English Icelandic
Birt: 2008-11-28 21:24:29 CET
Atorka Group hf.
Reikningsskil
Níu mánaða uppgjör 2008
Helstu niðurstöður úr 9 mánaða uppgjöri Atorku Group
hf.:


Móðurfélagsreikningur:
•  Tap eftir skatta á þriðja ársfjórðungi
ársins var 2,3 milljarðar króna
•  Tap eftir skatta á fyrstu níu mánuðum
ársins var 6,3 milljarðar króna
•  Heildareignir í lok september voru 58,2
milljarðar króna
•  Eigið fé var 14,6 milljarðar króna í lok september
• 
Eiginfjárhlutfall í lok september var um 25,1 %

•  Fjárfestingaverkefni
Atorku eru öll í rekstrarfélögum í sérhæfðri framleiðslu
   og þjónustu 
• 
Flest verkefnin eru í vaxtargeirum s.s. endurnýtanlegri orku,
  
vatnshreinsiiðnaði, umhverfistækni og umbúðaframleiðslu 
•  Eignarhlutur
Atorku er almennt 20-40% til að tryggja veruleg áhrif varðandi
   stefnumörkun
og stjórnun 
•  Rekstur flestra þessara félaga er utan Íslands og flest þeirra
starfa á
   alþjóðlegum mörkuðum 
•  Nær öll þessi félög eru rekin með
hagnaði skv. síðustu uppgjörum



Samstæðureikningur:
•  Tap eftir skatta
í samstæðureikningi Atorku Group hf. á þriðja ársfjórðungi
   var 2,7
milljarðar króna 
•  Tap eftir skatta í samstæðureikningi Atorku Group hf. á
fyrstu níu mánuðum
   ársins var 11,4 milljarðar króna 
•  Rekja má stærstan
hluta af tapi í samstæðureikningi til mikillar veikingar
   krónunnar 
• 
Tekjur á fyrstu 9 mánuðum ársins voru 69,9 milljarðar króna
•  Heildareignir
samstæðunnar í lok september voru 129 milljarðar króna
•  Eigið fé var 0,2
milljarðar í lok september
•  Afkoma og starfsemi Atorku endurspeglast í
móðurfélagsreikningi en ekki í
   samstæðureikningi. Því eru ákvarðanir teknar
út frá móðurfélaginu, til að
   mynda gengisvarnir sem verja fjárfestingar
móðurfélagsins fyrir sveiflum á
   gjaldeyrismarkaði en koma nú fram sem tap í
samstæðureikningi við veikingu
   krónunnar 


Helstu atburðir eftir lok 3.
ársfjórðungs Atorku Group hf.:
•  Unnið er að endurfjármögnun skulda félagsins
í samvinnu við viðskiptabanka
   félagsins 
•  Hluthafafundur samþykkti með
yfirgnæfandi meirihluta atkvæða afskráningu úr
   Kauphöll Íslands 
•  Atorka
vann fullnaðarsigur í Hæstarétti í dómsmáli sem höfðað var gegn
   Kauphöll
Íslands vegna athugasemda við framsetningu fréttatilkynningar í
   ágúst 2006.
 Áður hafði Atorka unnið málið í Héraðsdómi Reykjavíkur 
•  Kauphöllin hefur
tilkynnt að Atorka Group hf. verði afskráð þann 5. des nk.
•  Þegar hefur
verið tekið tillit til í uppgjöri félagsins, áhrifa vegna
   niðurfærslu
hlutabréfa í Glitni og lækkun peningamarkaðssjóðs Glitnis,
   tæplega 1,7
milljarður 


Magnús Jónsson forstjóri Atorku:
„Aðstæður á fjármálamörkuðum
sem og efnahagsástand almennt er verulega erfitt
og búist er við samdrætti í
mörgum af stærstu hagkerfum heimsins.  Þetta leiðir
til þess að það er
erfiðara en ella að spá fyrir um afkomu fyrirtækja.  Aðgengi
að fjármagni
hefur minnkað gríðarlega sem gerir fyrirtækjum erfitt fyrir að
sækja sér fé. 
Þetta hefur áhrif á fjármagnskostnað og möguleika til vaxtar
og
endurfjármögnunar. 

Ástandið á Íslandi er óvenjulegt og litast af
mikilli óvissu eftir hrun
bankakerfisins. Þessi óvissa endurspeglast í
fjármálagerningum sem félagið
hefur gert við viðskiptabanka sína til að
lágmarka gjaldeyrisáhættu.  Þessu til
viðbótar hefur gengi krónunnar fallið
gríðarlega það sem af er árinu sem veldur
því að efnahagsreikningur félagsins
stækkar þrátt fyrir töluverða eignasölu.  
Jafnframt hefur veiking krónunnar í
samstæðureikningi þau áhrif að gengisvarnir
í móðurfélagi koma fram sem tap í
samstæðureikningi. 

Neikvæð þróun hlutabréfamarkaðar, sérstaklega síðustu
mánuði hefur neikvæð
áhrif á afkomu félagsins.  Fjárfestingar Atorku eru í
rekstrarfélögum sem gerir
það að verkum að áhrif fjármálakreppunnar hafa ekki
jafn neikvæð áhrif á
félagið og ella.  Helstu fjárfestingar Atorku eru í
endurnýtanlegri orku,
vatnshreinsiiðnaði, plastiðnaði og  sérhæfðri
flutningaþjónustu. 

Atorka hefur síðustu misseri búið sig undir erfiða tíma.
 Félagið lauk sinni
stærstu fyrirtækjasölu til þessa um mitt síðasta ár og
framlengdi
lánasamningum.  Atorka hefur síðasta árið selt verulega af eignum
sínum og
greitt niður skuldir og þannig undirbúið félagið fyrir
erfiðara
efnahagsumhverfi.  Það sem gerðist í byrjun október með hruni
íslenska
bankakerfisins var þó mun meira áfall en nokkur gat séð fyrir.


Með lungað af sínum fjárfestingum í vel reknum rekstrarfélögum er félagið
betur
í stakk búið að bregðast við þessum hamförum en ella og mun Atorka áfram
styðja
við uppbyggingu kjarnafjárfestinga sinna til framtíðar. ”



Framtíðarhorfur:
Áfram verður lögð áhersla á að styðja helstu
fjárfestingaverkefni sem eru í
eignasafni félagsins. Fjárfestingaverkefni
Atorku eru flest á sviði
endurnýtanlegrar orku, plastiðnaðar,
vatnshreinsiiðnaðar, umhverfistækni og
sérhæfðrar flutningaþjónustu sem njóta
góðs af hnattrænni þróun.
Skammtímahorfur eru krefjandi og töluverð óvissa um
hvernig
heimsmarkaðsbúskapurinn muni þróast á komandi misserum. 
Langtímahorfur
fjárfestingaverkefna félagsins eru góðar og mikil vaxtatækifæri
á öllum helstu
mörkuðum þeirra. 


Nánari upplýsingar veita;
 
Magnús
Jónsson, 
forstjóri í síma 540 6200 

Harpa Þorláksdóttir
forstöðumaður
samskiptasviðs í síma 840 6212


Reikninga Atorku Group má finna á heimasíðu
félagsins www.atorka.is
 


atorka group q3 2008 frettatilkynning.pdf
atorka group q3 - consolidated.pdf
atorka group q3 - parent.pdf
atorka q3 2008 presentation.pdf