Icelandic
Birt: 2008-06-23 18:57:34 CEST
Eik fasteignafélag hf.
Fyrirtækjafréttir
- Öflugt fasteignafélag myndað
Eigendabreytingar hafa átt sér stað á eignarhaldi Fasteignafélags Íslands
ehf.
og í móðurfélagi Eikar fasteignafélags hf., Eikarhaldi ehf. Samhliða 
hefur
nafni Eikarhalds ehf. verið breytt í Eik Properties ehf.  Það
var
Fyrirtækjaráðgjöf Glitnis sem var umsjónaraðili verkefnisins. 

Eik
Properties ehf. á nú allt hlutafé í Eik fasteignafélagi hf. og mun eiga
því
til viðbótar 100% eignarhlut í Fasteignafélagi Íslands ehf., 64% hlut í
Glitni
Real Estate Fund hf. og 10% eignarhlut í Eignarhaldsfélaginu Fasteign
hf.
Saxbygg ehf. er stærsti eigandi félagsins og kjölfestufjárfestir með um
52%
eignarhald, Glitnir með um 46% eignarhlut  og aðrir fjárfestar með tæp 2%.


Saxbygg leggur 65,97% hlut sinn í Fasteignafélagi Íslands ehf. og 20,2%
hlut
sinn í Glitni Real Estate Fund hf. til Eik Properties í skiptum fyrir
nýtt
hlutafé. Glitnir eignast hlut í nýju félagi fyrir 33,69% hlut bankans
í
Fasteignafélagi Íslands ehf. og um 71,7% hlut í fasteignafélaginu
Eikarhaldi
ehf. Samhliða þeim samningum hefur Glitnir framselt hlut sinn í
Fasteignafélagi
Íslands ehf., 10% af hlutafjáreign sinni í Eignarhaldsfélaginu
Fasteign hf. og
um 44,44% hlut í Glitni Real Estate Fund hf. til Eik
Properties hf. í skiptum
fyrir nýtt hlutafé. 

Markmið félagsins er að vaxa
á næstu árum hér á landi og erlendis með þátttöku
í kaupum á fasteignum og
fasteignafélögum og eigendur stefna að skráningu
félagsins þegar fram í sækir.


Forstjóri Eik Properties ehf. er Garðar Hannes Friðjónsson. 


Eik
Properties ehf. samanstendur af eftirfarandi félögum:

Fasteignafélag Íslands
ehf.
Félagið á m.a. dótturfélögin Eignarhaldsfélagið Smáralind ehf. sem á og
rekur
verslunarmiðstöðina Smáralind og Norðurturninn ehf, sem nú byggir
norðurturninn
við Smáralind.  Félagið á auk þess lóðir í kringum
verslunarmiðstöðina. 

Eik fasteignafélag hf.
Félagið er eitt stærsta
fasteignafélag á landinu og sérhæfir sig í leigu á
atvinnuhúsnæði aðallega á
höfuðborgarsvæðinu. Félagið á tæplega 50 fasteignir
og er flatarmál þeirra um
110 þúsund fermetrar. 

Glitnir Real Estate Fund hf.
Félagið á félög sem
eiga 7 fasteignir í Noregi og Svíþjóð ásamt lóðum sem eru í
þróun. Fasteignir
sem eru í leigu eru um 19 þúsund fermetrar og meðal stærstu
leigjenda eru m.a.
norska ríkið og Volvo. 

Eignarhaldsfélagið Fasteign hf.
Félagið er eitt
stærsta fasteignafélag á landinu sérhæfir sig í leigu á
fasteignum til
sveitarfélaga, skóla og fjármálafyrirtækja. Í eignasafni
Fasteignar eru
rúmlega 70 fasteignir og flatarmál þeirra um 110 þúsund
fermetrar. Félagið
byggir nú m.a. nýjan skóla fyrir Háskólann í Reykjavík við
Vatnsmýri.



Nánari upplýsingar veitir:
Nánari upplýsingar veitir Garðar Hannes
Friðjónsson, forstjóri Eik Properties,
sími: 861-3027.