Icelandic
Birt: 2009-05-29 11:10:33 CEST
Kvika banki hf.
Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum
- Nýr forstjóri MP Banka
Gunnar Karl Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri Skeljungs og
stjórnarformaður
Tryggingamiðstöðvarinnar hefur verið ráðinn forstjóri MP
Banka.  Gunnar Karl er
fæddur árið 1959 og lauk hagfræðiprófi frá Ohio
University árið 1985.  Gunnar
hefur lengst af starfað hjá Skeljungi hf. 
aðallega við fjármálastjórnun og
áhættustýringu.   Hann varð aðstoðarforstjóri
Skeljungs árið 2000 og síðan
forstjóri árið 2003. 

Gunnar Karl hefur gegnt
fjölda trúnaðarstarfa í íslensku atvinnulífi og er nú
m.a. stjórnarmaður í
Samtökum atvinnulífsins og Samtökum verslunar og þjónustu.
MP Banki stendur nú
á þeim tímamótum að vera orðinn alhliða viðskiptabanki. 
Það er mat stjórnar
MP Banka að reynsla Gunnars og þekking á sviði stjórnunar
og stefnumótunar
muni nýtast honum afar vel til að leiða uppbyggingu og sókn
bankans.


Stjórn MP Banka þakkar Styrmi Þór Bragasyni, fráfarandi forstjóra,  vel
unnin
störf í þágu bankans, ekki síst í aðdraganda og kjölfars bankahrunsins í
haust.
Styrmir mun um 12 mánaða skeið starfa að verkefnum
tengdum
fjárfestingabankahluta MP Banka, sitja í stjórnum nokkurra félaga
fyrir
bankann  og  sinna verkefnum  erlendis. 

MP Banki var stofnaður árið
1999 og fagnaði 10 ára afmæli sínu þann 11. maí
síðastliðinn.  Fyrirtækið fékk
fjárfestingarbankaleyfi árið 2003 og síðan
viðskiptabankaleyfi seint á síðasta
ári.  MP banki náði að skila 860 milljóna
króna hagnaði árið 2008 og 15%
ávöxtun eigin fjár þrátt fyrir mjög mótdræg ytri
skilyrði á fjármálamarkaði.  
Viðskiptavinum hefur fjölgað mjög mikið
undanfarna mánuði og nú hefur bankinn
haslað sér völl á almennum
viðskiptabankamarkaði til að geta veitt alhliða
þjónustu.  Bankinn er með hæstu
markaðshlutdeild  í viðskiptum með skuldabréf
í Kauphöll Íslands og er
aðalmiðlari í öllum flokkum ríkistryggðra verðbréfa. 
  Aðalskrifstofa bankans
er að Skipholti 50d auk þess sem hann rekur
bankaútibú og þjónustumiðstöð að
Borgartúni 26.  Starfsmenn eru nú 75 talsins
og hefur þeim fjölgað mikið á
þessu ári.