Icelandic
Birt: 2009-10-07 11:26:19 CEST
Eik fasteignafélag hf.
Fyrirtækjafréttir
Samkomulag milli Eikar fasteignafélags, Húsasmiðjunnar og Landsbankans
Í skýrslu stjórnar í árshlutareikningi Eikar fasteignafélags, sem birtur var
í
ágúst síðastliðnum, kom fram að Húsasmiðjan, sem er stærsti
leigutaki
félagsins, hafi óskað eftir viðræðum um leigulækkun í tengslum
við
endurfjármögnun Húsasmiðjunnar. 

Samkomulag hefur náðst milli Eikar
fasteignafélags, Húsasmiðjunnar og
Landsbankans þess eðlis að Landsbankinn
breytir hluta af kröfum sínum á
Húsasmiðjuna í eigið fé og tryggir þar með
áframhaldandi rekstur hennar.  Eik
fasteignafélag mun hleypa Húsasmiðjunni úr
einum leigusamning þar sem enginn
rekstur er.  Einnig mun félagið veita
Húsasmiðjunni tímabundna leigulækkun sem
mun að hluta til vera tengd árangri
Húsasmiðjunnar á næstu árum.  Áætluð áhrif
þess á eigið fé Eikar
fasteignafélags eru um tvö hundruð milljón krónur. 

Frekari upplýsingar
veitir Garðar Hannes Friðjónsson forstjóri Eikar
fasteignafélags í síma
590-2200.