English Icelandic
Birt: 2021-04-28 19:50:51 CEST
Marel hf.
Árshlutareikningur (Q1 og Q3)

Marel 1F 2021: Aukin markaðssókn og styrking innviða til að mæta væntum vexti

Marel kynnir afkomu fyrsta ársfjórðungs 2021 (allar upphæðir eru í evrum)

Helstu atriði í afkomu fyrsta ársfjórðungs 2021 (1F21):

  • Mótteknar pantanir sterkar og pípan af nýjum verkefnum að vaxa
  • Áskoranir í framleiðslu, flutningum og ferðalögum vegna COVID-19 höfðu áhrif á framlegð, einkum á fyrstu vikum ársins
  • Aukinn rekstrarkostnaður samhliða fjölgun starfsmanna í sölu og þjónustu auk umbótaverkefna til að stuðla að frekari sveigjanleika í rekstri
  • Pantanir námu 369,4 milljónum evra (1F20: 351,8m).
  • Pantanabókin1 stóð í 455,3 milljónum evra (4F20: 415,7m, 1F20: 464,6m).
  • Tekjur námu 334,0 milljónum evra (1F20: 301,6m).
  • EBIT2 nam 38,0 milljónum evra (1F20: 25,4m), sem var 11,4% af tekjum (1F20: 8,4%).
  • Hagnaður nam 21,2 milljónum evra (1F20: 13,4m).
  • Hagnaður á hlut (EPS) var 2,82 evru sent (1F20: 1,76 evru sent).
  • Handbært fé frá rekstri fyrir fjármagnsliði og skatta nam 60,2 milljónum evra (1F20: 61,5m).
  • Frjálst sjóðstreymi nam 45,5 milljónum evra (1F20: 38,6m).
  • Skuldahlutfall (nettó skuldir/EBITDA) var 0,8x í lok mars (4F20: 1,0x, 1F20: 0,4x). Markmið félagsins um fjármagnsskipan er að halda skuldahlutfalli milli 2-3x.

Helstu atriði úr starfsemi á fyrsta ársfjórðungi 2021 (1F21):

  • Curio er hluti af samstæðuuppgjöri Marel frá og með 4. janúar 2021.
  • Marel hefur lokið kaupum á PMJ, alþjóðlegum framleiðanda hátæknilausna fyrir vinnslu á andakjöti, líkt og tilkynnt var um þann 21. janúar 2021.
  • Þann 29. janúar 2021 tilkynnti Marel um kaup á 40% hlut í Stranda Prolog, norskum framleiðanda hátæknilausna fyrir laxaiðnað.
  • Aðalfundur Marel 2021 var haldinn rafrænt þann 17. mars 2021. Allar tillögur stjórnar til aðalfundar voru samþykktar og ný stjórn kjörin. Stjórn hefur skipt með sér verkum og er Arnar Þór Másson nýr formaður og Dr. Ólafur Guðmundsson varaformaður.

1 Að meðtalinni pantanabók Curio og PMJ, að fjárhæð 4,2 milljónir evra. 2 Rekstrarniðurstaða aðlöguð fyrir afskrift á óefnislegum eignum sem tengjast yfirtökum (PPA). Frá og með fjórða ársfjórðungi 2020 er einnig aðlagað fyrir kostnaði tengdum yfirtökum.

Ítarlegri umfjöllun um rekstur og afkomu félagsins má finna í enskri útgáfu fréttatilkynningarinnar (íslenska útgáfan veitir aðeins yfirlit yfir helstu þætti uppgjörsins, horfur, fjárfestafund og fjárhagsdagatal).

Árni Oddur Þórðarson, forstjóri:

Árið byrjaði vel með 369 milljónir evra í pantanir, samanborið við 352 milljónir evra á fyrsta ársfjórðungi síðasta árs sem var metsala á þeim tíma. Takturinn er þó annar, þar sem 2020 byrjaði af krafti og hægði svo á í mars samhliða heimsfaraldri, á meðan þetta ár fór hægt af stað en styrktist verulega með mikilli sölu í mars og áframhaldandi góðum horfum.

Við höfum hraðað fjárfestingum og fjölgað starfsfólki til að styrkja enn frekar markaðssókn og þjónustu um heim allan. Á síðustu mánuðum höfum við haldið áfram að þróa og kynna til leiks nýjar lausnir sem styðja við þær breytingar sem eiga sér stað á neytendamarkaði. Pantanir fyrir staðlaðar vörur og varahluti voru sterkar í öllum iðnuðum. Einnig voru metpantanir fyrir stærri verkefni hjá kjötiðnaði, þar sem við náðum meðal annars stórum samningum í Kína og Brasilíu, en pantanir fyrir stærri verkefni hjá alifuglaiðnaði og fiskiðnaði voru dræmari í fjórðungnum. Pípan er góð fyrir alla iðnaði sem gefur góð fyrirheit um pantanir fyrir næstu fjórðunga. Stafræn þróun er á ógnarhraða, sjálfvirknivæðing og betri nýting gagna og upplýsingatækni er nú þegar að umbylta virðiskeðju matvæla og Marel er í lykilstöðu til að styðja við frekari framþróun.

Í Kína náðum við stórum samningi við Muyuan Group, öðrum stærsta svínaræktanda í heimi. Muyuan hefur verið í fóðurframleiðslu og svínarækt og er nú að útvíkka starfsemi sína yfir í vinnslu. Marel mun afhenda samskonar framleiðslulínur og hugbúnað fyrir mismunandi framleiðslustaði félagsins í Kína til að styðja við samræmd vinnubrögð og auka nýtingu og gæði hráefnis. Einnig ber að nefna stóran samning við Frimesa í Brasilíu, en það mun verða ein stærsta og framþróaðasta verksmiðja í Suður-Ameríku fyrir vinnslu á svínakjöti.

Rekstrarhagnaður nam 11,4% og tekjur voru 334 milljónir evra í fjórðungnum. Á fjórðungnum voru áskoranir tengdar vöruflutningum og ferðalögum vegna heimsfaraldurs enn meiri en áður. Til þess að tryggja tímanlegar afhendingar og uppsetningar við þessar krefjandi aðstæður þurftum við að taka á okkur hærri kostnað í framleiðslu, þjónustu og flutningum, sem hafði áhrif á framlegð. Sölu- og stjórnunarkostnaður var einnig hærri en undanfarna fjórðunga. Við höfum aukið við markaðsstarf og vinnum að mikilvægum stafrænum umbótum og sjálfvirknivæðingu í framleiðsluferlum, innkaupum og þjónustu til að auka sveigjanleika og búa okkur undir væntan vöxt. Ég er stoltur af okkar öfluga teymi sem hefur tekist að skila góðri sölu, klárað flóknar uppsetningar og haldið áfram að þjónusta viðskiptavini okkar um heim allan við afar krefjandi aðstæður.

Sjóðstreymi var firnasterkt í fjórðungnum og skuldahlutfall var 0,8x EBITDA við lok tímabilsins. Við héldum áfram að styrkja framboð okkar af heildarlausnum með kaupum á fyrirtækjum sem þjónusta alifugla- og fiskiðnað. Marel stendur sem fyrr við metnaðarfull markmið sín til meðal og lengri tíma, með áframhaldandi vexti og virðisaukningu, þó gera megi ráð fyrir sveiflum á milli ársfjórðunga."

Helstu niðurstöður aðalfundar Marel 2021 – Allar tillögur stjórnar til aðalfundar samþykktar

Rafrænn aðalfundur Marel sem haldinn var þann 17. mars sl. samþykkti arðgreiðslu sem nemur 5,45 evru sentum á hlut, eða sem samsvarar 40% af hagnaði ársins 2020,og var arðurinn greiddur til hluthafa þann 7. apríl 2021. Stjórn hefur skipt með sér verkum og er Arnar Þór Másson nýr formaður og Dr. Ólafur Guðmundsson varaformaður.

Eftir 11 ár í stjórn Marel, þar af yfir 7 ár sem stjórnarformaður, gaf Ásthildur Otharsdóttir ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Stjórn Marel og framkvæmdastjórn færir henni bestu þakkir fyrir ómetanlegt framlag við störf sín í þágu félagsins. Í stað hennar kom Dr. Svafa Grönfeldt ný inn í stjórn Marel. Svafa gegnir stöðu prófessors við MIT háskólann í Boston og er einn af stofnendum MITdesignX sem er nýjasti viðskiptahraðall MIT. Hún er einnig meðstofnandi “The MET Fund” sem er sprotafjármögnunarsjóður í Cambridge, Massachusetts. Svafa er varaformaður stjórna Icelandair og Össurar og situr í endurskoðunarnefndum beggja fyrirtækja.

Á fundinum var einnig samþykkt tillaga stjórnar um að bæta UFS (ESG) markmiðum inn í skammtímahvatakerfi framkvæmdastjórnar.

Horfur

Markaðsaðstæður hafa verið krefjandi í ljósi umróts á heimsmörkuðum og yfirstandandi COVID-19 heimsfaraldurs. Marel býr að góðri dreifingu tekna á milli markaða og iðnaða í gegnum alþjóðlegt sölu- og þjónustunet sitt ásamt breiðu og framsæknu vöru- og þjónustuframboði. Sem stendur er ekki vitað hver fjárhagsleg áhrif COVID-19 munu verða á Marel.

Marel stendur við vaxtarmarkmið sín til meðallangs- og langs tíma.

Marel stefnir að um 40% framlegð (e. gross profit), 18% sölu-, markaðs- og stjórnunarkostnaði og 6% þróunarkostnaði, til meðallangs tíma.

Marel stefnir að 12% meðalvexti árlega yfir tímabilið 2017-2026 sem byggir á öflugri markaðssókn og nýsköpun, samstarfi við lykilaðila og yfirtökum á fyrirtækjum.

  • Marel gerir ráð fyrir að almennur markaðsvöxtur nemi 4-6% til lengri tíma. Með sterkri markaðssókn og nýsköpun stefnir Marel að innri vexti umfram almennan markaðsvöxt.
  • Gera má ráð fyrir að áframhaldandi traustur rekstur og sterkt sjóðstreymi geti stutt við 5-7% ytri meðalvöxt á ári.
  • Marel gerir ráð fyrir að hagnaður á hlut vaxi hraðar en tekjur.

Áætlaður vöxtur er háður hagsveiflum og þeim tækifærum sem eru í boði hverju sinni og því má gera ráð fyrir að hann verði ekki línulegur. Reikna má með breytilegri afkomu á milli ársfjórðunga vegna efnahagsþróunar, sveifla í pöntunum og tímasetningu stærri verkefna.

Afkomuefni

Ítarlegri umfjöllun um rekstrarafkomu má finna í enskri útgáfu fréttatilkynningar sem er í viðhengi. Sé misræmi á milli uppgjörstilkynninga félagsins á íslensku annars vegar og ensku hins vegar, skal enska útgáfan gilda þar sem tilkynningar eru þýddar af ensku yfir á íslensku.

Rafrænn afkomufundur með markaðsaðilum

Fimmtudaginn 29. apríl 2021 kl. 8:30 verður haldinn afkomufundur fyrir fjárfesta og markaðsaðila. Fundurinn verður eingöngu rafrænn en þar munu Árni Oddur Þórðarson forstjóri og Linda Jónsdóttir fjármálastjóri kynna afkomu félagsins og helstu atriði úr rekstri á fyrsta ársfjórðungi.

Fundinum verður vefvarpað beint á www.marel.com/webcast og upptaka verður aðgengileg á www.marel.com/ir eftir fundinn.

Markaðsaðilar geta einnig hringt inn á fundinn:

  • IS: +354 800 7520
  • NL: +31 20 721 9496
  • UK: +44 33 3300 9268
  • US: +1 833 526 8398

Fjárhagsdagatal

Marel mun birta árshluta- og ársuppgjör félagsins samkvæmt neðangreindu fjárhagsdagatali:

  • 2F 2021 – 21. júlí 2021
  • 3F 2021 – 20. október 2021
  • 4F 2021 – 2. febrúar 2022

Birting fjárhagsupplýsinga mun eiga sér stað eftir lokun markaðar. Vinsamlegast athugið að dagsetningarnar eru birtar með fyrirvara um breytingar.

Fjárfestatengsl

Nánari upplýsingar veita Fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið IR@marel.com og í síma 563 8001. 

Um Marel

Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, heildarlausna, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Hjá Marel starfa nú um 6.800 manns í yfir 30 löndum, þar af um 720 á Íslandi. Marel velti 1.238 milljónum evra árið 2020, en árlega fjárfestir félagið um 6% af veltu í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið var stofnað 1983, skráð í Kauphöll Íslands árið 1992, og tvíhliða skráð í Euronext kauphöllina í Amsterdam árið 2019.

Athygli fjárfesta er vakin á eftirfarandi:

Sumar staðhæfingar í þessari fréttatilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna við birtingu hennar. Í eðli sínu fela slíkar staðhæfingar því í sér óvissu. Við vekjum þess vegna athygli fjárfesta á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í þessari tilkynningu. Tilkynningin verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar.

Gögn um markaðshlutdeild

Yfirlýsingar um markaðshlutdeild, þar með taldar þær sem varða samkeppnisstöðu Marel, byggjast á utanaðkomandi heimildum og gögnum, svo sem gögnum frá rannsóknastofnunum, iðnaðar- og sölunefndum og hópum, ásamt mati stjórnenda Marel. Séu upplýsingar ekki tiltækar fyrir Marel kunna slíkar yfirlýsingar að vera byggðar á áætlunum og mati utanaðkomandi aðila og/eða stjórnenda. Markaðsstaða er byggð á sölutölum nema annað sé tekið fram.

 

Viðhengi



Marel Q1 2021 Condensed Consolidated Interim Financial Statements.pdf
Marel Q1 2021 Condensed Consolidated Interim Financial Statements.xlsx
Marel Q1 2021 Press Release_vF.pdf