Icelandic

Þessi tilkynning hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að skoða leiðrétta tilkynningu

Birt: 2009-04-03 21:48:34 CEST
Sparisjóðurinn í Keflavík
Reikningsskil
- Ársreikningur 2008
Afkoma Sparisjóðsins í Keflavík var neikvæð um 17.042 m.kr. að teknu
tilliti
til tekjuskatts. Eiginfjárhlutfall Sparisjóðsins er 7,06%. Afkoma
Sparisjóðsins
fyrir skatta var neikvæð um 19.064 m.kr. Tap Sparisjóðsins má
fyrst og fremst
rekja til eignarýrnunar vegna efnahagshrunsins og
varúðarniðurfærslu á
útistandandi kröfum. Að teknu tilliti til sértækra
aðgerða og væntanlegs
framlags ríkissjóðs samkvæmt heimild í 2. gr. laga nr.
125/2008 (Neyðarlög)
gera áætlanir ráð fyrir því að í lok apríl verði
eiginfjárhlutfall sjóðsins
komið í 13,83%.
 
Eiginfjárhlutfall
sparisjóðsins
Útlánaskoðun Fjármálaeftirlisins hjá Sparisjóðnum í Keflavík
fyrri hluta
marsmánaðar leiddi til enn frekari niðurfærslu á útlánaeignum en
drög að
ársuppgjöri höfðu gert ráð fyrir. Við reikningsskilin um áramót hefur
að fullu
verið tekið tillit til þeirra ábendinga sem þýðir að í ársreikningi
er
eiginfjárhlutfall (CAD) Sparisjóðsins í Keflavík 7,06%, eins og það
er
skilgreint í 84. gr. laga nr. 161/2002. 

Í ljósi þess að
eiginfjárgrunnur Sparisjóðsins í Keflavík var samkvæmt þessu
kominn undir hið
lögboðna 8% hlutfall, hefur stjórn Sparisjóðsins þegar gripið
til aðgerða
þ.m.t. sent Fjármálaeftirlitinu greinagerð um hvaða ráðstafana
verður gripið
til. Vinna hefur verið lögð í að laga gjaldeyrisjöfnuð
Sparisjóðsins, en með
setningu reglugerðar 1130 frá 15. desember 2008 voru
afleiðuviðskipti þar sem
króna er í samningi gagnvart erlendum gjaldmiðlum
óheimil. Afleiðing af
þessari lagasetningu var að gjaldeyrisjöfnuður varð
ójafn. 

Aðgerðir til að
bæta eiginfjárhlutfallið hafa snúist um að færa útlán á milli
gjaldmiðla og
hefur töluverður ávinningur náðst nú þegar sem hefur beint áhrif
á
eiginfjárhlufall Sparisjóðsins. Við þessar breytingar
eykst
eiginfjárhlutfallið um 0,92% og verður 7,98%. Sparisjóðurinn hefur
einnig
fengið vilyrði fyrir víkjandi láni að fjárhæð 350 milljónir sem
styrkir
eiginfjárgrunn sjóðsins. Þessar aðgerðir munu laga eiginfjárhlutfallið
sem
nemur 0,38% sem þýðir að Sparisjóðurinn nær þá 8,36% eiginfjárhlutfalli.
Þessu
til viðbótar hefur stjórn Sparisjóðsins í Keflavík sótt um aðstoð frá
ríkinu
byggt á neyðarlögunum nr. 125/2008 sem sett voru í október 2008. Til
viðbótar
við aðgerðir stjórnar myndi eiginfjárhlutfall Sparisjóðsins lagast
sem nemur
5,47% ef þessi aðstoð gengi eftir, og verða 13,83%. 

Gripið hefur
verið til verulegra aðhaldsaðgerða í rekstri og m.a. hafa æðstu
stjórnendur og
verulegur hluti starfsmanna gefið eftir hluta launa sinna. Þá
hefur störfum
fækkað sem nemur 22 stöðugildum á síðastliðnum 12 mánuðum. Gengið
verður enn
lengra í aðhaldsaðgerðum á næstunni.

Helstu niðurstöður úr rekstar- og
efnahagsreikningi: 

•  Afkoma Sparisjóðsins í Keflavík fyrir árið 2008 var
neikvæð um 19.064 m.kr.
   fyrir skatta samanborið við 2.234 hagnað árið 2007.
Tap eftir skatta nam
   17.042 m.kr. samanborið við 1.890 m.kr. hagnað árið
2007 

•  Hreinar vaxtatekjur námu 552,6 m.kr. og jukust um 8,6% frá fyrra
ári.
   Hreinar þjónustutekjur námu 436 m.kr. samanborið við 414,9 m.kr. árið
2007. 

•  Hreint rekstartap nam 9.903 m.kr. samanborið við tekjur að fjárhæð
3.904
   m.kr. árið 2007. Rekstargjöld námu 2.396 m.kr. á árinu 2008
samanborið við
   1.506 m.kr. árið 2007. 

•  Útlán til viðskiptamanna námu
84.479 m.kr. í lok árs 2008 samanborið við
   62.369 m.kr. í lok árs 2007.
Vaxtamunur tímabilsins var 0,6% samanborið við
   1,2% á árinu 

• 
Virðisrýrnun nam 6.764 m.kr. á árinu 2008 í samanburði við 164 m.kr. árið
  
2007. Afskriftarreikningur lána og krafna nam í árslok 2008 7,5% af útlánum
  
og veittum ábyrgðum en var 1,6% í árslok 2007. 

•  Eigið fé í árslok nam
5.409 m.kr.og hefur dregist saman um 20.052 m.kr.
   milli ára.
Eiginfjárhlutfall Sparisjóðsins í Keflavík er 7,06%. 


Rekstrarreikningur:
Sjá viðhengi.

Efnarhagsreikningur: Sjá viðhengi



Lausafjárstaða og
fjármögnun

Samningur milli sparisjóðsins og Íbúðalánasjóðs var undirritaður
í mars um að
sparisjóðurinn selji Íbúðalánasjóði safn skuldabréfa, að fjárhæð
um 10
milljarðar króna, tryggt með veði í íbúðarhúsnæði í samræmi við heimild
til
slíkra kaupa skv. lögum nr. 125/2008, reglugerð nr. 1081/2008 og
reglur
Íbúðalánasjóðs um kaup á skuldabréfum fjármálafyrirtækja.
Íbúðalánasjóður
greiddi 80% af uppreiknuðu virði safnsins og eftirstöðvarnar,
eða 20%, er krafa
sparisjóðsins á Íbúðalánasjóð sem kemur til með að verða
gerð upp að 8 árum
liðnum. 

Samningar hafa náðst við erlenda lánadrottna en
sparisjóðurinn skuldar nú tvö
erlend sambankalán að fjárhæð 49 milljónir evra.
Gjalddagi var á öðru láninu
þann 27. mars og náðist samkomulag um að greiða
hluta lánsins á gjalddaganum og
framlengja hluta. Næsti stóri gjalddagi á
erlendu láni er í maí 2010.
 
Ljóst er að fjármögnun sparisjóða verður að
mestu í formi innlána næstu
misserin. Skuldabréfamarkaður með bankabréf er
ekki lengur fyrir hendi né
millibankamarkaður með lán. Sparisjóðurinn í
Keflavík hefur á síðastliðnum 10
mánuðum greitt um 15 milljarða króna af sínum
skuldum til erlendra og innlendra
fjármálastofnanna. 

Eins og áður sagði þá
hefur stjórn Sparisjóðsins í Keflavík sótt um aðstoð frá
ríkinu byggt á
neyðarlögunum nr. 125/2008 sem sett voru í október 2008. Til
viðbótar við
aðgerðir stjórnar myndi eiginfjárhlutfall Sparisjóðsins lagast sem
nemur 5,47%
ef þessi aðstoð gengi eftir og verða 13,83%. Framlagið er um 5
milljarðar
króna og styrkir lausafjárstöðuna. 

Horfur
Mikil óvissa er um þróun og
horfur á næstu misserum. Því er erfitt að spá fyrir
um það með vissu hversu
hátt eiginfjárhlutfall er nauðsynlegt hjá
fjármálafyrirtæki til að mæta þeim
erfiðleikum sem framundan eru í íslensku
efnahagslífi. Sparisjóðurinn verður
að teljast frekar vel í stakk búinn að því
leyti. Sparisjóðurinn í Keflavík er
öflug stofnun með sterka markaðshlutdeild á
Suðurnesjum, Vestfjörðum,
Snæfellsnesi og í Húnaþingi. Mikill fjöldi
einstaklinga skiptir við sjóðinn,
en eignarhaldsfélög og stærri fyrirtæki eru í
mjög litlum mæli í
viðskiptamannahópnum. Mikil dreifing og fjölbreytni í hópi
viðskiptamanna
verður að teljast jákvæð á komandi misserum. 

Áætlanir sparisjóðsins taka
mið af þeim erfiðu aðstæðum sem framundan eru.
Sjóðurinn stóð sterkum fótum
áður en áföll dundu yfir í október og hann á því
eftir talsverðan hluta eigin
fjár síns og starfsemi hans hefur verið ótrufluð
að mestu. Stjórn sjóðsins
telur því að áætlanir séu bæði trúverðugar og
líklegar til þess árangurs að
geta haldið áfram þeirri starfsemi sem verið
hefur til heilla fyrir
viðskiptavini vítt og breitt um landið. 

Nánari upplýsingar veitir
Geirmundur Kristinsson, sparisjóðsstjóri, í síma
421-6605.Rekstrarreikningur
 


spkef - 12 2008.pdf
spkef frettatilkynning.pdf