Icelandic
Birt: 2009-10-19 11:59:59 CEST
Exista hf.
Reikningsskil
- Ársuppgjör Exista fyrir árið 2008
Exista hf. birtir í dag uppgjör vegna ársins 2008:
• Bókfært eigið fé nam 200
milljónum evra (34 milljarðar króna), lækkaði um rúm
  90% 
• Heildareignir
námu 2,3 milljörðum evra (391 milljarður króna), lækkuðu um rúm
  70% 
•
Heildarskuldir lækkuðu um 3,5 milljarða evra (602 milljarðar króna), eða 63%
•
Afkoma eftir skatta var neikvæð um 1,6 milljarð evra á árinu (206 milljarða
 
króna) 
• Fall Kaupþings banka hf. og sala eignarhluta Exista í Sampo Group
hafði
  verulega  neikvæð áhrif á afkomu á árinu 2008 
• Exista brást við
ytri áföllum á fjórða ársfjórðungi með sölu eigna, meðal
  annars í Sampo og
Storebrand 
• Söluandvirði eigna notað til að greiða niður skuldir


Exista
á í viðræðum við helstu lánveitendur um fjárhagslega endurskipulagningu
og
framtíð félagsins. 

Exista bíður niðurstöðu í dómsmálum um uppgjör
gjaldmiðlasaminga við Kaupþing
banka og Glitni banka. Niðurstöður þeirra mála
munu skipta verulegu máli
varðandi afkomu félagsins og eigið fé.
 


afkomuskyrsla exista 2008.pdf
exista annual results 2008.pdf