Icelandic
Birt: 2009-10-23 18:44:36 CEST
Origo hf.
Reikningsskil
- Uppgjör Nýherja hf. fyrir þriðja ársfjórðung 2009
Uppgjör Nýherja hf. fyrir þriðja ársfjórðung 2009     

Helstu niðurstöður
fyrir níu mánuði ársins 2009

•	EBIDTA hagnaður nam 107 mkr á þriðja
ársfjórðungi

•	Góð afkoma af nýjum hugbúnaðarverkefnum erlendis

•	Rekstur
Applicon félaga í Danmörku og Svíþjóð er stöðugur

•	Heildarafkoma í
ársfjórðungnum var neikvæð um 107 mkr, en var neikvæð um 258 
         mkr
árið á undan

•	Áform um útgáfu á nýju hlutafé

Þórður Sverrisson,
forstjóri:

„Viðsnúningur varð á rekstri Nýherja hf. í þriðja ársfjórðungi
frá því sem
verið hefur síðustu þrjá ársfjórðunga. EBITDA hagnaður nam 107 mkr
og nálgast
að vera áþekkur því sem var í öðrum og þriðja ársfjórðungi 2008.
Sala á búnaði
og lausnum á Íslandi jókst eftir því sem leið á tímabilið, sem
gefur varfærnar
vísbendingar um betri horfur í sölu á rekstrar- og
tækniþjónustu. Nýherji hefur
lagt þunga áherslu á að lækka rekstarkostnað á
árinu sem hefur skilað sér í
bættri afkomu eftir því sem liðið hefur á árið og
mun áframhaldandi aðhald
styrkja rekstrarafkomu í fjórða ársfjórðungi.


Rekstur Applicon félaga í Danmörku og Svíþjóð er stöðugur og horfur
viðunandi
þrátt fyrir samdrátt í efnahagslífi landanna, en um þriðjungur
tekna
samstæðunnar kemur frá starfsemi erlendra dótturfélaga. 

Markaðsstaða
fyrir hugbúnaðarþjónustu og ráðgjöf á Íslandi hefur kallað á að
kannað sé með
tækifæri erlendis. Applicon ehf. og TM Software ehf., dótturfélög
Nýherja í
hugbúnaðarþjónustu, hafa brugðist við miklum samdrætti innanlands með
því að
leita markvisst eftir verkefnum erlendis og er nú svo komið að yfir
þriðjungur
tekna þessara félaga kemur af verkefnum fyrir erlenda aðila.
Nýherjasamstæðan
hefur markað þá stefnu að fjölga enn frekar verkefnum erlendis
fyrir ráðgjafa
og tæknimenn samstæðunnar, meðal annars með því að nýta góða
markaðsstöðu
dótturfélaga í Danmörku og Svíþjóð. 

Sem lið í að styrkja fjárhagsstöðu
Nýherja hf. hefur stjórn félagsins ákveðið
að hefja undirbúning að útgáfu og
sölu á nýju hlutafé.“ 


Rekstrarniðurstaða fyrir fyrstu níu mánuði ársins
2009

Fyrstu 9 mánuðir ársins -Lykiltölur (Sjá viðhengi)


Sala á vöru og
þjónustu nam 10.339 mkr fyrstu 9 mánuði ársins 2009, samanborið
við 10.918 
mkr á sama tímabili árið áður. Sala hefur því dregist saman um 5,3%
á milli
ára. Tekjur starfseminnar á Íslandi námu 6.960 mkr, en 3.379 mkr hjá
erlendum
dótturfélögum. 

Laun og launatengd gjöld námu 4.520 mkr en voru 4.345 mkr
fyrir sama tímabil
árið áður. Vegna gengisbreytinga hafa laun erlendra
starfsmanna hækkað um 46% í
íslenskum krónum fyrstu níu mánuði ársins 2009
miðað við sama tímabil árið
áður, eða um 648 mkr. Meðalfjöldi stöðugilda
fyrstu 9 mánuði ársins 2009 var
598 en var 714 fyrir sama tímabil árið áður.
Rekstrarkostnaður var um 1.647
mkr, en var 1.315 mkr yfir sama tímabil í
fyrra. Rekstrarhagnaður fyrir
afskriftir, fjármagnsliði og skatta - EBITDA -
var neikvæð um 9 mkr á
tímabilinu en EBITDA var jákvæð um 393 
mkr árið áður.


Hrein fjármagnsgjöld voru 504 mkr í samanburði við 1.058 mkr á sama
tímabili
árið 2008. Tap fyrstu 9 mánuði ársins 2009 var 984 mkr en tap fyrstu
9 mánuði
ársins 2008 nam 694 mkr. Heildartap nam 178 mkr, en heildartap fyrir
fyrstu níu
mánuði ársins 2008 nam 499 mkr. 

Efnahagsreikningur 30.09 2009-
Lykiltölur (Sjá viðhengi)

Heildareignir í lok tímabilsins voru 10.058 mkr
samanborið við 9.952 mkr í lok
ársins 2008. Langtímaskuldir hafa lækkað frá
árslokum úr 2.669 mkr í 2.379 mkr.
Skammtímaskuldir hafa hækkað frá árslokum
úr 5.319 mkr í 5.895 mkr. Eigið fé í
lok september 2009 var 1.785 mkr og er
eiginfjárhlutfall nú 17,8% en var 19,7%
um síðustu áramót.



Rekstrarniðurstaða á þriðja ársfjórðungi 2009

Fjórðungsyfirlit -
Lykiltölur (Sjá viðhengi)

Sala á vöru og þjónustu nam 3.301 mkr á þriðja
ársfjórðungi, samanborið við
3.664 mkr á sama tímabili árið 2008. Tekjur hafa
dregist saman um 9,9% frá
þriðja ársfjórðungi 2008. 

Laun og launatengd
gjöld námu 1.357 mkr en voru 1.426 mkr fyrir sama tímabil
2008. Heildarfjöldi
stöðugilda í lok tímabilsins var 628 en var 721 fyrir sama
tímabil í fyrra.
Vegna gengisbreytinga hafa laun erlendra starfsmanna hækkað um
43% í íslenskum
krónum milli þriðja ársfjórðungs 2008 og 2009, eða um 197 mkr. 


Rekstrarkostnaður var 527 mkr á þriðja ársfjórðungi en var 361 mkr á sama
tíma
á árinu 2008. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta
-
EBITDA - var jákvæð um 107 mkr á tímabilinu en EBITDA var jákvæð um 125 mkr
á
sama tímabili fyrir árið 2008. 

Hrein fjármagnsgjöld voru 171 mkr í
samanburði við 389 mkr á þriðja
ársfjórðungi 2008. Heildartap í fjórðungnum
nam 107 mkr en heildartap á þrðja
ársfjórðungi í fyrra nam 258 mkr.



Yfirlit yfir rekstur í þriðja ársfjórðungi

Hugbúnaðarsala hjá Nýherja
hf. var vel yfir áætlun í þriðja ársfjórðungi og
talsvert betri miðað við sama
tímabil í fyrra. Sala á netþjónum er lítillega
undir áætlunum, enda hefur
orðið umtalsverður samdráttur á markaðnum milli ára.
Þá hefur eftirspurn
dregist saman í tölvu- og samskiptabúnaði. Sala á
rekstrarvörum og aukabúnaði
fyrir fyrirtæki hefur verið ágæt og vaxið eftir því
sem liðið hefur á árið en
sala á prentlausnum er minni en ráð var fyrir gert.
Afkoma Nýherja móðurfélags
var jákvæð en undir áætlum. 

Rekstur Sense ehf., sem er sérhæft í hljóð- og
myndlausnum og rekur Sony Center
og Sense Center í Kringlunni, gekk vel. Sala
á neytendabúnaði, svo sem frá
Canon, Sony og Vivanco, hefur verið stöðug á
árinu. Þá hefur ræst úr
verkefnastöðu hjá tækniþjónustu félagsins á Íslandi og
erlendis og eru horfur
fyrir fjórða ársfjórðung ágætar. 

Jákvæður
viðsnúningur varð hjá tækni- og rekstrarþjónustufyrirtækinu Skyggni
ehf. á
þriðja ársfjórðungi. Verkefnum fjölgaði eftir því sem leið á
tímabilið,
eftirspurn jókst eftir ýmis konar sérlausnaþjónustu, svo sem
í
hagræðingarverkefnum. Þá hóf Skyggnir að bjóða kerfisveituþjónustu í
Danmörku í
samstarfi við systurfélagið Dansupport og eru vonir bundnar við að
verkefnið
skili árangri á fjórða ársfjórðungi. Bætt afkoma í lok þriðja
ársfjórðungs
gefur tilefni til þess að ætla að afkoma á fjórða ársfjórðungi
verði
ásættanleg. 

TM Software ehf. hefur lagt áherslu á verkefni erlendis
í ljósi þess samdráttar
sem hefur orðið í sölu hugbúnaðarverkefna á Íslandi.
Hraður samdráttur og erfið
rekstrarskilyrði hér hafa haft þær afleiðingar að
tap er í ársfjórðungum.
Aukning í verkefnum erlendis er þó komin á það stig að
seinni hluti þriðja
ársfjórðungs gefur væntingar um að botninum sé náð og hæg
uppbygging og jákvæð
rekstrarafkoma sé framundan. Rekstur EMR ehf,
dótturfyrirtæki TM Software, sem
sérhæfir sig í heilbrigðistengdri
upplýsingatækni, var góður á tímabilinu en
fyrirtæki og stofnanir í
heilbrigðisþjónustu á Íslandi hafa í auknum mæli nýtt
upplýsingatækni frá EMR
til að ná fram hagræðingu í sinni starfsemi. 

Tvíbent markaðsstaða fyrir
hugbúnaðarþróun hefur haft áhrif á rekstur Vigor
ehf., sem hefur brugðist við
breyttum aðstæðum með lækkun á rekstrarkostnaði,
sem áætlað er að skili betri
afkomu á fjórða ársfjórðungi. Vigor, sem selur
alhliða viðskiptahugbúnað,
hefur sterka stöðu í þjónustu fyrir flest stærri
orkufyrirtæki landsins.


Ágætur hagnaður var af starfsemi Applicon ehf. á þriðja ársfjórðungi, en
það
tímabil er jafnan erfiðast í rekstri fyrirtækisins. Skipulagsbreytingar,
á
fyrri helmingi ársins, og öflug sölustarfsemi hérlendis og erlendis hafa
skilað
sér í lægri kostnaði og bættri verkefnastöðu. Tekjur voru umfram
væntingar,
einkum vegna verkefna erlendis yfir sumarmánuðina. Tæplega
helmingur af
þjónustutekjum í ársfjórðungnum byggja á nýjum verkefnum fyrir
erlenda
viðskiptavini, og er  verkefnastaða og horfur fyrir fjórða ársfjórðung
góðar. 

Góður gangur var í starfsemi dótturfélaga Nýherja í Danmörku og
Svíþjóð. Tekjur
hjá Applicon í Danmörku voru ágætar í ársfjórðungnum en
félagið hefur sterka
stöðu á danska markaðnum og er unnið að því að afla
frekari verkefna hjá stærri
fyrirtækjum þar í landi. Ekki hefur verið vöxtur á
dönskum
upplýsingatæknimarkaði á þessu ári,  en áætlanir greiningaraðila gera
ráð fyrir
að vaxtartímabil hefjist á næsta ári. Rekstur Applicon í Svíþjóð er
samkvæmt
áætlun. Félagið hefur að undanförnu unnið verkefni fyrir nokkra af
stærstu
bönkum Norðurlanda; Nordea, Swedbank og Handelsbanken. Horfur um
afkomu í
fjórða ársfjórðungi eru ágætar. Náið samstarf Applicon félaganna í
Danmörku,
Svíþjóð og á Íslandi hefur skilað sér í nýjum verkefnum, svo sem hjá
ING
bankanum í Hollandi og Nationwide bankanum í Bretlandi. 

Dansupport
hefur unnið að því að lækka rekstarkostnað sem hefur skilað sér í
bættri
afkomu á þriðja ársfjórðungi. Þar er verkefnastaðan þokkaleg og gert ráð
fyrir
að afkoma verði jákvæð á fjórða ársfjórðungi. 

Horfur
Náðst hefur
viðsnúningur í rekstrarafkomu Nýherjasamstæðunnar með mikilli
lækkun
kostnaðar, kröftugri sölustarfsemi og bættri nýtingu ráðgjafa og
tæknimanna.
Stefnt er að betri rekstrarafkomu í fjórða ársfjórðungi 2009 og eru
horfur á
næsta ári jákvæðar. 


Fjárhagsdagatal fyrir 2009:
Áætluð birting
árshlutauppgjörs fyrir árið 2009.

Fjórði ársfjórðungur:	29.
janúar

Samþykkt árshlutareiknings
Árshlutauppgjör fyrir þriðja ársfjórðung
2009 var samþykkt á stjórnarfundi
Nýherja hf. 23. október 2009.
Árshlutauppgjör Nýherja hf. er gert í samræmi við
alþjóðlega
reikningsskilastaðla (IFRS-International Financial Reporting
Standards).
Þýðingarmunur erlendra dótturfélaga er nú tilgreindur í yfirliti
um
heildarafkomu árshlutareiknings í samræmi við ákvæði alþjóðlega staðalsins.



Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir:
Þórður Sverrisson,
forstjóri Nýherja, í síma +354 893 3630.

Nýherji hf.
Hlutverk Nýherja hf.
er að skapa viðskiptavinum sínum virðisauka með þekkingu
starfsmanna á
upplýsingatækni, rekstri fyrirtækja og þörfum viðskiptavina.
Nýherji býður
fyrsta flokks ráðgjöf og fagþjónustu á sviði upplýsingatækni og
vandaðan
tölvu-, skrifstofu- og hugbúnað ásamt traustri tækni- og
rekstrarþjónustu.
Félög Nýherja samstæðunnar í rekstri eru 20 bæði hér heima og
erlendis og er
heildarfjöldi stöðugilda 628. Hlutabréf Nýherja hf. eru skráð í
OMX Kauphöll
Íslands. 

Stjórn Nýherja: Benedikt Jóhannesson, stjórnarformaður, Árni
Vilhjálmsson og
Guðmundur Jóh. Jónsson. Þórður Sverrisson er forstjóri
Nýherja.
 


nyherji arshlutar. 30.9.2009 ifrs.pdf
nyherji lykiltolur 30 9 2009.xls
uppgjor nyherja hf 3 arsfjorungur 23 10 2009.pdf