Icelandic

Þessi tilkynning hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að skoða leiðrétta tilkynningu

Birt: 2007-03-16 10:24:37 CET
Kvika banki hf.
Árshlutareikningur (Q1 og Q3)
MP Fjárfestingarbanki - Ársuppgjör 2006
Stjórn MP Fjárfestingarbanka hf. samþykkti reikninga bankans fyrir árið 2006 á
fundi sínum fimmtudaginn 15. mars 2007.


Lykiltölur

Fjárhæðir eru í þúsundum
króna					
	Samstæða  		
	2006  		2005  		Breyting 

Rekstrarreikningur					
Vaxtatekjur	2.401.903  		944.434 
		254%
Vaxtagjöld	2.336.760  		953.162  		245%
Hreinar vaxtatekjur	65.143 
		(8.728)		-746%
Aðrar rekstrartekjur	2.109.661  		971.285  		217%
Hreinar
rekstrartekjur	2.174.804  		962.557  		226%
Önnur
rekstrargjöld	(565.076)		(294.784)		192%
Hagnaður fyrir tekjuskatt	1.609.728 
		667.773  		241%
Tekjuskattur	(293.927)		(54.348)		541%
Hagnaður	1.315.801 
		613.425  		215%
					
					
Efnahagsreikningur	2006  		2005 
		
Eignir:					
Sjóður og kröfur á lánastofnanir	2.898.986  		1.211.809 
		239%
Úlán	7.188.550  		2.900.351  		248%
Markaðsverðbréf og eignarhlutir í
félögum	30.343.987  		19.744.120  		154%
Aðrar eignir	2.301.828  		1.244.851 
		185%
Eignir samtals	42.733.351  		25.101.131  		170%
					
Skuldir og eigið
fé:					
Skuldir við lánastofnanir	7.733.282  		1.178.199 
		656%
Lántaka	25.468.798  		18.997.764  		134%
Aðrar skuldir	4.395.549 
		1.484.379  		296%
Tekjuskattskuldbinding	0  		20.990  		0%
Víkjandi
lán	58.437  		72.632  		80%
Eigið fé	5.077.285  		3.347.167  		152%
	42.733.351
 		25.101.131  		170%
					
Eiginfjárhlutfall (CAD)	19,20%  		28,50% 
		



Helstu niðurstöður úr rekstri og efnahag 

"	Hagnaður af rekstri MP
Fjárfestingarbanka hf. á árinu nam 1.315 millj. kr. samanborið við 613 millj.
kr. árið áður.
"	Arðsemi eigin fjár jafngildir 39,6% ávöxtun á
ársgrundvelli.
"	Vaxtatekjur námu 2.401 millj. kr. og hækkuðu um 254% frá árinu
áður. Hreinar vaxtatekjur voru jákvæðar um 65 þús. kr.
"	Hreinar rekstrartekjur
námu 2.175 millj. kr. og hækkuðu um 226% frá árinu áður.
"	Þjónustutekjur námu
1.052 millj. kr. og hækkuðu um 156% frá árinu áður.
"	Gengishagnaður af annarri
fjármálastarfsemi nam 1.059 millj. kr. samanborið við 286 millj. kr. árið
áður.
"	Önnur rekstrargjöld hækkuðu um 192% frá árinu áður og námu 565 millj.
kr. Þessi hækkun er þó í samræmi við mikinn vöxt bankans á árinu
2006.
"	Framlag í afskriftareikning nam 100 millj. kr. Afskriftareikningur
útlána í lok ársins nam 41 millj. kr. eða 0,6% af útlánum og veittum
ábyrgðum.
"	Útlán til viðskiptamanna í árslok 2006 voru 7.189 millj. kr.
samanborið við 2.900 millj. kr. í ársbyrjun.
"	Heildareignir bankans í árslok
2006 voru 42.733 millj. kr. samanborið við 25.101 millj. kr. í ársbyrjun.
Hækkunin er 170%.
"	Eigið fé í árslok nam 5.077 millj. kr. samanborið við 3.347
millj. kr. í ársbyrjun. Hækkunin er 1.730 millj. kr. eða 152%.
"	Á árinu var
hlutafé hækkað um 70 millj. kr. að nafnverði. Söluverð hlutafjárins nam 565
millj. kr.
"	Eiginfjárhlutfall (CAD) samstæðunnar í árslok var 19,2% en í
ársbyrjun var það 28,5%.


Aðalfundur MP Fjárfestingarbanka verður haldinn í
lok mars. Stjórn félagsins mun leggja fram tillögu um að greiddur verði 18%
arður eða 192,6 millj. kr. Það svarar til 14,6% af hagnaði ársins.


Metár í
sögu bankans og góðar horfur

Árið 2006 var metár í rekstri og afkomu MP
Fjárfestingarbanka. Aukning varð á flestum sviðum starfseminnar og hagnaður
bankans á árinu 2006 varð meiri en nokkru sinni áður. Markaðsviðskipti og
eignastýring gengu mjög vel á árinu og er sömu sögu að segja af eigin
viðskiptum bankans. Meirihluti hagnaðar eigin viðskipta var af erlendum
fjárfestingum. Samhliða vexti bankans fjölgaði stöðugildum bankans úr 22 í
byrjun árs í 26 í lok árs. 

Afkoma bankans verður að teljast mjög góð í ljósi
þess að starfsumhverfi hans var mjög krefjandi á árinu, innlendir sem erlendir
hlutabréfamarkaðir sveifluðust mikið og ávöxtunarkrafa á innlendum
skuldabréfamarkaði hækkaði mikið. Bankinn styrkti undirstöður rekstrarins
innanlands, meðal annars var innra skipulag bætt og áhættustýring styrkt. Nýtt
tekjusvið innan bankans, fjárstýringarsvið, var stofnað á árinu.  Stofnun
sviðsins var nauðsynleg til að styðja við áframhaldandi vöxt bankans í gegnum
fjölbreyttari fjármögnunarleiðir. 

Á árinu var lagður grunnur að frekari á
útrás bankans. MP fékk aðild að kauphöllum Eystrasaltslandanna þriggja og er
kominn í hóp veltumestu aðila kauphallanna. Á árinu var ákveðið að opna útibú í
Vilnius, höfuðborg Litháens, og hófst starfsemin þar 1. janúar 2007. Útibúið
mun veita fjárfestum í Eystrasaltsríkjunum og á Norðurlöndunum fjármálaþjónustu
með áherslu á fjárfestingar á fjármálamörkuðum í Austur-Evrópu. Starfsmenn
útibúsins eru 5 talsins.

Bankinn stendur vel að vígi til áframhaldandi vaxtar,
þar sem megináherslan verður að styrkja og útvíkka starfsemi bankans á Íslandi
ásamt því að sækja inn á ný markaðssvæði. MP Fjárfestingarbanki hefur nú þegar
skapað sér þá sérstöðu að vera öflugur samtarfsaðili íslenskra fjárfesta í
austurvegi og hyggst efla þá starfsemi til muna á næstu misserum.  

Frekari
upplýsingar veitir:
Styrmir Þór Bragason, framkvæmdastjóri MP
Fjárfestingarbanka hf., í síma 540 3200.


MP Fjárfestingarbanki hf. er ört
vaxandi og framsækið fjármálafyrirtæki sem hefur lagt áherslu á smærri markaði
og nýmarkaði í Evrópu með mjög góðum árangri. Bankinn sinnir eignastýringu
fyrir einstaklinga og fagfjárfesta, annast miðlun verðbréfa á innlendum og
erlendum mörkuðum og fæst við margvísleg verkefni sem tengjast þjónustu og
ráðgjöf til fyrirtækja, sveitarfélaga og fagfjárfesta. Aðalskrifstofa bankans
er í Reykjavík en hann rekur útibú í London og Litháen. Nánari upplýsingar um
MP Fjárfestingarbanka má finna á www.mp.is. 


 


MP Investment Bank - Annual Results 2006.pdf