Icelandic
Birt: 2010-01-29 17:49:53 CET
Origo hf.
Reikningsskil
Ársuppgjör 2009
Ársuppgjör Nýherja hf. 2009     

Helstu niðurstöður fyrir árið 2009

• 
Heildartekjur Nýherja samstæðunnar voru 14.332 mkr á árinu og drógust saman
  
um 4% frá fyrra ári. 
•  Jákvæð afkoma af vörusölu innanlands, en tap af
hugbúnaðarstarfsemi,
   tækniþjónustu og ráðgjöf. 
•  Verulegur halli á
rekstri dótturfélaga í Danmörku í fjórða ársfjórðungi.
•  EBITDA ársins var
neikvæð um 62 mkr, en afkoma batnaði innanlands á síðari
   árshelmingi.
Heildartap ársins nam 686 mkr 
•  Nýherji á í harðri og vaxandi samkeppni við
endurreist fyrirtæki í eigu
   banka. 
•  Viðskiptavild er færð niður um 322
mkr á grundvelli niðurstöðu
   virðisrýrnunarprófa dótturfélaga 
•  Ráðist
hefur verið í víðtækar hagræðingaraðgerðir, m.a. hefur starfsmönnum á
  
Íslandi fækkað um nær eitt hundrað á árinu. 
•  Unnið er með viðskiptabönkum
félagsins að endurskipulagningu skulda
   jafnhliða útgáfu á nýju hlutafé og
verður á aðalfundi lögð fram tillaga um að
   auka megi hlutafé um allt að 120
mkr að nafnvirði. 


Þórður Sverrisson, forstjóri:


„Rekstur Nýherja hf.
var afar erfiður á árinu 2009 og tap á rekstri. Aðstæður á
íslenskum markaði
einkenndust af miklum samdrætti í eftirspurn vegna minni
fjárfestinga
fyrirtækja í tæknibúnaði og uppsetningu hugbúnaðarkerfa.
Á
upplýsingatæknimarkaði hafa þessar aðstæður leitt til þrenginga en
tugir
milljarða króna hafa verið afskrifaðir af skuldum helstu keppinauta
félagsins
og fyrirtækin endurreist í eigu ríkisbanka. Þessar aðgerðir
raska
samkeppnisaðstæðum og afkomu annarra fyrirtækja á
upplýsingatæknimarkaði.
Nýherji hefur mætt þessum efnahagserfiðleikunum með
því að sjá á eftir á annað
hundrað starfsmanna sinna frá hruni bankanna. Í
janúar á þessu ári hefur reynst
nauðsynlegt að grípa til frekari
hagræðingaraðgerða til að mæta þeim óeðlilegu
aðstæðum sem eru á innlendum
markaði. 

Þó að óvissa sé mikil í efnahagslífinu eru jákvæð teikn um
viðunandi rekstur á
árinu 2010 þar sem horfur eru á að samningar náist um ýmis
stærri verkefni hjá
fyrirtækjum samstæðunnar hérlendis og erlendis. Til þess
að tryggja
fjárhagsstöðu félagsins er nú unnið með viðskiptabönkum að því að
ljúka
fjárhagslegri endurskipulagningu og samningum um langtíma fjármögnun í
samræmi
við þær aðgerðaáætlanir sem bankarnir hafa boðað gagnvart fyrirtækjum,
ásamt
aukningu á hlutafé Nýherja. Gert er ráð fyrir að því ferli verði lokið í
öðrum
ársfjórðungi“.



Nánari upplýsingar veitir:
Þórður Sverrisson,
forstjóri Nýherja, í síma +354 893 3630.


Nýherji hf.
Hlutverk Nýherja hf.
er að skapa viðskiptavinum sínum virðisauka með þekkingu
starfsmanna á
upplýsingatækni, rekstri fyrirtækja og þörfum viðskiptavina.
Nýherji býður
fyrsta flokks ráðgjöf og fagþjónustu á sviði upplýsingatækni og
vandaðan
tölvu-, skrifstofu- og hugbúnað ásamt traustri tækni- og
rekstrarþjónustu.
Félög Nýherja samstæðunnar í rekstri eru 19 bæði hér heima og
erlendis og er
heildarfjöldi stöðugilda 602. Hlutabréf Nýherja hf. eru skráð í
OMX Kauphöll
Íslands. 

Stjórn Nýherja: Benedikt Jóhannesson, stjórnarformaður, Árni
Vilhjálmsson og
Guðmundur Jóh. Jónsson, varamaður er Jafet S. Ólafsson. Þórður
Sverrisson er
forstjóri Nýherja.
 


nyherji.lykiltolur.31.12.2009.xls
nyherji 31.12.2009 - arsuppgjor.pdf
tilk 29.1.2010.pdf