Icelandic
Birt: 2009-09-28 18:53:30 CEST
Byggðastofnun
Reikningsskil
Árshlutauppgjör Byggðastofnunar 30. júní 2009
Árshlutareikningur Byggðastofnunar fyrir tímabilið janúar til júní 2009,
var
staðfestur af stjórn stofnunarinnar 28. september 2009. 

Tap
tímabilsins nam 1.663 mkr.  Samkvæmt árshlutauppgjörinu er eigið
fé
stofnunarinnar neikvætt um 118,7 mkr. 

Helstu niðurstöður úr
árshlutauppgjöri Byggðastofnunar fyrir tímabilið janúar
til júní 2009 
• Tap
stofnunarinnar á tímabilinu nam 1.663 mkr.
• Hreinar vaxtatekjur voru jákvæðar
um 425,6 mkr. samanborið við 207,4 mkr.
jákvæðar vaxtatekjur á sama tímabili
2008. 
• Rekstrartekjur námu 310,2 mkr.
• Almenn rekstrargjöld námu 237,6
mkr.
• Framlög í afskriftarreikning útlána og matsbreyting hlutafjár námu
2.161 mkr.
• Eignir námu 22.790 mkr. og hafa lækkað um 518.6 mkr. frá
áramótum.  Þar af
voru útlán 18.901 mkr. 
• Skuldir námu 22.909 mkr. og hafa
hækkað um 1.145 mkr. frá áramótum.
• Veittar ábyrgðir utan efnahagsreiknings
námu 374,8 mkr. 
• Eiginfjárhlutfall skv. lögum um fjármálafyrirtæki er -4,74%
en skal að
lágmarki vera 8% 

Um árshlutauppgjörið
Vegna þeirra erfiðleika
sem dunið hafa yfir íslenskt efnahagslíf undanfarna
mánuði hefur stofnunin
þurft að leggja aukna fjármuni inn á afskriftarreikning
útlána vegna
mögulegrar taphættu.  Á tímabilinu nam þessi fjárhæð 1.930 mkr. í
samanburði
við 1.237 mkr. allt árið 2008.  Skýrist tap stofnunarinnar og
neikvætt
eiginfjárhlutfall á tímabilinu af þessum varúðarfærslum. 


Hreinar
vaxtatekjur stofnunarinnar námu 425,6 mkr. og hafa aukist jafnt og
þétt
undanfarin ár. 

Nýjar lánveitingar drógust saman á tímabilinu og námu
612 mkr. samanborið við
2.239 mkr. á sama tímabili 2008. 

Í byrjun ársins
gaf stofnunin út skuldabréf og bauð í lokuðu útboði og nam
útgáfufjárhæðin
1.000 mkr.  Töluverð umframeftirspurn var eftir skuldabréfunum
en fyrirhugað
er að bæta við skuldabréfaflokkinn síðar á þessu ári.


Horfur
Fjármálaeftirlitið hefur gefið stofnuninni frest til 8. desember
2009 til að
koma eiginfjárhlutfallinu upp fyrir 8% lágmark. 

Af hálfu
stjórnar hefur iðnaðarráðherra verið gerð grein fyrir stöðu mála. 
Nauðsynlegt
er að auka eigið fé stofnunarinnar til að uppfylla kröfur laga nr.
161/2002

um fjármálafyrirtæki um lágmarkseiginfjárhlutfall fjármálafyrirtækja.  
Verði
það ekki gert leikur verulegur vafi á áframhaldandi
rekstrarhæfi
stofnunarinnar. 

Iðnaðarráðherra og fjármálaráðherra hafa lýst
því yfir að ríkisstjórnin hafi
ákveðið að leita heimilda á fjáraukalögum til
að tryggja lágmarks
eiginfjárhlutfall stofnunarinnar. 

Nánari
upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri
Byggðastofnunar í
síma 455 5400 eða á netfanginu adalsteinn@byggdastofnun.is
 


arshlutauppgjor 2009.pdf
frettatilkynning v arshlutauppgjors 2009 og lykiltolur.pdf