Icelandic
Birt: 2009-03-11 13:15:54 CET
Byggðastofnun
Reikningsskil
Ársreikningur 2008
Ársreikningur Byggðastofnunar 2008                                             


Hlutverk Byggðastofnunar er að vinna að eflingu byggðar og atvinnulífs á   
    
landsbyggðinni. Stofnunin undirbýr, skipuleggur og fjármagnar verkefni og
veitir
lán með það að markmiði að treysta byggð, efla atvinnu og stuðla að
nýsköpun í  
atvinnulífi. Byggðastofnun fylgist einnig með þróun byggðar í
landinu og vinnur 
að byggðaáætlun í samvinnu við Iðnaðarráðherra.            
                    

Byggðastofnun er með skrifstofu sína á Sauðárkróki.  Á
árinu 2008 störfuðu 20   
starfsmenn hjá stofnuninni.                         
                           

Ársreikningur Byggðastofnunar 2008 var
staðfestur af stjórn stofnunarinnar 10.  
mars 2009.                          
                                           

Hreinar vaxtatekjur námu 459.621
þús. kr. miðað við 221.579 þús. kr. árið 2007. 
Rekstrartekjur námu 1.230.450
þús. kr. og rekstrargjöld 557.656 þús. kr.  Að    
meðtölum framlögum í
afskriftarreikning útlána og endurmati hlutafjáreignar eru 
heildar
rekstrargjöld 2.218.055 þús. kr.  Framlög í afskriftarreikning útlána
og
niðurfært hlutafé nam 1.660.399 þús. kr.  Skýrast þessi háu framlög í      
    
afskriftarsjóð af tvöföldun efnahagsreiknings hennar, en 75% af
útlánasafni     
stofnunarinnar er í erlendri mynt.  Vegna falls íslensku
krónunnar var framlag í
varasjóð vegna útlána 1.237.392 þús kr. og endurmat á
hlutafjáreign 421.567 þús.
kr.   Hér er því um varúðarfærslu að ræða. 
Endanlega töpuð útlán á árinu 2008  
námu 266.214 þús. kr. sem er 1,35% af
heildarútlánum í lok árs.  Er það lægsta  
hlutfall sem sést hefur í sögu
stofnunarinnar og sýnir styrk útlánasafns hennar.
                            
                                                   
Tap ársins nam því 527.984
þús. kr. miðað við 179.372 þús. kr. tap árið 2007.   
Eignir Byggðastofnunar í
lok árs 2008 námu 23.308.932 þús. kr., þar af námu     
útlán 19.703.499 þús.
kr. og hafa hækkað um 10.206.560 þús. kr. frá lok árs     
2007.  Skuldir
Byggðastofnunar námu 21.661.349 þús. kr. og hafa hækkað um       
10.880.523
þús. kr. frá árinu 2007.                                             

Á
árinu veitti stofnunin ný lán að fjárhæð 3.880.601 þús kr. en samsvarandi    

fjárhæð árið 2007 nam 2.009.980 þús. kr.                                     
  

Veittar ábyrgðir utan efnahagsreiknings voru um áramótin 363.914 þús. kr.
      
Varanlegir rekstrarfjármunir Byggðastofnunar voru 3,53% af eigin fé.   
        

Eigið fé Byggðastofnunar nam 1.544.537 þús. kr. eða 6,63% af
niðurstöðu         
efnahagsreiknings og hefur lækkað úr 2.072.520 þús. kr. 
Eiginfjárhlutfall      
stofnunarinnar samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki er
2,80%.  Samkvæmt ákvæðum  
laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki skal eigið
fé lánastofnunar á hverjum    
tíma eigi nema lægri fjárhæð en sem svara 8% af
áhættugrunni.                   

Skýrist lækkun eiginfjárhlutfallsins af
tvöföldun efnahagsreiknings hennar, en  
eins og kemur fram hér að ofan er 75%
af útlánasafni stofnunarinnar er í        
erlendri mynt.  Vegna falls
íslensku krónunnar var framlag í varasjóð vegna     
útlána 1.237.392 þús kr.
og endurmat á hlutafjáreign 421.567 þús. kr.
 


arsreikningur 2008.pdf
lykiltolur me arsreikningi 31.12.2008.pdf