Icelandic
Birt: 2008-10-22 18:21:50 CEST
Origo hf.
Reikningsskil
- Uppgjör Nýherja hf. fyrir þriðja ársfjórðung 2008
Helstu niðurstöður fyrir níu mánuði ársins 2008

•  Sala á vöru og þjónustu
nam 10.729 mkr  og jókst um 38% miðað við sama
   tímabil í fyrra 

• 
EBITDA var 393 mkr en 489 mkr árið 2007

•  Eiginfjárhlutfall 25% eftir  730
mkr gengistap

•  Tap á árinu nam 694 mkr samanborið við 302 mkr hagnað á
sama tíma í fyrra

•  Innleiðing á nýju viðskiptamódeli að hefjast en það
eykur hagkvæmni og
   sérhæfingu dótturfélaga 


Þórður Sverrisson,
forstjóri:

„Rekstur grunnstarfsemi Nýherja er samkvæmt áætlun í
ársfjórðungnum og skilar
ágætri afkomu fyrir fyrstu níu mánuðina. Sama gildir
um hluta dótturfélaga
hérlendis og fyrir hugbúnaðarstarfsemi erlendis. Tekjur
erlendra 
dótturfyrirtækja Nýherja eru nú um 22% af heildartekjum samstæðunnar
og eykur
það stöðugleika í rekstri félagsins. 

Nýtt viðskiptamódel
Nýherjasamstæðunnar, sem unnið hefur verið að frá því í
vor, var kynnt í
byrjun október og lýkur innleiðingu í nóvember. Markmið þess
er að skerpa
þjónustu við viðskiptavini, með sérhæfingu dótturfélaga á
einstökum sviðum,
ásamt því að auka hagkvæmni í rekstri félagsins. 

Starfsemi Nýherja er
fjölþætt og dreifð, fjárhagsstaða traust og er
eiginfjárhlutfall 25,4%, þrátt
fyrir gjaldfærslu á 730 mkr. gengistapi á
árinu.“ 


Yfirlit yfir
rekstur

Nýtt viðskiptamódel fyrir Nýherjasamstæðuna var kynnt í byrjun
október og
verður innleitt í nóvembermánuði. Með því mun félagið skerpa sýn og
áherslur á
völdum sérsviðum og skapa dótturfélögum sveigjanleika og
sóknarfæri. Einnig
næst fram kostnaðarleg hagkvæmni og samlegð í
sölustarfsemi. 

Nýherji verður móðurfélag sex megindótturfélaga, en innan
Nýherja verður einnig
sala og vörustjórnun á tölvu- og tæknibúnaði. 

Megin
dótturfélög Nýherja eru eftir breytinguna: 

•  Skyggnir ehf. sérhæft á sviði
bestunar UT kerfa, samþættingu samskiptalausna
   og rekstrarþjónustu. 

• 
Sense ehf. fyrir stafrænar lausnir, svo sem fyrir hljóð- og myndbúnað. 

• 
TM Software ehf. með áherslu á viðamikla hugbúnaðarþróun og samþættingu
  
kerfa. 

•  Applicon ehf. með áherslu á viðskiptahugbúnað, fjármálalausnir og
sérhæfðar
   atvinnugreinalausnir. 

•  Nýtt félag verður stofnað um alla
sameiginlega stoðþjónustu fyrir samstæðuna.
 
•  ParX ehf. sem mun áfram
sérhæfa sig í viðskiptaráðgjöf.

Hluti af starfsemi Nýherja mun flytjast að
Urðarhvarfi 6 í Kópavogi, þar sem TM
Software er nú til húsa, en félagið
verður einnig með starfsemi í húsnæði
Nýherja að Borgartúni 37. 

Rekstur
kjarnastarfsemi Nýherja hefur gengið vel það sem af er þessu ári og er
afkoma
nærri áætlun. Ágæt sala hefur verið í miðlægum tölvulausnum,

gagnageymslulausnum og í hönnun og uppbyggingu tölvurýma. Ennfremur
var
töluverð eftirspurn eftir samskiptalausnum, svo sem IP símkerfum
og
fjarfundalausnum, svo og hýsingarþjónustu. Sala á prentsmiðjulausnum
hefur
verið á áætlun. Sala á einmenningstölvum er hins vegar minni en á sama
tíma í
fyrra. 

Afkoma Applicon fyrirtækjanna er jákvæð, einkum hjá Applicon
AB í Svíþjóð og
Applicon A/S í Danmörku. Í þessum félögum er verkefnastaðan
góð og í takt við
væntingar. Hins vegar hefur rekstur Applicon ehf. á Íslandi
reynst þungur.  Þá
var halli á starfsemi Applicon Solutions A/S í Danmörku og
Applicon Solutions
Ltd. í Bretlandi. 

Rekstur Dansupport A/S í Danmörku
hefur verið endurskipulagður og þar eru
söluhorfur góðar og er gert ráð fyrir
að starfsemi þess nái jafnvægi á árinu. 

Hugbúnaðarstarfsemi TM Software
hefur skilað ágætum hagnaði en unnið er að
margþættum breytingum í
rekstarþjónustu til þess að ná betri afkomu úr þeirri
starfsemi. Meðal annars
mun Skyggnir starfa sem sérstakt félag og starfsemi
tæknideilda Nýherja verða
hluti af því. Þessi breyting gefur félaginu margþætt
sóknarfæri, svo sem í
verkefnum erlendis. 

Horfur
Horfur um rekstur hérlendis eru nú óljósari en
áður og óvissa meiri vegna
áhrifa af breytingum á rekstri viðskiptabanka og
stöðu á fjármálamörkuðum. Þótt
samdráttur kunni að verða í vörusölu hérlendis
eru þjónustutekjur nokkuð
stöðugar, auk þess sem tekjur og afkoma erlendra
dótturfélaga Nýherja er ágæt.
Vegna óvissunnar má ætla að afkoma Nýherja
samstæðunnar verði nokkuð undir
áætlun í fjórða ársfjórðungi, en brugðist
verður við breyttum aðstæðum með
hagræðingaraðgerðum. Lögð er áhersla á að
undirstöður í rekstri Nýherja eru
traustar og skuldsetning hófleg, en í ljósi
stöðunnar í efnahagsmálum er afar
erfitt að spá fyrir um rekstrarforsendur
næstu mánaða. 

Samþykkt árshlutareiknings.
Árshlutareikningur fyrir þriðja
ársfjórðung 2008 fyrir Nýherja hf. var
samþykktur á stjórnarfundi 22. október.
 Árshlutareikningurinn er gerður í
samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla
(IFRS-International Financial
Reporting Standards). 

Fjárhagsdagatal fyrir
2008
Áætluð birting árshlutauppgjörs fyrir árið 2008.

Fjórði
ársfjórðungur		23. janúar 2009
Aðalfundur Nýherja 2009		6. febrúar
2009			

Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir:
Þórður Sverrisson,
forstjóri Nýherja, í síma +354 893 3630.


Nýherji hf
Hlutverk Nýherja hf.
er að skapa viðskiptavinum sínum virðisauka með þekkingu
starfsmanna á
upplýsingatækni, rekstri fyrirtækja og þörfum viðskiptavina.
Nýherji býður
fyrsta flokks ráðgjöf og fagþjónustu á sviði upplýsingatækni og
vandaðan
tölvu-, skrifstofu- og hugbúnað ásamt traustri tækni- og
rekstrarþjónustu.
Félög Nýherja samstæðunnar eru 20 bæði hér heima og erlendis
og er
heildarfjöldi stöðugildi 721. Hlutabréf Nýherja hf. eru skráð í OMX
Kauphöll
Íslands. 

Stjórn Nýherja: Benedikt Jóhannesson, stjórnarformaður, Árni
Vilhjálmsson og
Guðmundur Jóh. Jónssson. Þórður Sverrisson er forstjóri
Nýherja.
 


frettatilkynning.pdf
lykiltolur.pdf
nyherji arshlutareikningur 30 9 2008 ifrs.pdf