Icelandic
Birt: 2006-07-17 09:17:22 CEST
Kvika banki hf.
Grunnupplýsingar skuldabréfa
MP Fjárfestingarbanki aðili að kauphöllum Eystrasaltsríkjanna
Stjórnir kauphallanna í Tallinn í Eistlandi, Ríga í Lettlandi og Vilníus í
Litháen hafa samþykkt umsókn MP Fjárfestingarbanka hf. um aðild að
kauphöllunum. Bankinn er þannig fyrsta íslenska fjármálafyrirtækið með aðild að
kauphöllunum og er tólfta fjármálafyrirtækið með aðild að öllum mörkuðum
Eystrasaltsríkjanna.

MP Fjárfestingarbanki var stofnaður 1999 og fékk
starfsleyfi sem fjárfestingabanki árið 2003. MP Fjárfestingarbanki hefur
starfsleyfi til rekstrar lánafyrirtækis og er aðili að Kauphöll Íslands.
Bankinn mun stunda viðskipti í kauphöllum Eystrasaltsríkjanna undir
kennileitinu MPB.

Styrmir Þór Bragason, framkvæmdastjóri MP Fjárfestingarbanka
hf., segir aðild að kauphöllum Eystrasaltsríkjanna veiti aðgang að mjög
áhugaverðum tækifærum. "Aðildin styrkir starfsemi bankans á erlendri grund og
opnar tækifæri fyrir fjárfesta og fyrirtæki sem vilja hasla sér völl á þessu
svæði. Við höfum verið virk í Austur-Evrópu síðustu misserin og aðildin styrkir
okkar viðskiptavini á þeim slóðum enn frekar. Aðildin er ennfremur í samræmi
við stefnu bankans um vöxt erlendis".

MP Fjárfestingarbanki veitir skýrt
afmarkaða fjármálaþjónustu. Bankinn sinnir eignastýringu fyrir ólíka hópa
fjárfesta, annast miðlun verðbréfa á innlendum og erlendum mörkuðum og fæst við
margvísleg verkefni sem tengjast þjónustu og ráðgjöf til fyrirtækja,
sveitarfélaga og fagfjárfesta. Hjá bankanum starfar hópur sérfræðinga með
víðtæka menntun og starfsreynslu. MP Fjárfestingarbanki hefur starfsleyfi í
Eystrasaltslöndunum þremur, undirbýr opnun útibús í Litháen og rekur útibú í
Englandi.

Með aðild MP Fjárfestingarbanka eru aðilar að kauphöllum
Eystrasaltsríkjanna orðnir 41 talsins.

Frekari upplýsingar veita:
Styrmir Þór
Bragason, framkvæmdastjóri MP Fjárfestingarbanka hf., í síma 540 3200.

Inese
Purgaile, upplýsingafulltrúi kauphallarinnar í Riga, í síma +371
7212431
Gintare Blazyte, upplýsingafulltrúi kauphallarinnar í Vilníus, í síma
+370 5 272 13 71
Tex Vertmann, upplýsingafulltrúi kauphallarinnar í Tallinn, í
síma +372 640 8862


Um OMX 
OMX er sérhæft fyrirtæki í verðbréfaviðskiptum og
starfrækir kauphallir í Stokkhólmi, Kaupmannahöfn, Helsinki, Riga, Tallinn og
Vilnius auk ýmissa fyrirtækja í fjármálaumsýslu. OMX hefur aðgang að 80%
skuldabréfamarkaðarins á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum. Samhæfðar
tæknilausnir OMX ná yfir allt ferli og tryggja skilvirkni verðbréfaviðskipta
auk þess að auðvelda samskipti við eftirlitsstofnanir og fjármálastofnanir um
allan heim. OMX er skráð í Norrænu Kauphöllunum í Stokkhólmi, Helsinki og
Kaupmannahöfn. Nánari upplýsingar um OMX má finna á www.omxgroup.com.