og mun halda
áfram á þeirri braut. Sóknarfæri
á markaði eru mörg fyrir TM og munu verkefni
ársins 2010 snúa að því að nýta
þau til fullnustu. 

Nánari upplýsingar
veitir Sigurður Viðarsson forstjóri, s. 515 2609
 


tm - arsreikningur 2009.pdf