English Icelandic
Birt: 2008-07-31 11:27:25 CEST
Bakkavör Group hf.
Reikningsskil
- Afkoma Bakkavör Group á fyrri helmingi ársins 2008: EBITDA 9,2 milljarðar króna á fyrstu sex mánuðum ársins
• Velta 126,9 ma.kr. (803,0 m. punda) á fyrstu sex mánuðum ársins, 11%
aukning,
  og 67,3 ma.kr. (425,7 m. punda) á öðrum ársfjórðungi, 14% aukning


• Vöxtur í undirliggjandi rekstri 0,5% á fyrstu sex mánuðum ársins og 2,5%
á
  öðrum ársfjórðungi 

• EBITDA 9,2 ma.kr. (58,5 m. punda) á fyrstu sex
mánuðum ársins, 23% lækkun, og
  5,1 ma.kr. (32,2 m. punda) á öðrum
ársfjórðungi, 21% lækkun, að meðtöldum 0,5
  ma. kr. (3,1 m. punda) kostnaði
vegna hagræðingar í rekstri 

• EBITDA hlutfall 7,3% fyrstu sex mánuði ársins
og 7,6% á öðrum ársfjórðungi
  (7,7% á fyrstu sex mánuðum ársins og 8,3% á
öðrum ársfjórðungi að undanskildum
  kostnaði við endurskipulagningu) 

•
Rekstrarhagnaður (EBIT) 5,8 ma.kr. (36,4 m. punda) fyrstu sex mánuði ársins,
 
36% lækkun, og á öðrum ársfjórðungi 3,2 ma.kr. (20,5 m. punda), 35% lækkun


• Tap af skiptasamningi félagsins vegna 10.9% hlutar í Greencore Group PLC
7,3
  ma.kr. (46,2 milljónir punda) á fyrstu sex mánuðum ársins, þar af 4,8
ma.kr.
  (30,4 milljónir punda) á öðrum ársfjórðungi, vegna áhrifa
virðisbreytingar
  skiptasamningsins 

• Handbært fé frá rekstri 2,5 ma.kr.
(15,5 m. punda) fyrstu sex mánuði ársins,
  75% lækkun, og 3,1 ma.kr. (19,8 m.
punda) í ársfjórðungnum, 40,0% lækkun 

• Arðsemi eigin fjár 7,3% á fyrstu
sex mánuðum ársins án áhrifa
  virðisbreytingar skiptasamnings, samanborið við
20,3% á sama tímabili 2007 

• Hagnaður á hlut 0,4 pens á fyrstu sex mánuðum
ársins, án áhrifa
  virðisbreytingar skiptasamnings 

• Félagið styrkti
starfsemi sína á alþjóðavettvangi með kaupum á fimm
  fyrirtækjum á tímabilinu
- í Bandaríkjunum, Kína, Hong Kong og á Ítalíu.
  Ennfremur lauk félagið
kaupum á eftirstandandi 49% hlut í Heli Food Fresh,
  Tékklandi, á tímabilinu


• Kaup á Fram Foods S.A., dótturfélagi Fram Foods hf. í Frakklandi, í júlí
2008

Ágúst Guðmundsson, forstjóri:

„Afkoma Bakkavarar fyrstu sex mánuði
ársins er í samræmi við væntingar
stjórnenda. Sala jókst á öðrum ársfjórðungi
þrátt fyrir erfiðar aðstæður á
mörkuðum, sem héldu áfram að hafa áhrif á
afkomu félagsins, svo sem
verðhækkanir á hráefni, aukinn orkukostnaður og
gengisstyrking evru gagnvart
pundi. Aðrir þættir sem höfðu neikvæð áhrif voru
kostnaður vegna hagræðingar í
framleiðslu félagsins á tilbúnum réttum,
óhagstætt veður yfir sumarmánuðina í
Bretlandi auk þess sem dró úr væntingum
neytenda. 

Í apríl greindum við frá því að félagið hefði gert skiptasamning
um hluti í
Greencore Group. Á tímabilinu lækkaði gengi bréfa Greencore
verulega sem hafði
umtalsverð áhrif á afkomu Bakkavarar. Þrátt fyrir þetta
teljum við samninginn
endurspegla trú okkar á markaðinn fyrir fersk tilbúin
matvæli. Greencore er með
sterka samkeppnisstöðu í lykilvöruflokkum sínum og
teljum við félagið vel í
stakk búið til að styrkja markaðsstöðu sína frekar í
framtíðinni, til ávinnings
fyrir hluthafa þegar til lengri tíma er litið.


Við gerum ráð fyrir því að viðskiptaumhverfið verði áfram krefjandi á
síðari
hluta ársins. Við munum áfram vinna að því að auka markaðshlutdeild
okkar,
draga úr áhrifum verðhækkana á hráefni, auka skilvirkni og hagræða í
rekstri.
Gert er ráð fyrir að þetta muni skila félaginu ávinningi á næsta ári.


Þrátt fyrir núverandi aðstæður hefur stefna Bakkavarar sjaldan verið
skýrari og
við munum halda áfram að styrkja stöðu félagsins á
alþjóðavettvangi. Bakkavör
er í sérstöðu á markaðnum fyrir fersk tilbúin
matvæli og vegna mikils
sveigjanleika í framleiðslu og rekstri erum við vel í
stakk búin til að
bregðast hratt við breytilegum aðstæðum á markaði. Við sjáum
umtalsverð
tækifæri til vaxtar í Bretlandi og munum ennfremur halda áfram að
styrkja stöðu
félagsins í Evrópu, Asíu og í Bandaríkjunum og mæta þar aukinni
eftirspurn
neytenda eftir ferskum tilbúnum matvælum.“
 


bakk q2 2008 frettatilkynning.pdf
q2-08 statements.pdf