Icelandic
Birt: 2021-04-29 18:15:19 CEST
Vátryggingafélag Íslands hf.
Árshlutareikningur (Q1 og Q3)

VÍS: Uppgjör 1. ársfjórðungs 2021

Árshlutareikningur félagsins fyrir fyrsta ársfjórðung 2021 var staðfestur af stjórn og forstjóra á stjórnarfundi þann 29. apríl  2021.

Helstu niðurstöður 1F 2021

  • Hagnaður tímabilsins eftir skatta var 1.904 milljónir kr. samanborið við tap upp á 1.963 milljónir kr. á sama tímabili 2020
  • Afkoma af vátryggingarekstri tímabilsins var neikvæð um 405 milljónir kr. samanborið við 1.410 milljóna kr. neikvæða afkomu á sama tíma í fyrra
  • Samsett hlutfall fjórðungsins var 108% en var 126,5% á sama tíma í fyrra
  • Iðgjöld tímabilsins voru 5.520 milljónir kr. í samanburði við 5.558 milljónir kr. á 1F 2020
  • Tekjur af fjárfestingastarfsemi voru 2.484 milljónir kr. en voru neikvæðar um 162 milljónir kr. á sama tímabili 2020

Helgi Bjarnason, forstjóri VÍS:

„Árið 2021 fór vel af stað í fjárfestingunum ─ en árangurinn í fjórðungnum er sá annar besti frá skráningu félagsins. Fjárfestingatekjur ársfjórðungsins námu 2,5 milljörðum króna eða 5,8% nafnávöxtun yfir tímabilið. Gott gengi skráðra hlutabréfa skýra stærstan hluta góðrar afkomu en hlutabréfasafn félagsins hækkaði um 17,6%.  Fjárfestingaeignir í lok fjórðungsins voru 42 milljarðar króna. Ég er stoltur af góðri afkomu á fjórðungnum ─ en arðsemi eigin fjár á ársgrundvelli er langt umfram markmið félagsins.

Viðsnúningur í afkomu félagsins

Hagnaður fyrsta ársfjórðungs 2021 var 1,9 milljarður króna sem er viðsnúningur um tæpa fjóra milljarða borið saman við fyrsta ársfjórðung síðasta árs.

Almennt og yfirleitt eru fyrstu þrír mánuðir ársins í tryggingarekstri tjónaþungir ─ en gott tíðarfar og jákvæð áhrif faraldursins settu sitt mark á fjórðunginn. Þó hafa einstaka tjónsatburðir neikvæð áhrif á fjórðunginn sem gerir það að verkum að samsett hlutfall fjórðungsins er 108%. Á sama tímabili í fyrra var samsetta hlutfallið 126,5% ─ sem skýrðist þá að mestu leyti af styrkingu tjónaskuldar.

Mikilvægar vörður í vegferð félagsins

Við héldum áfram þeirri mikilvægu vinnu að marka skýra sýn og stefnu með stjórnendum félagsins. Við fórum yfir nýjar áherslur og markmið. Við vitum hvert við ætlum og hvernig ─ sem er mikilvægt leiðarljós til framtíðar.

Við höldum áfram að þróa stafrænu ferlana sem við höfum nú þegar kynnt til sögunnar ─ og auka það hlutfall sem fer í sjálfvirka afgreiðslu. Allt er þetta gert til þess að einfalda viðskiptavinum okkar lífið. Við vitum hvað tíminn er dýrmætur. Í upphafi árs kynntum við stolt til sögunnar Ökuvísi sem er byltingarkennd nýjung á íslenskum tryggingamarkaði. Appinu hefur verið vel tekið og var vinsælasta appið á Íslandi þegar það kom út. Við erum nú á hraðri leið í átt að framtíðarsýninni að vera stafrænt þjónustufyrirtæki ─ og Ökuvísir er mikilvæg varða á þeirri leið.

Við höfum sagt það áður en við ætlum að breyta því hvernig tryggingar virka. Það þýðir að við hugsum tryggingarnar upp á nýtt og höfum hugrekki til þess að breyta. Næsta varða á stafrænu vegferðinni okkar er breyta kaupferli líf- og sjúkdómatrygginga. Verkefnið er hafið og munum sem fyrr leita til viðskiptavina við þróun og hönnun á þessari nýju lausn. Við hlökkum til að segja nánar frá því.“

Breytt högun á upplýsingagjöf og horfur í vátryggingarekstri á árinu 2021

Félagið hefur tekið ákvörðun um að breyta tilhögun á mánaðarlegri upplýsingagjöf og hverfa frá núverandi formi afkomuspár. Upplýsingagjöf um fjárfestingaeignir í ársfjórðungsuppgjörum verður aukin en fallið verður frá mánaðarlegum tilkynningum um samsett hlutfall og ávöxtun fjáreigna. Samhliða hefur verið ákveðið að birta ekki horfur fyrir afkomu af fjárfestingastarfsemi félagsins. Trygginga- og fjárfestingastarfsemi er í eðli sínu sveiflukennd og er það mat félagsins að aukin ársfjórðungsleg upplýsingagjöf sé hentugri leið til að upplýsa fjárfesta um stöðu félagsins með auknum sýnileika á eignasafnið frekar en mánaðarleg upplýsingagjöf.

Upplýsingar um samsett hlutfall
Félagið hyggst gefa út horfur um samsett hlutfall hvers árs, ásamt því að tilgreina hver markmið félagsins eru um samsett hlutfall og arðsemi eigin fjár. Markmið félagsins er að samsetta hlutfallið verði undir 95% og arðsemi eigin fjár verði að lágmarki 15%. Farið verður yfir samsett hlutfall hvers ársfjórðungs í uppgjörum félagsins ásamt stöðu og horfum í rekstri félagsins.

Upplýsingar um fjárfestingaeignir
Í stað þess að birta mánaðarlega upplýsingar um ávöxtun fjáreigna mun félagið birta ítarlegri upplýsingar um fjárfestingaeignir félagsins, til að mynda um stærstu óskráðu eignir félagsins. Það veitir fjárfestum betri færi á að fylgjast með ávöxtun safnsins og áhrif þess á afkomu félagsins í heild. Þannig er verið að bæta upplýsingagjöf um fjárfestingar félagsins án þess að spá fyrir um ávöxtun á markaði til skemmri tíma.

Horfur um samsett hlutfall ársins 2021
Félagið telur að samsett hlutfall ársins 2021 verði á bilinu 97-99%.

Félagið mun tilkynna ef breytingar verða á horfum ársins um samsett hlutfall, s.s. vegna stórra tjóna eða annars sem hefur umtalsverð áhrif á rekstur félagsins, svo að verðmótandi teljist fyrir hlutabréf þess.

Kynningarfundur

Kynningarfundur vegna uppgjörsins fyrir markaðsaðila og fjárfesta verður haldinn föstudaginn 30. apríl, klukkan 8:30 í húsnæði félagsins, Ármúla 3. Helgi Bjarnason, forstjóri félagsins, mun kynna uppgjörið og svara spurningum.

Við biðjum þá sem hafa hug á að mæta á fundinn að senda tölvupóst á fjarfestatengsl@vis.is svo við getum haldið vel utan um fjölda þeirra sem mæta.

Hægt er að tengjast fjarfundinum hér: https://vis.is/1-arsfjordungur-2021/  
Hægt verður nálgast upptöku að fundinum loknum á vefslóðinni: https://www.vis.is/fjarfestafundir/  
Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast hér: https://www.vis.is/fjarfestaupplysingar/ 

Fjárhagsdagatal 

Annar ársfjórðungur  2021  ||  19. ágúst 2021
Þriðji ársfjórðungur  2021 ||  21. október 2021

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Erla Tryggvadóttir, samskiptastjóri VÍS, í síma 660-5260 eða með netfanginu erlat@vis.is


Viðhengi



VIS. Afkomutilkynning 1F 2021.pdf
VIS - Samstuarshlutareikningur 31.03.2021.pdf