English Icelandic
Birt: 2009-06-24 16:57:06 CEST
Icelandair Group hf.
Fyrirtækjafréttir
-Hlutafjáraukning hjá Travel Service
Í dag var undirritað samkomulag um aukningu hlutafjár í Travel
Service,
dótturfélagi Icelandair Group í Tékklandi.  Meðeigendur Icelandair
Group, 
Unimex Group og Roman Vik skrá sig fyrir nýju hlutafé í félaginu og
auka hlut
sinn úr 34% í 49,9%. Með hlutafjáraukningunni minnkar hlutur
Icelandair Group
úr 66% í 50,1%.  Hækkunin hefur engin áhrif á rekstur
Icelandair Group en eigið
fé lækkar um 300 milljónir króna. 

„Með þessari
hlutafjáraukningu er verið að styrkja stöðu Travel Service.
Rekstur félagsins
hefur gengið vel á þessu ári og betur en áætlanir gerðu ráð
fyrir.  Við
núverandi aðstæður í alþjóðlegum flugrekstri skapast ýmis tækifæri
til vaxtar
sem félagið er að skoða.  Með hlutafjáraukningunni er félagið betur
í stakk
búið til að styrkja stöðu sína á markaðnum í nánustu framtíð.“
segir
Björgólfur Jóhannsson forstjóri Icelandair Group. 


Nánari
upplýsingar veita:

Björgólfur Jóhannsson, Forstjóri Icelandair Group        
      Sími:896-1455
Bogi Nils Bogason,     Framkv.stj Fjármála Icelandair
Group     Sími:665-8001
Sigþór Einarsson,      Aðst.forstjóri Icelandair Group
         Sími:897-8363