English Icelandic
Birt: 2021-04-29 10:15:00 CEST
Marel hf.
Reikningsskil

Marel 1F 2021: Fjárfestakynning

Marel hf. birti uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung 2021 eftir lokun markaða þann 28. apríl 2021.

Meðfylgjandi má finna 1F 2021 fjárfestakynninguna sem farið verður yfir á rafrænum afkomufundi með markaðsaðilum í dag, fimmtudaginn 29. apríl 2021 kl. 8:30.

Þar munu Árni Oddur Þórðarson forstjóri og Linda Jónsdóttir fjármálastjóri kynna afkomu félagsins og helstu atriði úr rekstri á fyrsta ársfjórðungi.

Fundinum verður vefvarpað beint á www.marel.com/webcast og upptaka verður aðgengileg á www.marel.com/ir eftir fundinn.

Markaðsaðilar geta einnig hringt inn á fundinn:

  • IS: +354 800 7520
  • NL: +31 20 721 9496
  • UK: +44 33 3300 9268
  • US: +1 833 526 8398

Fjárfestatengsl

Nánari upplýsingar veita Fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið ir@marel.com og í síma 563 8001.

Samskiptasvið

Fjölmiðlafyrirspurnir skulu sendar á Samskiptasvið Marel í gegnum netfangið globalcommunications@marel.com og í síma 563 8200.

Um Marel

Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, heildarlausna, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Hjá Marel starfa nú um 6.800 manns í yfir 30 löndum, þar af um 720 á Íslandi. Marel velti 1.238 milljónum evra árið 2020, en árlega fjárfestir félagið um 6% af veltu í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið var stofnað 1983, skráð í Kauphöll Íslands árið 1992, og tvíhliða skráð í Euronext kauphöllina í Amsterdam árið 2019.

Viðhengi



Marel Q1 2021 Investor Presentation_vF.pdf